Hoppa yfir valmynd
11. júní 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 78/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júní 2015 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 78/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15020020

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar


 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 16. febrúar 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2015, um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.


II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 17. nóvember 2014 hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi var boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 14. janúar 2015 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 21. janúar s.á., synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um hæli ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 16. febrúar 2015, ásamt því að óska eftir að réttaráhrifum ákvörðunarinnar yrði frestað. Með bréfi dags. 4. mars 2015 féllst kærunefnd útlendingamála á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa.

Þann 13. maí 2015 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.


III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun byggði kærandi kröfu sína um hæli hér á landi á því að hann sé á flótta frá […]vegna ótta um líf sitt vegna hótana […].

Í umfjöllun Útlendingastofnunar um […]. Var það og mat Útlendingastofnunar að kærandi ætti raunhæfa möguleika á að leita verndar hjá […] yfirvöldum ef hann teldi lífi sínu ógnað.

Útlendingastofnun taldi að frásögn kæranda gæfi ekki tilefni til þess að ætla að aðstæður hans væru með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga eða að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a sömu laga væri að ræða enda hafi umsækjandi sjálfur ekki orðið fyrir áreiti og einungis borist […]. Útlendingastofnun taldi ástæður hinna meintu ofsókna er kærandi nefndi ekki verða raktar til þeirra atriða er greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Jafnframt taldi Útlendingastofnun aðstæður kæranda ekki vera með þeim hætti sem greinir í 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Þótti stofnuninni ljóst að kærandi gæti fengið viðhlítandi aðstoð yfirvalda í heimalandi sínu.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f taldi Útlendingastofnun kæranda ekki í þeirri aðstöðu í […] að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, eða að félagslegar aðstæður hans í heimalandi séu slíkar að þær réttlæti veitingu dvalarleyfis með vísan til mannúðarsjónarmiða. Þá taldi stofnunin hann ekki hafa nein sérstök tengsl við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c.-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun ákvað að kæra frestaði ekki réttaráhrifum með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.


IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í […]. Kveðst kærandi vera að flýja […]. Kveðst kærandi því ekki hafa átt annarra úrkosta en að flýja. […]. Staðfestingin og lausleg þýðing hennar liggja fyrir í gögnum málsins.

Í greinargerð segir að Útlendingastofnun hafi fjallað sérstaklega um það í ákvörðun sinni að ekki sé um að ræða […]. Því verði ekki annað séð en að skilyrðinu um ofsóknir sé fullnægt þar sem lífi og frelsi kæranda var ógnað.

Í greinagerð er ennfremur byggt á því að kærandi […] teljist vera aðilar tiltekins þjóðfélagshóps skv. flóttamannasamningnum og er vísað í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna […] því til stuðnings. Þá segir að skv. 33. gr. flóttamannasamningsins þá teljist það ávallt ofsóknir sé lífi eða frelsi ógnað vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða fyrir að tilheyra ákveðnum þjóðfélagshópi. Með hliðsjón af ofangreindu leiki enginn vafi á því að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga sé að ræða, þar sem lífi og frelsi kæranda var ógnað með þeim hótunum sem hann hefur lýst.

Í greinargerð segir ennfremur að þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda í […] til framfara á síðustu árum þá sé […] fátækt land þar sem ríki mikil spilling, m.a. í veikburða réttarkerfi landsins. Lýsir kærandi miklu vantrausti á vilja og getu stjórnvalda til að veita honum vernd gegn þeim sem ofsækja hann. Ekki sé hægt að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda og hlotið þar fullnægjandi vernd eingöngu á grundvelli þess að refsirammi brota […] hafi verið hækkaður sem og að gefnar hafi verið út nýjar leiðbeiningarreglur til lögreglu og saksóknara þegar enn ríki mikil spilling í réttarkerfinu sjálfu. Því er þess krafist að kæranda verði veitt staða flóttamanns á grundvelli A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Varðandi flutning innanlands segir kærandi að það sé ógerlegt. […]. Kærandi kveður að það muni fréttast fljótt ef hann myndi flytja sig og hann myndi finnast. Kærandi segir mikilvægt að hafa þetta í huga þegar aðstæður hans eru metnar í tengslum við möguleika til flutnings innanlands.

Varðandi varakröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga segir að skilyrði þess ákvæðis séu uppfyllt þar sem að ljóst sé að stjórnvöld í […], fyrst og fremst lögreglan, vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.


VI.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar […]

[…] er lýðræðisríki með um […] milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […] gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Landið gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna […] 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi […] 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu […] 1994.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað skýrslu […] skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindi í […] ([…] 2013 Human Rights Report. United States Department of State, 27. febrúar 2014), […].

Í ofangreindum gögnum kemur fram að […].

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í hættu […] í heimalandi hans. Kærandi segir […] yfirvöld hvorki vilja né geta veitt honum fullnægjandi vernd.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á hæfilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli slíkar ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í […]. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verður yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærunefndin fellst á það sjónarmið kæranda að meðlimir fjölskyldu […] geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a. Sá skilningur er í samræmi við leiðbeiningar frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna […].

Kærunefndin hefur efasemdir um að […].

Kærandi kveður enga aðstoð að fá frá lögreglu og yfirvöldum í […] og að hann hafi enga trú á getu og vilja þeirra til að vernda hann. Sú staðhæfing fær lítinn sem engan stuðning í þeim gögnum sem kærunefndin hefur skoðað við meðferð málsins en samkvæmt þeim virðast lögregla og yfirvöld í […].

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Almennt ferðafrelsi gildir að […] lögum og hafa stjórnvöld almennt virt þann rétt fólks. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna átt samstarf við […] stjórnvöld að málefnum flóttamanna og einstaklinga sem snúa aftur til landsins ([…] 2013 Human Rights Report. U.S. Department of State, 27. júlí 2014). Er það því mat kærunefndar að þó svo fallist væri á að kærandi ætti í […] heimalandi sínu þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar og að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í ákvæðinu er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingu á lögum um útlendinga. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna. Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt hæli hér á landi hafnað.

b. Varakrafa kæranda

Til vara krefst kærandi að sér verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd eins og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Þá tekur kærunefndin jafnframt undir niðurstöðu Útlendingastofnunar um að kærandi uppfylli ekki skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á landinu í skamman tíma í tengslum við hælisbeiðni sína.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 21. janúar 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin

  

Úrskurðarorð

 Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2015, í máli […], er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision, of 21 January 2015, in the case of […], is affirmed.

  

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

  

Anna Valbjörg Ólafsdóttir                                                                          Oddný Mjöll Arnardóttir  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum