Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 94/2012

Fimmtudaginn 3. apríl 2014

 

 

A

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Arndís Anna K. Gunnarsdóttir og Lára Sverrisdóttir.

Þann 22. maí 2012 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 10. maí 2012 þar sem umsókn um heimild til greiðsluaðlögunar var hafnað.

Með bréfi 29. maí 2012 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 5. júní 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 19. júní 2012 og var honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.  

 

I. Málsatvik

Kærandi lagði inn umsókn um greiðsluaðlögun 20. apríl 2011. Hann er fæddur 1967, fráskilinn og býr að eigin sögn í Serbíu. Fyrrverandi eiginkona kæranda býr ásamt tveimur dætrum þeirra í íbúð að B götu nr. 10 í sveitarfélaginu C. Íbúðin er sameign kæranda og fyrrverandi eiginkonu hans. Engar upplýsingar liggja fyrir um menntun, núverandi starf eða tekjur kæranda.

Samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara eru heildarskuldir kæranda 24.350.845 krónur og þar af falla 24.315.845 krónur innan samnings, sbr. 3. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.). Til helstu skuldbindinga var stofnað á árinu 2008. Að sögn kæranda má rekja fjárhagserfiðleika hans til offjárfestingar og tekjulækkunar.

Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 10. maí 2012 var umsókn kæranda um greiðsluaðlögun hafnað með vísan til þess að hann uppfyllti ekki skilyrði til að leita greiðsluaðlögunar samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge.

 

II. Sjónarmið kæranda

Málatilbúnað kæranda verður að skilja svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja honum um heimild til að leita greiðsluaðlögunar verði felld úr gildi.

Í kæru kemur fram kæranda sé synjað um greiðsluaðlögun þar sem hann búi ekki á Íslandi. Hann ætli að flytja aftur til Íslands haustið 2012 þegar starfi hans sé lokið og muni hann senda kærunefndinni ráðningarsamning sem staðfesti það. Kærandi eigi íbúð ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni en hún hafi fengið samþykkta greiðsluaðlögun. Telur kærandi að ef honum verði synjað um greiðsluaðlögun muni hún ekki geta haldið íbúðinni. Kærandi ætli að búa á Íslandi þar sem börn hans eru.

 

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Í ákvörðun umboðsmanns skuldara kemur fram að við mat á því hvort veita skuli heimild til greiðsluaðlögunar beri umboðsmanni skuldara að líta til þeirra aðstæðna sem geti komið í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð, sbr. 6. gr. lge.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 6. gr. lge. skuli synja um heimild til greiðsluaðlögunar ef fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skuldari uppfylli skilyrði laganna til að leita greiðsluaðlögunar. Í 4. mgr. 2. gr. lge. sé það skilyrði sett fyrir heimild til að leita greiðsluaðlögunar að umsækjandi sé búsettur og eigi lögheimili hér á landi. Víkja megi frá skilyrðinu ef sá sem leitar greiðsluaðlögunar sé tímabundið búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda og hafi verið búsettur í Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár samfleytt, enda leiti hann hennar einungis vegna skuldbindinga sem stofnast hefur til á Íslandi við lánardrottna sem eigi heimili á Íslandi.

Umboðsmaður greinir frá því að kærunefnd greiðsluaðlögunarmála hafi í máli nr. 14/2011 úrskurðað um hvort líta ætti á búsetu kæranda erlendis sem tímabundna þannig að undantekningarheimild 4. mgr. 2. gr. lge. ætti við. Í úrskurði nefndarinnar frá 24. nóvember 2011 segi: „Til að afmarka þau tilvik þar sem um tímabundna búsetu erlendis er að ræða verður að líta til þess að heimildin er undantekning frá meginreglu, sem ekki er ætlað að ná til allra sem flytja erlendis um ótiltekinn tíma, til dæmis vegna atvinnuleitar. Það ræður ekki úrslitum í málum af þessu tagi hvort viðkomandi hafi flutt lögheimili sitt erlendis. Hins vegar verður við það að miða að með tímabundinni búsetu sé átt við það að sýnt sé fram á eða það gert líklegt að búsetu erlendis sé í upphafi markaður ákveðinn tími. Þegar flutt er til útlanda vegna starfs verður því að miða við það að viðkomandi hafi þegið tímabundið starf eða tekist á hendur verkefni sem fyrirfram er markaður ákveðinn tími eða einhver önnur atriði geri það líklegt að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða.“

Samkvæmt gögnum málsins fluttist kærandi búferlum til Serbíu vegna vinnu. Kæranda hafi verið gefið færi á því að leggja fram gögn sem renndu stoðum undir það að um tímabundna búsetu erlendis væri að ræða. Kærandi hafi svaraði þannig að hann hygðist flytja aftur til Íslands í september 2012. Óskaði umboðsmaður skuldara eftir gögnum er styddu að um tímabundna búsetu væri að ræða. Engin svör hafi borist. Kærandi hafi því ekki lagt fram gögn er sýni fram á að um tímabundna búsetu erlendis vegna náms, starfa eða veikinda sé að ræða. Þar sem 4. mgr. 2. gr. lge. sé undantekningarákvæði verði að gera þær kröfur til skuldara að þeir skýri með fullnægjandi hætti ástæður tímabundinnar búsetu erlendis og leggi fram viðeigandi gögn því til stuðnings.

Með vísan til forsenda hinnar kærðu ákvörðunar fer umboðsmaður skuldara fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

 

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á a-lið 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge. Í a-lið 1. mgr. 6. gr. lge. kemur fram að synja skuli um heimild til greiðsluaðlögunar ef fyrirliggjandi gögn sýna ekki fram á að skuldari uppfylli skilyrði laganna til að leita greiðsluaðlögunar. Í 4. mgr. 2. gr. lge. segir að þeir einir geti leitað greiðsluaðlögunar samkvæmt lögunum sem eigi lögheimili og eru búsettir hér á landi. Frá þessu má þó víkja, meðal annars á þeim grundvelli að sá sem leitar greiðsluaðlögunar sé tímabundið búsettur erlendis vegna náms, starfa eða veikinda og hafi átt lögheimili og verið búsettur hér á landi í að minnsta kosti þrjú ár samfellt, enda leiti hann einungis greiðsluaðlögunar vegna skuldbindinga sem stofnast hafa hér á landi við lánardrottna sem eiga hér heimili.

Framangreind ákvörðun umboðsmanns byggist á því að kærandi sé búsettur erlendis. Ekki sé unnt að líta svo á að búseta hans sé tímabundin vegna náms, starfa eða veikinda í skilningi undantekningarákvæðis 4. mgr. 2. gr. lge. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 4. mgr. 2. gr. lge., var því umsókn kæranda um greiðsluaðlögun synjað.

Í málinu er ágreiningur um hvort líta eigi á búsetu kæranda erlendis sem tímabundna þannig að áðurnefnd undantekningarheimild í 4. mgr. 2. gr. lge. eigi við.

Til skýringar á hugtakinu „tímabundin búseta erlendis“ í skilningi lge. verður að líta til þess að heimildin í 4. mgr. 2. gr. lge. er undantekning frá meginreglu. Af orðalagi ákvæðisins má ráða að því er ekki ætlað að ná til þeirra sem flytja til annarra landa í ótiltekinn tíma, til dæmis vegna atvinnuleitar. Við það verður að miða að með tímabundinni búsetu sé átt við það að sýnt sé fram á eða það gert líklegt að búsetu erlendis sé í upphafi markaður ákveðinn tími. Þegar flutt er til útlanda vegna starfs verður því að miða við það að viðkomandi hafi þegið tímabundið starf eða tekist á hendur verkefni sem fyrirfram er markaður ákveðinn tími eða einhver önnur atriði valdi því að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Að mati kærunefndarinnar verður ekki litið svo á að um tímabundna búsetu sé að ræða ef sú staðhæfing er ekki studd gögnum. Nefndin telur ekki fullnægjandi í þessu sambandi að kærandi lýsi því yfir að hann hyggist flytja aftur til Íslands þegar fram líða stundir, til dæmis við breyttar aðstæður, sem óvíst er hvort og þá hvenær verði.

Eins og málið liggur fyrir verður að telja að ekkert bendi til þess að kærandi sé búsettur á Íslandi eða hafi verið það frá árinu 2012. Kærandi kveðst vera búsettur í Serbíu samkvæmt því sem fram kemur tölvupósti hans til umboðsmanns skuldara 24. apríl 2012. Að mati kærunefndarinnar hefur kærandi ekki sýnt fram á að búseta hans erlendis sé tímabundin í skilningi lge. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði laganna til að geta leitað greiðsluaðlögunar, sbr. 4. mgr. 2. gr. lge.

Með vísan til þessa og a-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. er ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja kæranda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja A um heimild til að leita greiðsluaðlögunar er staðfest.

 

Sigríður Ingvarsdóttir

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir

Lára Sverrisdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum