Hoppa yfir valmynd
12. október 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Synjun Vinnumálastofnunar frá 28. október 2005 staðfest

Fimmtudaginn 12. október 2006 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 22. nóvember 2005, kærði A, synjun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2005, á veitingu atvinnuleyfis fyrir B, sem er srílanskur ríkisborgari.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða til starfa B, sem er srílanskur ríkisborgari. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Að sögn kæranda er ekki auðvelt að finna innlent vinnuafl sem reiðubúið er að starfa við heimilishjálp. Kærandi hafi því leitað til Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins við leit að erlendum starfmanni en sú leit hafi hins vegar engan árangur borið. Hafi hann þá sótt um tímabundið atvinnuleyfi fyrir umræddan útlending en fengið synjun á veitingu atvinnuleyfisins hjá Vinnumálastofnun.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 17. desember 2005 og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar 24. febrúar sl. Í umsögn sinni ítrekar stofnunin afstöðu sína til málsins þess efnis að samkvæmt viðauka B við aðildarsamning EES sé núverandi aðildarríkjum gert að veita ríkisborgurum hinna nýju aðildarríkja, sem gengu til liðs við Evrópusambandið sem og Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, forgang fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að því er varðar aðgengi að vinnumörkuðum sínum. Því beri að leita aðstoðar vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu fáist ekki vinnuafl innan lands. Enn fremur bendir stofnunin á að skv. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Því beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins hafi kærandi leitað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar þann 7. júní 2005 við leit að starfsmanni í umrætt starf. Mánuði síðar hafi auglýsing kæranda ekki borið árangur og því hafi kærandi sótt um atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar fyrir umræddan útlending. Að mati Vinnumálastofnunar er um misræmi að ræða milli þeirra upplýsinga sem fram koma annars vegar í þeim ráðningarsamningi sem fyrir liggur í málinu og hins vegar í auglýsingu þeirri sem birt var með milligöngu Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins hvað varðar vinnutíma og launakjör í tengslum við umrætt starf. Telur stofnunin að launakjör þau sem fram komi í fyrrnefndum ráðningarsamningi sem og launakjör þau sem tilgreind eru í áðurnefndri auglýsingu feli í sér brot á kjarasamningi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins og varði þar af leiðandi við lög nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Þá bendir stofnunin á að samkvæmt fyrirliggjandi ráðningarsamningi sé einungis um 65% starf að ræða en stofnunin veiti ekki atvinnuleyfi vegna hlutastarfa þar sem slík störf séu ekki talin tryggja næga framfærslu útlendinga sem dveljast og starfa hér á landi. Þegar af þeirri ástæðu hafi staðið rök til að synja umsókn kæranda um atvinnuleyfi fyrir umræddan útlending.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur enn fremur fram að vinnumiðlunin á Evrópska efnahagssvæðinu á Íslandi hafi upplýst stofnunina um að kærandi hafi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfmanni af Evrópska efnahagssvæðinu en vinnumiðlunin telji auðvelt að finna starfsfólk af því svæði til að starfa við heimilishjálp hér á landi.

Þá vísar stofnunin í umsögn sinni til þriggja úrskurða félagsmálaráðuneytis þar sem vísað hafi verið til þess að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og að þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds og yfirlýsinga félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá 7. september 2005 telur Vinnumálastofnun í umsögn sinni að kærandi hafi ekki reynt til fulls að ráða fólk í umrætt starf annaðhvort innan lands eða af Evrópska efnahagssvæðinu og því hafi stofnuninni borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 27. febrúar sl., var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Svarbréf kæranda barst ráðuneytinu 14. mars sl. þar sem kærandi mótmælir þeirri fullyrðingu Vinnumálastofnunar að misræmis hafi gætt milli þeirra upplýsinga sem fram koma í fyrirliggjandi ráðningarsamningi annars vegar og í auglýsingu kæranda hjá Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins hins vegar varðandi vinnutíma og launakjör. Óskar kærandi eftir því að félagsmálaráðuneytið kalli eftir gögnum frá vinnumiðluninni máli sínu til stuðnings þar sem hann geti ekki sjálfur aflað þeirra gagna samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hafi fengið hjá vinnumiðluninni. Samkvæmt fyrirliggjandi ráðningarsamningi sé umræddum útlendingi tryggt fæði og húsnæði auk fargjalda til og frá landinu og að kjör hennar verði að öðru leiti tryggð til jafns við kjör þeirra sem sinni sambærilegum störfum. Tekur kærandi fram að hann viti ekki til þess að nokkur vinnuveitandi útvegi bæði fæði og húsnæði fyrir starfsmenn sína án þess að slíkt sé talið hluti af launakjörum viðkomandi. Þá tekur kærandi fram að Vinnumálastofnun hafi fjórum sinnum á árunum 2002-2006 veitt atvinnuleyfi fyrir útlendinga sem hann hafi ráðið í 65% starf sem heimilishjálp á heimili sitt.

Ráðuneytið sendi Vinnumálastofnun bréf, dags. 23. mars sl., þar sem óskað var eftir afriti af auglýsingu kæranda hjá Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins auk umsagnar um athugasemdir kæranda, sem bárust ráðuneytinu 14. mars sl. Svarbréf Vinnumálastofnunar barst ráðuneytinu 2. maí sl. þar sem stofnunin ítrekar áður fram komin sjónarmið sín í málinu. Fram kemur að afrit af auglýsingu kæranda, sem birt var með milligöngu Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins, staðfesti að auglýst hafi verið eftir heimilishjálp innanlands, þó deila megi um hvort starfskjör í ráðningarsamningi hafi verið eðlileg. Eftir að leit kæranda að starfsmanni innanlands bar ekki árangur hafi hann hins vegar ekki auglýst eftir starfsmanni af Evrópska efnahagssvæðinu, með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Leit að starfsfólki af því svæði sé í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og stefnu íslenskra stjórnvalda þess efnis að við veitingu atvinnuleyfa sé miðað við forgang ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið í laus störf á innlendum vinnumarkaði. Enn fremur áréttar Vinnumálastofnun það mat stofnunarinnar að launakjör þau sem kærandi hafi haft hug á að bjóða umræddum útlendingi samkvæmt gögnum málsins brjóti í bága við ákvæði laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, þar sem um vaktavinnu sé að ræða.

Þá tekur Vinnumálastofnun fram að afstaða stofnunarinnar gagnvart umsókn kæranda um atvinnuleyfi fyrir umræddan útlending sé samkvæmt framansögðu óbreytt en atvinnuleyfi þau sem kæranda hafi verið veitt af hálfu stofnunarinnar á undanförnum árum í því skyni að ráða til starfa heimilishjálp í hlutastarf á heimili sitt verði að flokkast undir mistök stofnunarinnar sem kærandi geti ekki byggt rétt sinn á.

Með bréfi, dags. 2. maí sl., var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við svarbréf Vinnumálastofnunar. Frestur til að koma að athugasemdum var veittur til 10. maí sl. en svarbréf barst ekki frá kæranda. Ráðuneytið sendi því bréf til kæranda, dags. 1. júní sl., þar sem upplýst var að ráðuneytið tæki málið til efnislegrar afgreiðslu hefðu athugasemdir hans ekki borist fyrir 9. júní sl. Svarbréf kæranda barst ráðuneytinu 13. júní sl. þar sem meðal annars kemur fram að kærandi telji sig bæði hafa leitað til Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins og Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni. Þar sem kærandi hafi ekkert heyrt frá fyrrnefndum vinnumiðlunum hafi hann litið svo á að leit þeirra að starfsmanni í umrætt starf hafi engan árangur borið og því hafi hann gert ráðningarsamning við umræddan útlending.

 

II. Niðurstaða.

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, eru kæranlegar til félagsmálaráðuneytisins, sbr. 24. gr. laganna.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við sett lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er það gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum við 7. gr. frumvarps þess er varð að gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga kemur fram að ákvæðið sé efnislega samhljóða ákvæðum eldri laga. Þessi skilyrði komu inn sem nýmæli í lög nr. 26/1982, um sama efni. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að þeim lögum kemur fram að færa skuli „rök fyrir nauðsyn þess að nota erlent starfsfólk og gera grein fyrir því hvaða tilraunir hafi verið gerðar til þess að ráða innlent starfsfólk í starfið. Gert er ráð fyrir því að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins kanni síðan sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt, hvert atvinnuástand er á viðkomandi stað og leiti til sambanda aðila vinnumarkaðarins um almenna stefnumörkun í innflutningi erlends starfsfólks með sérstöku tilliti til atvinnuástands í landinu og á ákveðnum landssvæðum.“ Enn fremur var það talið lögbundið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að „fylgjast náið með atvinnuástandi í landinu og reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi eftir bestu getu. Rétt þótti því að tengja veitingu atvinnuleyfa vegna erlendra starfsmanna þeim upplýsingum og því starfi sem unnið er á skrifstofunni að öðru leyti hvað varðar atvinnuástand í landinu.“

Verður ekki annað séð en að tilgangur skilyrðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga sé í meginatriðum sá sami og áður enda ekkert annað komið fram í lögskýringargögnum. Þá var Vinnumálastofnun falið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins með lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, sbr. einnig lög nr. 55/2006, um sama efni. Með síðarnefndu lögunum voru svæðisvinnumiðlanir lagðar niður en skv. 10. gr. laganna var Vinnumálastofnun falið hlutverk þeirra. Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar um hvort skilyrði þess fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa sé fullnægt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Í september 2005 voru að meðaltali 2.267 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. yfirlit stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 9/2005, en það jafngildir 1,4% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði á þeim tíma. Á sama tíma var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 1,6% af áætluðum mannafla sem svarar til 1.549 einstaklinga að meðaltali.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður leitað aðstoðar svæðisvinnumiðlunar. Í ljósi þess að ekki er um sérhæft starf að ræða verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að atvinnurekanda hafi borið að leita til vinnumiðlunarinnar eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum þrátt fyrir tiltölulega lítið atvinnuleysi hér á landi í september 2005.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og b-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til vinnu á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins tók gildi 1. maí 2004 er tíu ríki gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið til viðbótar þeim sem fyrir voru, sbr. aðildarsamning EES. Þessi ríki voru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Reglum samningsins er í meginatriðum ætlað að gilda á öllu svæðinu en gerður var fyrirvari um gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands í Evrópska efnahagssvæðið gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði giltu fyrst um sinn að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara landa sem launamanna innan svæðisins. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 19/2004, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þrátt fyrir að sækja hafi þurft um atvinnuleyfi og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara framangreindra aðildarríkja fram til 1. maí 2006 skuldbundu stjórnvöld sig eigi síður til að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES, sem lögfestur var með lögum nr. 8/2004, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum. Sá forgangur var enn frekar undirstrikaður með lögum nr. 21/2006, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sem tóku gildi 1. maí 2006 en með þeim var ríkisborgurum framangreindra ríkja veitt heimild til frjálsrar atvinnuleitar hér á landi og til að ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þar með njóta ríkisborgarar þessara ríkja réttinda til að ráða sig til starfa hér á landi með sama forgangsrétti og íslenskir ríkisborgarar.

Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að í þeim tilvikum er vinnuafl skortir á innlendum vinnumarkaði þá leiti atvinnurekendur eftir starfsfólki á hinum sameiginlega vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en leitað er út fyrir svæðið eftir launafólki. Á það ekki síst við í ljósi skuldbindinga stjórnvalda um miðlun lausra starfa innan svæðisins sem og langtímaáhrifa veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á innlendan vinnumarkað, sbr. c-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innan lands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð stofnunarinnar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi óskað eftir aðstoð Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins við leit að starfsmanni í umrætt starf en sú leit hafi ekki borið árangur. Í umsögn Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu 24. febrúar sl., sem og svarbréfi Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu 2. maí sl., við fyrirspurn ráðuneytisins, dags. 23. mars sl., kemur fram að kærandi hafi hins vegar ekki leitað eftir starfsmanni af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Vinnumálastofnunar. Þessu mótmælir kærandi í svarbréfi sínu, sem barst ráðuneytinu 13. júní sl., án þess að leggja fram frekari gögn máli sínu til stuðnings.

Reynslan hefur sýnt að nokkur hreyfanleiki er meðal ríkisborgara hinna nýju aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið enda atvinnuleysi þar nokkuð. Fjöldi ríkisborgara þessara ríkja hefur ráðið sig til starfa hér á landi á undanförnum tveimur árum en á árinu 2005 voru 2.765 launamenn frá nýju aðildarríkjunum ráðnir til starfa hjá atvinnurekendum á innlendum vinnumarkaði og voru flestir þeirra ráðnir í ósérhæfð störf. Þegar litið er til reynslunnar, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og gagna málsins í heild er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Það er því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé þegar af þeirri ástæðu ekki fullnægt í máli þessu. Því er ekki talin ástæða til að fjalla nánar um aðrar þær málsástæður sem aðilar halda uppi í málinu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Synjun Vinnumálastofnunar, dags. 28. október 2005, á veitingu atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða til starfa B, sem er srílanskur ríkisborgari, skal standa.

 

Fyrir hönd ráðherra

 

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir

Bjarnheiður Gautadóttir



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum