Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2013 Matvælaráðuneytið

Baugás ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Elínar ÍS-76, skipaskrárnúmer 6360.

Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Valgeirs Jónassonar f.h. Baugáss ehf., Hlíðargötu 35, Þingeyri, dags. 24. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kemur fram að við úthlutun byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 hafi ekki verið úthlutað byggðakvóta til bátsins Elínar ÍS-76, skipaskrárnúmer 6360.
    Stjórnsýslukæran er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


Kröfur kæranda

    Kærandi krefst þess að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Elínar ÍS-76 (6360) í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukæru.


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 21. júní 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 22. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í byggðarlögum Ísafjarðarbæjar, m.a. á Þingeyri í Ísafjarðarbæ en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 5. júlí 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 530 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar sem skiptust á byggðarlögin Hnífsdal, 19 þorskígildistonn, Þingeyri, 85 þorskígildistonn, Flateyri, 300 þorskígildistonn, Suðureyri, 60 þorskígildistonn og Ísafjörð, 66 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi, dags. 21. desember 2011.
    Hinn 6. júlí 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Þingeyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Engin ákvörðun var send kæranda, Baugási ehf. um það efni. Ekkert kemur fram í stjórnsýslukæru um að kærandi hafi sótt um byggðakvóta fyrir bátinn Elínu ÍS-76 (6360) fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 og engin umsókn finnst á Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátsins Elínar ÍS-76 (6360). Þá verður ekki séð af gögnum málsins að Fiskistofa hafi tekið stjórnvaldsákvörðun um kröfu kæranda í málinu um að úthlutað verði byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Elínar ÍS-76 (6360).  


Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

    Með tölvubréfi frá 24. júlí 2012, tilkynnti Valgeir Jónasson f.h. Baugáss ehf. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að kærð væri til ráðuneytisins úthlutun byggðakvóta á Þingeyri í Ísafjarðarbæ sem fór fram 6. júlí 2012.
    Í bréfinu gerir kærandi grein fyrir starfsemi kæranda við veiðar og fiskverkun á Þingeyri í Ísafjarðarbæ frá árinu 2006, og að kærandi hafi á tilteknum tíma keypt bátinn Elínu ÍS-76 (6360). Þar sem báturinn hafi verið með haffærisskírteini og strandveiðileyfi hafi kærandi talið að báturinn væri með gild leyfi til veiða og ef kæmi til úthlutunar byggðakvóta þá myndi kærandi koma til með að sitja við sama borð og aðrir bátar í byggðarlaginu sem höfðu landað við sömu bryggju.
    Með bréfi, dags. 9. ágúst 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
    Í umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, segir m.a. að umsókn vegna Elínar ÍS-76 (6360) hafi ekki borist stofnuninni. Fiskistofa telji rétt að upplýsa að báturinn hafi ekki haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests. Aðili málsins hafi ekki sótt um slíkt leyfi fyrr en 22. júlí 2012, en umsóknarfrestur um byggðakvóta hafi runnið út 5. júlí 2012. Tiltekin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum.
    Með bréfi, dags. 28. september 2012, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu og veitti honum kost á að gera athugasemdir við hana. Ekkert svar barst ráðuneytinu frá kæranda vegna framangreinds bréfs.
    Með tölvubréfi frá 20. desember 2012, óskaði ráðuneytið einnig eftir tilteknum upplýsingum frá Fiskistofu og bárust upplýsingarnar með tölvubréfi sama dag.

    

Rökstuðningur

I.    Með tölvubréfi frá 24. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu sama dag, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, sbr. og forsetaúrskurður nr. 100/2012, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, og tóku úrskurðirnir gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Kæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum en þar kemur fram að ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni sé heimilt að kæra til ráðuneytisins, þ.e. nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Að mati ráðuneytisins verður að skýra ákvæðið með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Kæruheimild samkvæmt ákvæðinu byggir því að mati ráðuneytisins á því með sama hætti og gert er ráð fyrir í 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið um úthlutun aflaheimilda í byggðarlögum til einstakra fiskiskipa til þess að fá þær felldar úr gildi eða þeim breytt. Einnig byggir kæruheimild samkvæmt ákvæðinu á því að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið af stjórnvöldum, þ.e. stjórnvaldsákvarðanir samkvæmt 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en þar segir m.a.:

"Lögin gilda þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. Þau gilda þó ekki um samningu reglugerða né annarra stjórnvaldsfyrirmæla."
    
    Í stjórnsýslukæru kæranda í máli þessu eru ekki gerðar sérstakar kröfur sem lúta að ákvörðunum Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til einstakra fiskiskipa. Í umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins, dags. 3. september 2012, kemur fram að engin umsókn hafi borist stofnuninni um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Elínar ÍS-76 (6360). Þá hefur engin stjórnvaldsákvörðun verið tekin af Fiskistofu um kröfur kæranda í málinu.
    Þegar litið er til framanritaðs verður að telja að kröfur kæranda í máli þessu beinist ekki að tiltekinni stjórnvaldsákvörðun í skilningi framangreinds ákvæðis 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
    Með vísan til framanritaðs og þegar af þeirri ástæðu sem þar kemur fram er það mat ráðuneytisins að vísa beri frá stjórnsýslukæru þessari.
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður

    Stjórnsýslukæru Baugáss ehf. í máli þessu er vísað frá.

Fyrir hönd ráðherra
Ingvi Már Pálsson.

Sigríður Norðmann.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum