Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2013 Matvælaráðuneytið

Barði ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104, skipaskrárnúmer 6194.

Stjórnsýslukæra

    Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Barða ehf., Hlíðargötu 35, Þingeyri, dags. 24. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104, skipaskrárnúmer 6194.
    Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


Kröfur kæranda

    Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda, Barða ehf., um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104 (6194).


Málsatvik

    Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 21. júní 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 22. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í byggðarlögum Ísafjarðarbæjar, m.a. á Þingeyri í Ísafjarðarbæ en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 5. júlí 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 530 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar sem skiptust á byggðarlögin Hnífsdal, 19 þorskígildistonn, Þingeyri, 85 þorskígildistonn, Flateyri, 300 þorskígildistonn, Suðureyri, 60 þorskígildistonn og Ísafjörð, 66 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi, dags. 21. desember 2011.
    Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Heru ÍS-104 (6194) með umsókn til Fiskistofu, dags. 22. febrúar 2012.
    Hinn 6. júlí 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Þingeyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Ákvarðanir Fiskistofu voru byggðar á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 og auglýsingu (VI) nr. 534/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu í máli þessu, dags. 6. júlí 2012, var hafnað umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104 (6194). Í ákvörðuninni kom fram að samkvæmt staflið a 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, verði fiskiskip að hafa gilt leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests til að koma til greina við úthlutun. Skipið Hera ÍS-104 (6194) hafi ekki haft almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni síðan 16. ágúst 2010. Af framangreindu leiði að ekki komi til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.
    Þá kom fram í hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.


Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

    Með stjórnsýslukæru, dags. 24. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði Valgeir Jónasson f.h. Barða ehf. framangreinda ákvörðun Fiskistofu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
    Í bréfinu gerir kærandi grein fyrir starfsemi kæranda við veiðar og fiskverkun á Þingeyri í Ísafjarðarbæ frá árinu 2009 og að kærandi hafi á tilteknum tíma keypt bátinn Heru ÍS-104 (6194). Þar sem báturinn hafi verið með haffærisskírteini og strandveiðileyfi hafi kærandi talið að báturinn væri með gild leyfi til veiða og ef kæmi til úthlutunar byggðakvóta þá myndi kærandi koma til með að sitja við sama borð og aðrir bátar í byggðarlaginu sem höfðu landað við sömu bryggju.
    Með bréfi, dags. 25. júlí 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
    Í umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, segir m.a. að umsókn um byggðakvóta vegna bátsins Heru ÍS-104 (6194) hafi borist Fiskistofu en báturinn hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, um að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða við lok umsóknarfrests.
    Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, 2) umsókn kæranda, dags. 22. febrúar 2012, 3) auglýsing Fiskistofu, dags. 21. júní 2012, o.fl.
    Með bréfi, dags. 28. september 2012, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu og veitti honum kost á að gera athugasemdir við hana. Ekkert svar barst ráðuneytinu frá kæranda vegna framangreinds bréfs.


Rökstuðningur

I.    Með tölvubréfi frá 24. júlí 2012, sem barst ráðuneytinu sama dag, var stjórnsýslukæra í máli þessu móttekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem fór með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Með forsetaúrskurði nr. 99/2012, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti sameinuð í nýtt ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, sbr. og forsetaúrskurður nr. 100/2012, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, og tóku úrskurðirnir gildi 1. september 2012. Úrskurður í máli þessu er því kveðinn upp af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem nú fer með málefni samkvæmt lögum nr. 116/2006 og tók við eldri málum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt þeim lögum.

II.    Kæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, en samkvæmt ákvæðinu er kærufrestur í málinu tvær vikur. Kæran barst ráðuneytinu með tölvubréfi þann 24. júlí 2012, eða fjórum dögum eftir að kærufrestur vegna hinnar kærðu ákvörðunar Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, rann út samkvæmt framangreindu ákvæði.
    Það er mat ráðuneytisins að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gildi einnig um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eru m.a. ákvæði um hvernig eigi að fara með þegar kæra berst að liðnum kærufresti. Þar segir að hafi kæra borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá, nema: 1) afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða 2) veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.
    Ákvörðun Fiskistofu í máli þessu var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 6. júlí 2012. Stjórnsýslukæra í máli þessu barst ráðuneytinu hins vegar með tölvubréfi þann 24. júlí 2012, eða fjórum dögum eftir að kærufrestur rann út samkvæmt 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006. Ekki hafa komið fram skýringar af hálfu kæranda um ástæður þess að kæran barst ekki innan kærufrests samkvæmt framangreindu ákvæði.
    Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að vísa beri frá stjórnsýslukæru í máli þessu.
    Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.


Úrskurður

    Stjórnsýslukæru Barða ehf. í máli þessu er vísað frá.


Fyrir hönd ráðherra
Ingvi Már Pálsson.
Sigríður Norðmann.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum