Hoppa yfir valmynd
29. maí 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 65/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. maí 2015 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 65/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15010087


Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 5. desember 2014, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. desember 2014, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests skv. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 26. september hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi var boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun 28. október 2014 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun dags. 3. desember s.á. synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um hæli ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun við birtingu og óskaði hann jafnframt eftir frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar. Þann 10. desember 2014 barst innanríkisráðuneytinu tilkynning Útlendingastofnunar um kæru á ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Með bréfi, dags. 22. desember 2014, féllst innanríkisráðuneytið á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa.

Þann 1. janúar 2015 tók kærunefnd útlendingamála til starfa, sbr. 3. gr. laga nr. 96/2002, með síðari breytingum. Allar kærur á ákvörðunum Útlendingastofnunar, sem enn biðu afgreiðslu hjá innanríkisráðuneytinu þann 1. janúar sl. og heyra til þeirra ákvarðana sem heimilt er að kæra til kærunefndar útlendingamála, verða afgreiddar hjá kærunefndinni, sem fer nú með úrskurðarvald í samræmi við 3. gr. a og 3. gr. b laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. gr. laga nr. 64/2014. Þegar kærunefndin tók til starfa hafði innanríkisráðuneytið ekki úrskurðað í máli kæranda og mun kærunefndin því úrskurða í máli þessu.

Með bréfi dags. 21. janúar 2015 var löglærðum talsmanni kæranda veittur frestur til að leggja fram greinargerð í tilefni kærumálsins. Þann 10. febrúar 2015 barst kærunefnd útlendingamála greinargerð kæranda. Þann 13. febrúar s.á. bárust viðbótar athugasemdir við greinargerð kæranda.

Þann 29. apríl 2015 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og greindi nefndinni frá máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun byggði kærandi kröfu sína um hæli hér á landi á því að hann sé á flótta […]. Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda um flest trúverðuga en þótti það draga úr trúverðugleika hennar að kærandi lagði ekki fram nein gögn sem stutt gætu frásögn hans, s.s. lögregluskýrslur eða önnur gögn […]. […].

Í umfjöllun Útlendingastofnunar um […] Þótti sýnt að kærandi hafi ekki reynt til hlítar að leita sér þeirrar aðstoðar sem í boði sé […] og ekkert í gögnum málsins sýndi fram á vanhæfi […] yfirvalda til að vernda kæranda gegn meintum ofsóknum þar í landi. Kærandi hafði hvorki leitað til lögreglu vegna […].

Var það því mat Útlendingastofnunar að frásögn kæranda gæfi ekki tilefni til þess að ætla að aðstæður hans væru með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga eða að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a sömu laga væri að ræða enda aðeins um að ræða afmörkuð tilvik þar sem kærandi kveðst hafa verið hótað. Taldi Útlendingastofnun ástæður hinna meintu ofsókna er kærandi nefndi ekki verða raktar til þeirra atriða er greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Stofnunin taldi ennfremur aðstæður kæranda ekki slíkar sem greinir í 2. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem að ljóst væri að kærandi gæti fengið viðhlítandi aðstoð yfirvalda í heimalandi sínu.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f greinir í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærandi sé í þeirri aðstöðu í […] að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Því þótti ekki ástæða til að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hans við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun ákvað að kæra myndi ekki fresta framkvæmd ákvörðunar sinnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi kveðst vera frá […].

Í greinargerð segir að kærandi og fjölskylda hans teljist vera aðilar tiltekins þjóðfélagshóps skv. flóttamannasamningnum og er vísað í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna […] því til stuðnings. Ennfremur segir að skv. 33. gr. flóttamannasamningsins þá teljist það ávallt ofsóknir sé lífi eða frelsi ógnað vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða vegna aðildar að ákveðnum þjóðfélagshópi. Með hliðsjón af ofangreindu sé það engum vafa undirorpið að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga sé að ræða, þar sem lífi og frelsi kæranda hafi verið ógnað með þeim hótunum sem lýst hefur verið.

Í greinargerð kæranda segir ennfremur að þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda í […] til framfara á síðustu árum þá sé […] fátækt land þar sem ríki mikil spilling, m.a. í veikburða réttarkerfi landsins. Lýsir kærandi miklu vantrausti á vilja og getu stjórnvalda til að veita honum vernd gegn þeim sem ofsækja hann. Ástæða þess að kærandi leitaði ekki til lögreglu sé sú að lögreglan gæti ekki verndað hann og að henni væri sama um fólk […]. […]. Ekki sé hægt að ætlast til þess að fjölskyldan geti leitað ásjár […] yfirvalda og hlotið þar fullnægjandi vernd eingöngu á grundvelli þess að refsirammi brota […] hafi verið hækkaður sem og að gefnar hafi verið út nýjar leiðbeiningarreglur til lögreglu og saksóknara þegar enn ríki mikil spilling í réttarkerfinu sjálfu. Því er þess krafist að kæranda verði veitt staða flóttamanns á grundvelli A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Varðandi varakröfu sína um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga segir kærandi að skilyrði þess ákvæðis séu uppfyllt þar sem að ljóst sé að stjórnvöld í […], fyrst og fremst lögreglan, vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Varðandi flutning innanlands segir kærandi að […]. Af þeirri ástæðu sé ekki hægt að ætlast til þess af sanngirni að hann geti verið óhultur fyrir þeim sem hóta honum flytji hann sig um set. Kærandi segir mikilvægt að hafa þetta í huga þegar aðstæður hans eru metnar í tengslum við möguleika til flutnings innanlands.

[…]

VI.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

1. Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

2. Niðurstaða

Svo sem fram hefur komið krefst kærandi þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna. Til vara krefst kærandi þess að sér verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar […]

[…] er lýðræðisríki með um […] milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […] gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Landið gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna […] 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi […] 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu […] 1994.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað skýrslu […] skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindi í […] ([…] 2013 Human Rights Report. United States Department of State, 27. febrúar 2014), […].

Í ofangreindum gögnum kemur fram að […].

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. og 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir flóttamannasamninginn eða 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í […] heimalandi sínu. Kærandi segir […] albönsk yfirvöld hvorki vilja né geta veitt honum fullnægjandi vernd.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur, á hæfilega skýran hátt, sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir eru sem kalla á alþjóðlega vernd og hvaða aðilar geta verið valdir að ofsóknum. Í ákvæðinu er hins vegar ekki um tæmandi talningu að ræða að því er varðar grundvöll ofsókna eins og orðalag greinarinnar ber með sér. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í […]. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamanna­stofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verður yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærunefndin fellst á það sjónarmið kæranda að meðlimir fjölskyldu […] geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a. Sá skilningur er í samræmi við leiðbeiningar frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna […].

Kærunefndin telur að […]. Ennfremur hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hans af atburðum eða þeirri atburðarás sem hann hefur lýst í gögnum málsins og fyrir kærunefndinni.

Kærandi hefur staðhæft að enga aðstoð sé að fá frá lögreglu og yfirvöldum í […] og hann hafi enga trú á getu og vilja þeirra til að vernda hann. Sú staðhæfing fær lítinn sem engan stuðning í þeim gögnum sem kærunefndin hefur skoðað við meðferð málsins en samkvæmt þeim virðast lögregla og yfirvöld í […].

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Almennt ferðafrelsi gildir að […] lögum og hafa stjórnvöld almennt virt þann rétt fólks. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna átt samstarf við […] stjórnvöld um málefni flóttamanna og einstaklinga sem snúa aftur til landsins ([…] 2013 Human Rights Report. U.S. Department of State, 27. júlí 2014). Er það því mat kærunefndar að þó svo fallist væri á að kærandi ætti […] í heimalandi sínu þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi og að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöldum skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í ákvæðinu er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingu á lögum um útlendinga. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki með þeim hætti að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna. Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt hæli hér á landi hafnað.

b. Varakrafa kæranda

Til vara krefst kærandi að sér verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi.

[…]

 Niðurstaða

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 3. desember 2014.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin

 

 

Úrskurðarorð

 Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. desember 2014, í máli […], er staðfest.

 The Directorate of Immigration‘s decision, dated 3 December 2014, in the case of […], is affirmed.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður


Oddný Mjöll Arnardóttir                                                                                                    Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum