Hoppa yfir valmynd
20. október 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Úrskurður nr. 214 - Ofgreiddar bætur

A


gegn


Tryggingastofnun ríkisins



Ú r s k u r ð u r.


Mál þetta úrskurðuðu Friðjón Örn Friðjónsson, hrl., Guðmundur Sigurðsson, læknir og Þuríður Árnadóttir, lögfræðingur.


Með bréfi til úrskurðarnefndar almannatrygginga dags. 13. júlí 2005 kærir B f.h. A endurkröfu Tryggingastofnunar ríkisins vegna ofgreiddra bóta ársins 2003.


Þess er óskað að endurkrafa ofgreiddra bóta verði felld niður.


Málavextir eru þeir að við endurreikning Tryggingastofnunar vegna lífeyris­greiðslna árið 2003 kom í ljós að bætur til kæranda höfðu verið ofgreiddar sem nam kr. 415.755.- eða kr. 254.129.- að frádreginni staðgreiðslu. B andmælti kröfunni með skilagrein dags. 10. desember 2004. Í svarbréfi Trygginga­stofnunar dags. 4. maí 2005 sagði að ekki væri hægt að taka tillit til athugasemda kæranda og því stæði endurreikningur frá því í nóvember 2004 óbreyttur.


Í rökstuðningi fyrir kæru segir:


„ Samkvæmt svarbréfi Tryggingastofnunar er ástæða endurkröfunnar sú að lífeyrissjóðstekjur hafi verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir á viðkomandi ári. A fékk eingreiðslu frá Greiðslustofu lífeyrissjóða í júlí 2003 fyrir mánuðina janúar til júlí það árið. Eftir það voru greiðslur þær sem hann fékk frá Greiðslustofunni jafnar, og í samræmi við eingreiðsluna, að öðru leyti en því að þær hafa fylgt þeim hækkunum sem almennar eru. Greiðslustofa lífeyris­sjóða sendir Tryggingastofnun mánaðarlega yfirlit yfir þá sem byrja á lífeyri svo stofnunin hafði upplýsingar um þessar greiðslur um leið og þær voru A kunnar. Að sama skapi veitti A Tryggingastofnun heimild til að afla upplýsinga um tekjur sínar hjá ákveðnum aðilum með undirskrift á umsókn sína um örorkubætur. Um slíkar heimildir er nánar fjallað í samantekt þeirri sem B sendi Úrskurðarnefnd almannatrygginga og er dagsett 30. maí 2005. A var því í góðri trú um greiðslurétt sinn og að hafa uppfyllt skyldur sínar gagnvart Tryggingastofnun á nægilegan hátt, en stofnunin átti að hafa aðgang að öllum gögnum um fjármál hans.


Að öðru leyti vísast um rök í hina almennu samantekt sem send var úrskurðarnefnd almannatrygginga og getið er hér að ofan.


B óskar hér með eftir því að Úrskurðarnefnd almannatrygginga skeri úr um þetta mál og felli niður endurkröfu ofgreiddra bóta.”


Úrskurðarnefndin óskaði með bréfi dags. 15. júlí 2005 eftir greinargerð Trygginga­stofnunar. Greinargerðin er dags. 2. ágúst 2005. Þar segir m.a.:


„ Ástæða kröfunnar á hendur A er í aðalatriðum sú að við endurreikning bóta ársins 2003 komu til skerðingar tekjur sem hann fékk greiddar frá lífeyrissjóði sínum, en ekki var gert ráð fyrir við samtímaútreikning og greiðslu bóta á árinu.

Samkvæmt 2. mgr. 47. gr. atl. er umsækjanda og bótaþega skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi er bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar sem verða á tekjum hans á yfirstandandi tekjuári.

Á umsóknareyðublaði um bætur, svo og á eyðublöðum fyrir tekjuyfirlýsingar, er texti sem umsækjendur og lífeyrisþegar undirrita, þar sem þeir ábyrgjast að láta Tryggingastofnun vita ef breytingar verða á tekjum þeirra. A skilaði slíku umsóknareyðublaði þann 30. apríl 2003, ásamt tekjuyfirlýsingu þar sem merkt var 0 í alla tekjuliði. Þegar umsókn hans var afgreidd var honum tilkynnt bréflega um mánaðarlegar greiðslur ásamt því að honum var sent eyðublað til útfyllingar vegna tekjubreytinga. Í bréfinu var honum sérstaklega bent á að láta vita, hefðu tekjur hans breyst.


Til að auðvelda lífeyrisþegum að fylgjast með bótaútreikningi og meta hvort tilkynna þurfi breytingar hóf Tryggingastofnun í apríl 2003 að prenta gildandi tekjuáætlanir á bakhlið útsendra mánaðarlegra greiðslutilkynninga. A hefði því auðveldlega getað greint það að Tryggingastofnun hafði ekki réttar tekjuupplýsingar við útreikning greiðslna hans þegar hann hóf að fá greiðslur frá stofnuninni. Ekki liggur fyrir að hann hafi gert neinar ráðstafanir til að koma umræddum tekjuupplýsingum á framfæri. Athygli er vakin á því að A hefur hvorki skilað tekjuáætlun vegna ársins 2004 né ársins 2005, þrátt fyrir að Tryggingastofnun hafi sent út drög að slíkri áætlun annars vegar í nóvember 2003 og hins vegar í nóvember 2004, fyrir komandi ár, og gefið honum kost á að leiðrétta þær. Í hvorugt skiptið var gert ráð fyrir lífeyris­sjóðstekjum, enda byggir vélræn tekjuáætlun stofnunarinnar fyrir hvert ár á tekjuáætlun síðasta árs á undan.

Ekki var heldur skilað nýjum tekjuáætlunum fyrir umrædd ár þrátt fyrir ofgreiðsluna sem myndaðist vegna uppgjörs bóta ársins 2003, andmæli við endurreikning og svarbréf Tryggingastofnunar við andmælunum. Í því bréfi var A einmitt hvattur til að fylgjast með tekjuáætlun sinni og láta vita um breytingar. Auk þessa sendi Tryggingastofnun öllum lífeyrisþegum bréf í maí sl. þar sem bent var á mikilvægi þess að fylgjast með því að tekjuáætlanir gæfu rétta mynd af tekjum. Að lokum var A, ásamt hópi lífeyrisþega í sambærilegri stöðu, sérstaklega sent bréf þann 5. júlí sl. ásamt afriti af gildandi tekjuáætlun og eyðublaði til breytinga á henni. Í bréfinu var kallað eftir nýjum tekjuupplýsingum vegna þeirra miklu ofgreiðslna sem stefnir í hjá honum fyrir árið 2005.


Í ljósi alls ofangreinds er afar erfitt að fallast á það með B að A sé eða hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn og hafi uppfyllt skyldur sínar gagnvart Tryggingastofnun á nægilegan hátt. Þykir ekki ástæða til að breyta niðurstöðu uppgjörs ársins 2003 hjá honum.”


Greinargerðin var send B með bréfi dags. 4. ágúst 2005 og gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða viðbótargögnum. Slíkt hefur ekki borist. Úrskurðarnefndin beindi almennri fyrirspurn til Tryggingastofnunar um hvenær stofnunin hóf að prenta gildandi tekjuáætlanir á bakhliðar greiðsluseðla, þ.e. hvort verið gæti að það hefði ekki verið fyrr en í apríl 2004. Í svari stofnunarinnar kom fram að það hefði verið í apríl 2004, en ekki apríl 2003, og var beðist velvirðingar á röngu ártali í greinargerðum þar sem framangreindu var haldið fram af hálfu stofnunarinnar.



Niðurstaða úrskurðarnefndar:


Mál þetta varðar endurkröfu Tryggingastofnunar á hendur kæranda vegna ofgreiðslu bóta á árinu 2003. Við endurreikning bóta ársins 2003 kom í ljós að kæranda höfðu verið ofgreiddar kr. 415.755 en kr. 254.129 að frádreginni staðgreiðslu skatta. Stafaði ofgreiðslan af eingreiðslu frá Greiðslustofu lífeyrissjóða í júlí 2003 fyrir mánuðina janúar til júlí það ár og jöfnum greiðslum frá Greiðslustofunni í framhaldi eingreiðslu sem ekki var reiknað með sem tekjum við samtímaútreikning bótaréttar ársins 2003.


Í rökstuðningi fyrir kæru segir að Greiðslustofa lífeyrissjóða sendi Tryggingastofnun mánaðarlega yfirlit yfir þá sem eru að fá lífeyri í fyrsta skipti. Þá hafi kærandi veitt Tryggingastofnun heimild til að afla upplýsinga um tekjur hans. Segir einnig í kærunni að kærandi hafi verið í góðri trú um bótarétt sinn og hann hafi uppfyllt skyldur sínar gagnvart Tryggingastofnun.


Í greinargerð Tryggingastofnunar er ástæða endurkröfu sögð í aðalatriðum sú að við endurreikning bóta ársins 2003 hafi bæst við greiðslur úr lífeyrissjóði en kærandi hafi ekki tilkynnt Tryggingastofnun um þessar tekjur. Í greinargerðinni segir að samkvæmt 2. mgr. 47. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar beri umsækjanda og bótaþega að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Bent sé á þá skyldu sem hvílir á lífeyrisþegum að tilkynna um tekjubreytingar.


Úrskurðarnefnd almannatrygginga horfir til þess almennt í málum sem varða endurkröfu vegna ofgreiddra bóta, að skýr og fortakslaus ákvæði eru í 4. mgr. 10. gr. almannatryggingalaga um útreikning bóta lífeyristrygginga. Þannig liggur fyrir að um tekjutengdar bætur er að ræða sem eru áætlaðar á grundvelli nýjustu upplýsinga skv. 2. mgr. 47. gr. laganna og vega þar þyngst upplýsingar frá bótaþega sjálfum. Síðar þegar endanlegar upplýsingar liggja fyrir um tekjur bótagreiðsluársins við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum fer fram endurreikningur. Hafi greiðslur verið ofgreiddar skal bótaþegi endurgreiða það sem ofgreitt hefur verið, skv. 50. gr. almannatryggingalaga. Loks liggur almennt fyrir í málum sem varða lífeyri, að umsækjandi hefur undirritað sérstaka yfirlýsingu þar sem hann skuldbindur sig til að tilkynna Tryggingastofnun sérstaklega ef breytingar verða á högum hans t.d. að því er varðar tekjur.


Það er grundvallarregla að bótaþegi fái þær bætur sem honum ber en fái hann meira skal hann í samræmi við meginreglu kröfuréttarins endurgreiða það sem ofgreitt er. Verið getur að atvik í einstökum málum séu svo sérstök að endurkröfuréttur hafi ekki stofnast eða falli niður. Getur þetta átt við ef endurkrafan er óeðlileg miðað við aðstæður allar og huglæga afstöðu bótaþegans til móttöku greiðslunnar. Að endurkröfuréttur ofgreiddra bóta falli niður er undantekning frá skýrum og fortakslausum ákvæðum almannatryggingalaga og meginreglu kröfuréttarins sem skýra ber þröngt skv. almennum lögskýringarreglum.


Loks liggja að mati nefndarinnar málefnaleg sjónarmið að baki endurgreiðslu ofgreiddra bóta enda brýnt að allir séu jafnir fyrir lögunum og fái bætur í samræmi við lögbundinn rétt sinn.


Við mat á endurkröfu verður einnig að líta til þess að bætur almannatrygginga eru félagslegs eðlis og lúta að því að tryggja ákveðnar lágmarksbætur sem löggjafinn hefur ákveðið að greiddar skuli að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ennfremur að opinberri stofnun, Tryggingastofnun ríkisins, er falið að lögum að tryggja að bótaréttur nái fram að ganga í samræmi við lög. Eðli málsins samkvæmt ber að gera ríkar kröfur til stjórnvalds við gæslu þeirra hagsmuna sem lögin kveða á um.


Skoða verður hvert mál sérstaklega og meta rétt til endurkröfu í ljósi atvika hverju sinni. Það mál sem hér er til úrlausnar lýtur að endurreikningi bóta ársins 2003.


Fyrir liggur að kærandi fékk eingreiðslu frá Greiðslustofu lífeyrissjóða í júlí 2003 vegna mánuðanna janúar til júlí það ár og síðan mánaðarlegar greiðslur. Greiðslustofa lífeyrissjóða tilkynnir Tryggingastofnun mánaðarlega beint um greiðslur til nýrra greiðsluþega.


Úrskurðarnefndin telur rétt að gera athugasemd við greinargerð Tryggingastofnunar þar sem segir að kærandi hafi merkt 0 við alla tekjuliði á tekjuyfirlýsingu dags. 28. apríl 2003. Hið rétta er að í reit sem merktur er lífeyrissjóðstekjur stendur: ,,Er verið að sækja um”. Kærandi undirritaði yfirlýsingu með umsókn um bætur þar sem hann skuldbatt sig til að upplýsa Tryggingastofnun m.a. um breytingar á tekjum. Fyrir liggur að kærandi tilkynnti Tryggingastofnun ekki sérstaklega um greiðslur frá Greiðslustofu lífeyrissjóða á árinu 2003.


Í erindi B sem sent var úrskurðarnefnd almannatrygginga vegna endurkrafna Tryggingastofnunar ríkisins vegna ofgreiddra bóta eru færð rök fyrir því hvenær endurkröfur eigi ekki að ná fram að ganga. Er þar m.a. bent á rannsóknar- og upplýsingaskyldu Tryggingastofnunar ríkisins sem stjórnvalds sem áréttuð er í 47. gr. almannatryggingalaga. Einnig telur B að með bréfum til bótaþega vegna tekjuáætlana fyrir árið 2003 hafi verið dregið úr þeirri kröfu að allar tekjubreytingar væru kynntar þar sem sérstaklega hafi verið tekið fram að eingöngu þyrfti að tilkynna verulegar breytingar á tekjum eða högum bótaþega.


Af hálfu kæranda er í þessu máli bent á að fyrir liggi að Greiðslustofa lífeyrissjóða hafi sent Tryggingastofnun upplýsingar um greiðslur til kæranda og þær því átt að liggja fyrir hjá stofnuninni og notast við ákvörðun og endurreikning á bótum kæranda.


Með bréfi úrskurðarnefndar almannatrygginga til Tryggingastofnunar dags. 23. september 2005 er leitað upplýsinga um það hvort yfirlit um greiðslur frá lífeyrissjóðum hafi legið fyrir í málum einstakra bótaþega og hvert hafi verið upphaf þess að umrædd yfirlit bárust stofnuninni. Ennfremur var kallað eftir mati Tryggingastofnunar á því hvort og þá hvaða réttaráhrif yfirlitin hefðu við ákvörðun endurkröfu vegna ofgreiddra bóta. Svarbréf Tryggingastofnunar dags. 6. október liggur fyrir. Þar kemur m.a. fram að upphaflega hafi starfsmaður stofnunarinnar kallað eftir yfirlitunum en þau hafi ekki verið notuð frá áramótum 2002/2003. Segir ennfremur að því verði ekki mótmælt gegn staðhæfingu viðkomandi bótaþega og lífeyrissjóðs að yfirlitin hafi verið send þó svo þau liggi ekki fyrir í einstökum málum er varða endurkröfu vegna ofgreiddra bóta. Loks kemur fram það mat stofnunarinnar, að yfirlitin eigi ekki að hafa nein réttaráhrif á endurkröfuna.


Í málinu vegast á tvö sjónarmið. Annars vegar skylda kæranda til að leggja grunn að réttri ákvörðun bóta sér til handa með réttum upplýsingum um tekjur. Hins vegar skylda Tryggingastofnunar sem stjórnvalds að fara rétt með upplýsingar um tekjur bótaþega sem berast henni. Nefndin lítur til þess að skylda kæranda til upplýsingagjafar sé ótvíræð og fellst ekki á að skilja megi erindi frá Tryggingastofnun þannig að kærandi hafi ekki átt að tilkynna um eingreiðslur frá Greiðslustofu enda höfðu þær umtalsverð áhrif á bótarétt kæranda. Hins vegar verður ekki litið framhjá því að Tryggingastofnun brást ekki við er upplýsingar bárust frá þriðja aðila, þ.e. Greiðslustofu lífeyrissjóða. Nefndin telur óeðlilegt að Tryggingastofnun taki við upplýsingum frá þriðja aðila sem áhrif geta haft á bótarétt bótaþega ef hún tekur þær ekki til skoðunar. Eðlilegra sé þá að hafna viðtöku slíkra upplýsinga sem annars geti skapað óvissu um hvort tilkynningarskyldu bótaþega samkvæmt almannatrygginga­lögum hafi verið fullnægt.


Ágreiningslaust er í máli þessu að bætur voru ofgreiddar til kæranda vegna ársins 2003. Samkvæmt fortakslausu ákvæði 2. ml. 1. mgr. 50. gr. almannatryggingalaga á Tryggingastofnun endurkröfurétt á hendur bótaþega samkvæmt almennum reglum þegar þannig háttar til. Telur úrskurðarnefndin að endurkröfuréttur sé fyrir hendi gagnvart kæranda og fellst ekki á að hann hafi fallið niður. Að mati nefndarinnar var kærandi ekki í góðri trú um bótagreiðslur þar sem hann fékk eingreiðslu frá Greiðslustofu lífeyrissjóða í júlí 2003 og jafnar greiðslur eftir það sem hann hefði mátt vita að hefðu áhrif á bótarétt. Hins vegar telur nefndin að lagaskilyrði til að beita skuldajafnaðarheimild 2. mgr. 50. gr. laga 117/1993 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 50. gr. séu ekki fyrir hendi í máli þessu. Í 2. málsl. 2. mgr. 50. gr. segir:


„Þetta á eingöngu við [þ.e. réttur til að skuldajafna endurkröfunni við framtíðarbætur bótaþega] ef tekjur á ársgrundvelli eru hærri en lagt var til grundvallar við útreikning bóta og ofgreiðsla stafar af því að bótaþegi hefur ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukninguna, sbr. 47. gr.“


Að mati úrskurðarnefndar verður að skýra skuldajafnaðarheimild Tryggingastofnunar þröngt enda felur hún í sér sérreglu sem heimilar stjórnvaldi að skerða lögbundinn bótarétt lífeyrisþegans til framtíðar en slíkt er verulega íþyngjandi og varðar grundvallarréttindi til bóta. Úrskurðarnefnd almannatrygginga leggur til grundvallar úrlausn þessa máls að tilkynning um lífeyrissjóðsgreiðslur á árinu 2003 hafi borist Tryggingastofnun þó svo að hún hafi ekki stafað frá kæranda sjálfum. Þegar þannig háttar stafar ofgreiðslan ekki af því að upplýsingar lágu ekki fyrir um réttan grundvöll bótaútreiknings, en nefndin lítur svo á að skv. tilvitnuðu ákvæði sé það skilyrði þess að skuldajöfnuði verði beitt.


Skilyrði er því ekki fyrir hendi skv. 2. mgr. 50. gr. almannatryggingalaga til að draga endurkröfuna frá bótum sem kærandi síðar kann að öðlast, heldur verður Tryggingastofnun að fara með kröfuna samkvæmt almennum reglum kröfuréttar.


Með vísan til útreikninga Tryggingastofnunar, sem ekki hafa verið gerðar athugasemdir við af hálfu kæranda, nemur ofgreiðsla bóta kr. 254.129.


Ú R S K UR Ð A R O R Ð:


Endurkrafa Tryggingastofnunar ríkisins að fjárhæð kr. 254.129 á hendur A, vegna ofgreiddra bóta ársins 2003 er viðurkennd. Synjað er um heimild til skuldajafnaðar skv. 2. mgr. 50. gr. laga 117/1993.




F.h. úrskurðarnefndar almannatrygginga



____________________________________

Friðjón Örn Friðjónsson,

formaður




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum