Hoppa yfir valmynd
17. mars 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 64/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 64/2015

Fimmtudaginn 17. mars 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 30. september 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. september 2015, um innheimtu ofgreiddra bóta að fjárhæð 129.629 kr. með 15% álagi.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 25. september 2013. Kærandi var látinn sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu bóta en fékk síðan greiddar bætur frá 25. nóvember 2013 til 31. desember 2013. Þann 13. nóvember 2013 tilkynnti kærandi um tilfallandi tekjur frá B og C vegna október 2013.

Í febrúar 2014 kom í ljós að kærandi var með tilfallandi tekjur í desember 2013 frá B að fjárhæð 154.988 kr. og frá C að fjárhæð 145.691 kr. Með tilkynningu í gegnum vefgátt Vinnumálastofnunar þann 28. febrúar 2014 var kærandi upplýstur um að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og vegna þess hefði myndast skuld við Vinnumálastofnun að fjárhæð 112.721 kr. Með innheimtubréfi, dags. 22. september 2015, var þess farið á leit við kæranda að skuldin yrði greidd innan 90 daga með 15% álagi, samtals að fjárhæð 129.629 kr. 

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. september 2015. Með bréfi, dags. 9 október 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. desember 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. desember 2015, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að endurgreiðslukrafa Vinnumálastofnunar verði felld niður. Kærandi greinir frá því í kæru að hann hafi verið atvinnulaus í þrjá mánuði á árinu 2013, þ.e. frá október 2013 til 1. janúar 2014. Þegar engar greiðslur hafi komið í október og nóvember hafi hann rætt við D og óskað eftir því að þetta yrði lagfært. Síðan hafi loksins komið greiðsla í desember sem hann hafi talið að væri leiðrétting fyrir október og nóvember ásamt greiðslu fyrir desember.

Þá segir að hann hafi fengið sent innheimtubréf tæplega tveimur árum síðar þar sem hann sé krafinn um endurgreiðslu ásamt 15% álagi sem nemi ríflega helmingi þess sem greitt hafi verið. Það séu forkastanleg vinnubrögð að rukka þetta tvö ár aftur í tímann. Ef þetta verði niðurstaðan þá hafi hann einungis fengið greitt 79.767 kr. fyrir þessa þrjá mánuði. Honum finnist ekki í lagi að maður sem hafi unnið alla sína tíð og staðið skil á sköttum og skuli fái svona viðtökur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið tilfallandi tekjur frá B og C, samtals að fjárhæð 300.679 kr., í desember 2013 á meðan hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þá hafi hann einnig fengið tekjur frá sömu aðilum í nóvember 2013. Kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um tekjur fyrir október 2013 en ekki fyrir nóvember og desember. Þar sem tekjur hans hafi reynst hærri en greiðslur atvinnuleysisbóta hafi tekið mið af hafi stofnuninni borið að skerða atvinnuleysistryggingar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda hafi verið leiðréttar í samræmi við framangreint ákvæði. Þar sem kærandi hafi þegar fengið greitt fyrir tímabilið hafi myndast skuld í greiðslukerfi Vinnumálastofnunar. Í 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að atvinnuleitandi skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Samkvæmt ákvæðinu sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta.

Þá segir að í kæru til úrskurðarnefndarinnar geri kærandi athugasemdir við að tvö ár séu liðin frá því að atvikið hafi átt sér stað. Þá veki kærandi athygli á þeim stutta tíma sem hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta og að mánaðarleg greiðsla að teknu tilliti til skerðingar sé einingis um 27.000 kr. Vinnumálastofnun veki athygli á því að kærandi hafi sætt biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á því tímabili sem um ræði. Honum hafi því ekki verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrstu tvo mánuðina sem hann hafi skráð sig atvinnulausan. Mál þetta varði ofgreiðslu á atvinnuleysisbótum vegna tekna sem kærandi hafi haft á meðan hann hafi þegið atvinnuleysistryggingar.

Fram kemur að ekki verði séð að sá tími, sem kærandi hafi þegið atvinnuleysisbætur, kunni að hafa áhrif á skyldu hans til að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun sé gert að taka tillit til þeirra tekna sem atvinnuleitandi hafi á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma samkvæmt lögum. Ákvæðið eigi jafnt við um þá sem þiggi atvinnuleysisbætur í stuttan tíma og þá sem njóti aðstoðar úr sjóðnum til lengri tíma. Þótt kærandi hafi aðeins fengið greiddar atvinnuleysisbætur í nóvember og desember 2013 beri stofnuninni að skerða atvinnuleysisbætur í samræmi við tekjur hans á tímabilinu, sbr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Einnig segir að hvað varði þann tíma frá því að Vinnumálastofnun hafi fyrst vakið athygli á ofgreiðslu atvinnuleysisbóta og þar til stofnunin hafi krafist endurgreiðslu frá kæranda sé bent á að almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda sé fjögur ár, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. Ekki verði séð að krafa Vinnumálastofnunar sé fallin niður fyrir fyrningu.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 129.629 kr. með 15% álagi.

Atvinnuleitendum ber að upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum þeirra á þeim tíma sem þeir fá greiddar atvinnuleysisbætur, s.s. um tekjur sem þeir fá fyrir tilfallandi vinnu, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá skulu skattyfirvöld láta Vinnumálastofnun í té upplýsingar sem nauðsynlegar eru við framkvæmd laganna, sbr. 4. gr. 9. gr. laganna.

Um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna er fjallað í 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. málsl. 1. mgr. 36. gr. segir að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans séu hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru.

Þá segir í  2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun á skuld kæranda rætur sínar að rekja til þess að kærandi fékk ofgreiddar bætur í desember 2013 þar sem hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um atvinnutekjur frá B og C. Kærandi gerir hins vegar athugasemd við að krafan hafi ekki verið innheimt fyrr en tæplega tveimur árum eftir að hún stofnaðist. Þá gerir hann athugasemd við fjárhæð bótanna.

Af framangreindum lagaákvæðum má ráða að það er á ábyrgð bótaþega að upplýsa um tekjur. Vinnumálastofnun greiðir atvinnuleysisbætur í samræmi við tekjuupplýsingar atvinnuleitenda og ef tilkynnt er um tekjur geta bótagreiðslurnar verið skertar í samræmi við 36. gr. laganna. Vinnumálastofnun aflar síðar upplýsinga frá skattyfirvöldum um rauntekjur atvinnuleitenda. Ef rauntekjurnar eru ekki í samræmi við tekjuupplýsingar hafa atvinnuleitendur ef til vill fengið ýmist meira eða minna greitt en þeir áttu rétt til. Ef atvinnuleysisbæturnar eru ofgreiddar ber atvinnuleitendum að endurgreiða ofgreiddar bætur í samræmi við 39. gr. laganna.

Kærandi var með töluverðar atvinnutekjur í desember 2013 og því átti hann ekki rétt á miklum atvinnuleysisbótum. Þar sem hann fékk greiddar hærri bætur en hann átti rétt á ber honum að endurgreiða ofgreiddar bætur samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Þá skal leggja 15% álag á skuldina í ljósi þess að hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um atvinnutekjur sínar.

Að því er varðar athugasemd kæranda um seinagang Vinnumálastofnunar þá liggur fyrir að það liðu rúmlega átján mánuðir frá því að kærandi fékk ofgreiddar bætur þar til honum var birt innheimtubréf, dags. 24. ágúst 2015. Samkvæmt 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skulu ákvarðanir í málum teknar eins fljótt og unnt er. Ekki verður séð að sérstakar ástæður hafi skýrt umrædda töf á innheimtu kröfunnar. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála var málsmeðferð Vinnumálastofnunar því ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga. Úrskurðarnefndin beinir þeim tilmælum til stofnunarinnar að gæta framvegis að framangreindri málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga við töku ákvarðana um innheimtu ofgreiddra bóta. Hins vegar er almennur fyrningafrestur kröfuréttinda fjögur ár samkvæmt 3. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. Krafa Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta var því ekki fyrnd þegar kæranda var birt innheimtubréf, dags. 22. september 2015. Af þeim sökum verður ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu bóta ekki felld úr gildi á þeim grundvelli að hún sé of seint fram komin.

Með hliðsjón af framangreindu er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 129.629 kr. með 15% álagi, er staðfest.

Rakel Þorsteinsdóttir

Arnar Kristinsson

Agnar Bragi Bragason

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum