Hoppa yfir valmynd
6. júní 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Synjun Vinnumálastofnunar frá 29. nóvember 2005. Frávísun.

Þriðjudaginn 6. júní 2006 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi, dags. 6. janúar 2006, sem barst ráðuneytinu 13. febrúar 2006, kærði A, f.h. B ehf., kt. X, synjun Vinnumálastofnunar, dags. 29. nóvember 2005, um veitingu atvinnuleyfa fyrir D, fd. Y, og E, fd. Z, ríkisborgara frá Filippseyjum.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar um veitingu atvinnuleyfa til handa B ehf. í því skyni að ráða til starfa D og E, ríkisborgara frá Filippseyjum. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfanna með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Ráðuneytið sendi bréf til kæranda, dags. 14. febrúar sl., þar sem athygli kæranda var vakin á því að kærufrestur í málinu hefði runnið út 27. desember 2005 en samkvæmt 24. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning berst um ákvörðun Vinnumálastofnunar. Því teldist viðkomandi kæra hafa borist ráðuneytinu að liðnum kærufresti.

Í fyrrnefndu bréfi ráðuneytisins var enn fremur tekið fram að þrátt fyrir ákvæði 24. gr. laganna um atvinnuréttindi útlendinga færi um kæru að öðru leyti samkvæmt VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt 28. gr. stjórnsýslulaga skal vísa kæru frá hafi hún borist að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Því óskaði ráðuneytið eftir því að kærandi tilgreindi ástæður þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum kærufresti og var frestur veittur til 1. mars sl.

Svarbréf barst ekki frá kæranda. Félagsmálaráðuneytið sendi því annað bréf til kæranda, dags. 6. mars. sl., þar sem ráðuneytið ítrekaði fyrri beiðni sína þess efnis að kærandi veitti ráðuneytinu nánari upplýsingar um ástæður þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti og var frestur veittur til 13. mars sl. Þar sem svarbréf hefur enn ekki borist ráðuneytinu verður byggt á þeim gögnum sem þegar liggja fyrir í málinu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

 

II. Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfa til félagsmálaráðuneytis. Samkvæmt 2. mgr. sama ákvæðis er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning berst um ákvörðun Vinnumálastofnunar en að öðru leyti fer um kæru skv. VII. kafla stjórnsýslulaga um stjórnsýslukæru. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, ber að vísa stjórnsýslukæru frá berist hún að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Í gögnum málsins er ekki að finna ástæður þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu tæplega sjö vikum eftir að lögbundinn kærufrestur rann út en ítrekað var óskað eftir að kærandi greindi ráðuneytinu frá ástæðum þess dráttar. Skortir ráðuneytið því forsendur til að meta hvort afsakanlegar ástæður liggi þar að baki í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Þá verður ekki ráðið af málsatvikum að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til efnislegrar meðferðar hjá ráðuneytinu, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Ráðuneytið skortir því heimildir að lögum til að taka málið til efnislegrar umfjöllunar og ber að vísa erindi kæranda frá ráðuneytinu, sbr. 24. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Stjórnsýslukæru A, f.h. B ehf., er barst ráðuneytinu 13. febrúar 2006, vegna synjunar Vinnumálastofnunar, dags. 29. nóvember 2005, um veitingu atvinnuleyfa fyrir D og E, ríkisborgara frá Filippseyjum, er hér með vísað frá félagsmálaráðuneytinu.

  

F.h.r.

 

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir (sign)

Bjarnheiður Gautadóttir (sign)

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum