Hoppa yfir valmynd
20. mars 2014 Matvælaráðuneytið

Sæný ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19, (2557).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Stefáni Haukssyni f.h. Sænýjar ehf., Heinabergi 23, 815 Þorlákshöfn, dags. 22. mars 2013, sem barst ráðuneytinu 25. sama mánaðar, með bréfi Fiskistofu, dags. þann dag en kæran hafði borist Fiskistofu og var framsend ráðuneytinu með bréfi, dags. 25. mars 2013, sbr. 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með framangreindri kæru, dags. 22. mars 2013, var kærð til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19, skipaskrárnúmer 2557.


Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557) og jafnframt að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 15. febrúar 2013, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 16. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 í nokkrum byggðarlögum, m.a. Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 1. mars 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 73 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Sveitarfélagsins Árborgar á grundvelli reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2012/2013, sem skiptust á byggðarlögin Stokkseyri, 15 þorskígildistonn og Eyrarbakka, 58 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Sveitarfélaginu Árborg með bréfi, dags. 19. október 2012.


Kærandi sótti um úthlutun byggðakvóta fyrir bátinn Sleipni ÁR-19 (2557) með umsókn til Fiskistofu, dags. 18. febrúar 2013.


Hinn 6. mars 2013 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn hans um úthlutun byggðakvóta til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013, skuli eigandi fiskiskips gera skriflegan samning við fiskkaupanda um vinnslu afla sem landað verði hjá viðkomandi vinnslu, sem mótframlagi byggðakvóta. Samningurinn skuli undirritaður af eiganda/útgerðaraðila skipsins, fiskkaupanda, fiskverkanda og einnig skuli samningurinn vera áritaður fyrir hönd sveitarstjórnar. Afrit af samningi þessum skuli fylgja umsókn um byggðakvóta, sem ekki teljist gild nema hann fylgi með. Gildur samningur hafi ekki borist með umsókn um byggðakvóta fyrir skipið Sleipni ÁR-19 (2557), þannig að ekki komi til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.


Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu.

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

Með stjórnsýslukæru, dags. 22. mars 2013, sem barst ráðuneytinu 25. sama mánaðar, kærði Stefán Hauksson fyrir Sænýjar ehf. til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557).


Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að hin kærða ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557) hafi verið byggð á þeim forsendum að kærandi hafi ekki gert skriflegan samning við fiskvinnslu í sveitarfélaginu. Kærandi hafi haft samband við þær þrjár fiskvinnslur sem hafi verið í sveitarfélaginu en þær hafi ekki getað tekið við afla frá kæranda sem hafi orðið að landa aflanum á fiskmarkaðinn í Þorlákshöfn. Óskað sé eftir að tekið verði tillit til þessa við úthlutun.


Eftirtalin gögn fylgdu stjórnsýslukærunni í ljósritum: 1) tölvubréf Fiskistofu til kæranda frá 8. mars 2013, 2) umsókn kæranda, dags. 18. febrúar 2013 um úthlun byggðakvóta til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557) o.fl.


Með bréfi, dags. 27. mars 2013, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Í umsögn Fiskistofu, dags. 11. apríl 2013, er vísað til 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og tekið fram að til að ná fram markmiðum laganna sé úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa bundin því skilyrði í 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013, að eigandi viðkomandi fiskiskips geri skriflegan samning við fiskkaupanda um vinnslu afla sem landað verði og skuli slíkur samningur fylgja umsókn með áritun viðkomandi sveitarstjórnar. Kærandi hafi tekið fram í fylgiskjali með umsókn sinni að honum hafi ekki tekist að gera slíkan samning við fiskvinnslur á viðkomandi svæði. Þegar af þessari ástæðu hafi ekki verið hægt að verða við umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557).


Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013.

Rökstuðningur

I. Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum en þar kemur fram að ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni sé heimilt að kæra til ráðuneytisins, þ.e. nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Að mati ráðuneytisins verður að skýra ákvæðið með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Kæruheimild samkvæmt ákvæðinu byggir því að mati ráðuneytisins á því með sama hætti og gert er ráð fyrir í 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið um úthlutun aflaheimilda eða höfnun umsókna um aflaheimildir í byggðarlögum til einstakra fiskiskipa til þess að fá þær felldar úr gildi eða þeim breytt. Í 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir m.a. að lögin gildi þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taki ákvarðanir um rétt eða skyldu manna en einnig kemur þar fram að þau gildi þó ekki um samningu reglugerða né annarra stjórnvaldsfyrirmæla.


Það er mat ráðuneytisins að málsástæður í stjórnsýslukæru í máli þessu varði að hluta aðeins efni reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013.


Ekki er unnt að kæra með stjórnsýslukæru til ráðuneytisins setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla, sbr. framangreint ákvæði 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ráðuneytið hafnar þegar af þeirri ástæðu kröfu kæranda um að breytt verði ákvæðum framangreindrar reglugerðar nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013. Stjórnsýslukæran beinist hins vegar jafnframt að tiltekinni ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557) en umrædd ákvörðun er kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins samkvæmt framangreindu ákvæði 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.


Með vísan til framanritaðs telur ráðuneytið ekki ástæðu til að vísa frá því kæruefni samkvæmt framangreindri stjórnsýslukæru og verður stjórnsýslukæran tekin til efnismeðferðar.


II. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 628/2012, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2012 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2012. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.


Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður hlutur þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum. Ennfremur koma fram í ákvæðinu nokkrar reglur um úthlutun byggðakvóta miðað við tiltekin skilyrði o.fl.


Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum sem víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem ráðherra setur í reglugerð, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 628/2012.


Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Sveitarfélaginu Árborg, m.a. á Eyrarbakka fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (VII) nr. 133/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 628/2012 og auglýsingu (VII) nr. 133/2013.


Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga afla sem nemi í þorskígildum talið tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað skv. 2. tölul. 1. mgr. greinarinnar og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur. Ráðherra er heimilt að víkja frá þessu skilyrði enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna.


Í 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012 er sambærilegt ákvæði og framangreint ákvæði en þar kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 afla sem nemi, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerðinni og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt. Ráðherra er heimilt að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar að víkja frá þessu skilyrði enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Einnig kemur fram í 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012 að eigandi fiskiskips skuli gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verði til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem komi fram að vinnsluaðili skuldbindi sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar.


Umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557) fylgdi ekki gildur samningur í samræmi við framangreint ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012 en samkvæmt því uppfyllti umsóknin ekki skilyrði fyrir úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda, Sænýjar ehf., um úthlutun af byggðakvóta Eyrarbakka í Sveitarfélaginu Árborg fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19 (2557).


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. mars 2013, um að hafna umsókn kæranda, Sænýjar ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 til bátsins Sleipnis ÁR-19, skipaskrárnúmer 2557.


Fyrir hönd ráðherra


Jóhann Guðmundsson.

Sigríður Norðmann.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum