Hoppa yfir valmynd
6. október 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 139/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 6. október 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 139/2015

í stjórnsýslumáli nr. KNU15080004

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 5. ágúst 2015 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júní 2015, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002 og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.


II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 16. apríl 2015. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 21. apríl sl., kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Írlandi, Íslandi, í Noregi og Svíþjóð. Þann 15. maí 2015 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. 1. mgr. 18. gr. reglugerðar evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 20. maí sl. barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 5. mgr. 20. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 9. júní 2015 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 5. ágúst sl. til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 28. ágúst 2015. Greinargerð kæranda barst kærunefndinni 31. ágúst 2015. Þann 16. september sl. kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.


III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi sótti fyrst um hæli á Íslandi 19. nóvember 2008. Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar, sem var staðfest af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, var sú að taka mál hans ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Noregs. Kærandi sótti aftur um hæli hér á landi 25. janúar 2013. Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í það skiptið var sú sama að öðru leyti en því að Svíþjóð var þá ábyrgt fyrir hælisumsókn kæranda samkvæmt ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar. Sú ákvörðun var staðfest með úrskurði innanríkisráðuneytisins og síðar í dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-2763/2014, sem kveðinn var upp 3. febrúar 2015. Kærandi var fluttur til Svíþjóðar 1. apríl 2015.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar, dags. 9. júní 2015, var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

Varðandi andmæli kæranda kom fram að hann gæti leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda þar í landi og óskað eftir aðstoð. Útlendingastofnun lagði áherslu á að kærandi  hafi í tvígang sótt um hæli hér á landi og í síðara skiptið hafi ákvörðun stofnunarinnar um að synja honum um efnismeðferð verið staðfest bæði af innanríkisráðuneytinu og héraðsdómi Reykjavíkur. Ekkert hafi komið fram í málinu sem gefi ástæðu til þess að breyta þeirri niðurstöðu, en kærandi hafi dvalið í Svíþjóð í tvær vikur áður en hann kom aftur til Íslands.


IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri í lífshættu í Svíþjóð en útsendarar […] hafi stungið hann í bakið með hnífi þegar hann mætti þeim á lestarstöð í Svíþjóð fljótlega eftir komu hans frá Íslandi í apríl sl. Þeir hafi hótað honum því að illa myndi fara fyrir honum léti hann ekki af […]. Hótanir hafi haldið áfram gegnum síma eftir það. Kærandi kveðst hafa kært hnífstunguna til lögreglu og leitað aðstoðar læknis. Kærandi kveðst aðhyllast […] og að […], en auk þess kveðst kærandi hafa […].

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við að Útlendingastofnun hafi lagt áherslu á að kærandi hafi tvívegis áður sótt um hæli á Íslandi og verið hafnað í bæði skiptin, og að ekkert hafi komið fram í málinu sem breyti þeirri niðurstöðu en kærandi hafi dvalið í um tvær vikur í Svíþjóð áður en hann kom aftur til Íslands. Kærandi telji sér ekki vært í Svíþjóð vegna atvika sem áttu sér stað eftir að kærandi var sendur frá Íslandi til Svíþjóðar. Atvik sem áttu sér stað fyrir 1. apríl sl., þegar kærandi var endursendur til Svíþjóðar, hafi enga þýðingu við ákvörðun um hælisbeiðni hans sem lögð var fram þann 16. apríl sl.


V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 5. mgr. 20. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Svíþjóðar. Úrlausnarefni málsins er afmarkað við það hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og skuli taka hana til efnislegrar meðferðar.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má einnig ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir skýrslur um aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð, sbr. Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees for the Offive of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report: Universal Periodic Review: Sweden (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júní 2014); Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2015); Sweden 2014 Human Rights Report (United States Department of State, 25. júní 2015) og Good Advice for Asylum Seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Groups, 2011).

Athugun kærunefndarinnar á aðstæðum hælisleitenda í Svíþjóð hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda í Svíþjóð séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga  eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur kynnt sér má ráða að kærandi getur leitað sér aðstoðar lögregluyfirvalda í Svíþjóð óttist hann að á honum verði brotið. Fær það meðal annars stoð í frásögn kæranda í viðtali hjá kærunefnd útlendingamála þar sem hann sagðist hafa leitað til lögreglu í Svíþjóð vegna hnífsstunguárásar og að lögreglan hafi tekið skýrslu og sagst ætla að leita að þeim sem réðust á kæranda.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. júní 2015 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna.

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

  Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

  

Anna Valbjörg Ólafsdóttir                                                                                             Oddný Mjöll Arnardóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum