Hoppa yfir valmynd
24. júní 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 82/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 24. júní 2015 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 82/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15020018


 Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 


I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 16. febrúar 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. janúar 2015, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 26. október 2014 hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi var boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun 14. janúar 2015 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 30. janúar 2015, synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um hæli ásamt því að kæranda var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála við birtingu, þann 16. febrúar s.á., jafnframt óskaði hann eftir frestun réttaráhrifa ákvörðunar Útlendingastofnunar. Þann 18. febrúar 2015 barst kærunefnd útlendingamála tilkynning Útlendingastofnunar um kæru á ákvörðunum stofnunarinnar í máli kæranda. Með bréfi, dags. 4. mars 2015, féllst kærunefndin á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa.

Með tölvupósti, dags. 18. febrúar 2015, var löglærðum talsmanni kæranda veittur frestur til að leggja fram greinargerð í tilefni kærumálsins. Þann 10. mars 2015 barst kærunefnd útlendingamála greinargerð kæranda.

Þann 11. júní 2015 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun byggði kærandi kröfu sína um hæli hér á landi á því að hann sé á flótta frá [...] vegna ótta um líf sitt eftir að honum var hótað af mafíunni í kjölfar viðskipta hans við hana. Kærandi kvaðst hafa leitað til lögreglu vegna hótananna en lögregla hefði ráðlagt honum að leita sátta sjálfur. Útlendingastofnun taldi framburð kæranda að mestu leyti trúverðugan en þó ekki í fullu samræmi við þau gögn sem hann lagði fram. Einnig var ósamræmi í framburði kæranda um það hvernig honum bárust hótanirnar og hvar þeir einstaklingar voru sem hótuðu honum, sem og varðandi meinta handhöfn einkaleyfis í viðskiptum með tiltekinn […].

Útlendingastofnun fjallaði um skipulagða glæpastarfsemi í heimalandi kæranda og aðgerðir stjórnvalda í þeim málum. Í ákvörðun stofnunarinnar greinir að skipulögð glæpastarfsemi sé mikil í [...] en sú starfsemi sé að mestu staðbundin í […] héraði […] í [...] og tengist sjaldnast hinu venjulega samfélagi eða hafi áhrif á það. Þá fjallaði Útlendingastofnun um spillingu meðal embættis- og stjórnmálamanna í [...] sem sé til staðar og aðgerðir sem í gangi eru í landinu til að uppræta hana.

Útlendingastofnun taldi ástæður hinna meintu ofsókna er kærandi nefndi ekki verða raktar til þeirra atriða er greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga og að allar upplýsingar bentu til þess að stjórnvöld og löggæsla í [...] væru í stakk búin til að veita umsækjanda viðeigandi vernd. Var það því mat stofnunarinnar að aðstæður kæranda félli hvorki undir ákvæði 1. né 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f segir í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærandi sé í þeirri aðstöðu í [...] að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, eða að aðstæður í heimalandi hans séu að öðru leyti slíkar að þær réttlæti veitingu dvalarleyfis með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hans við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun ákvað að kæra frestaði ekki framkvæmd ákvörðunar hennar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kveðst hann vera að flýja heimaland sitt vegna morðhótana frá glæpasamtökum í [...]. Kærandi er fæddur og uppalinn í […] og segist hafa rekið sitt eigið fyrirtæki þar í borg frá því í […]. Kærandi kveðst hafa keypt einkaleyfi fyrir sölu […] af gjaldþrota fyrirtæki. Eftir að kærandi hafði selt […] í einhvern tíma og salan hafði gengið vel þá kveður kærandi að fyrri eigendur hafi hótað honum öllu illu ef hann léti ekki af sölu […] þar sem leyfið væri þeirra. Nafngreindi hann […] sérstaklega í því sambandi. Í lögregluskýrslu kemur hins vegar fram að fyrrverandi handhafar einkaleyfisins séu áðurnefndur […]. Í greinargerð kveðst kærandi hafa leitað eftir staðfestingu á rétti sínum sem söluaðili […] frá framleiðanda hans og í kjölfarið hafi hann einnig leitað til lögregluyfirvalda vegna hótananna. Kærandi kveðst hins vegar enga aðstoð hafa fengið hjá lögreglu heldur hafi hún sagt honum að semja sjálfum um frið og vera ekki að blanda lögreglunni í málið.

Eftir þetta hafi ástandið versnað að sögn kæranda. Kveðst kærandi hafa fengið […]. Einnig hafi systur hans borist símtal þar sem kæranda var óbeint hótað lífláti. Kærandi kveðst í kjölfarið hafa ráðið sér einkalífvörð og sett upp öryggismyndavélar. Síðar hafi aðilarnir komið heim til kæranda og hótað honum og hafi […] m.a. sparkað í hann. Að sögn kæranda hafði honum og móður hans einnig verið hótað á samfélagsmiðlinum Facebook. Einnig hafi móðir kæranda […]. Kærandi kveðst hafa leitað til lögreglu með myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavélinni og hafi […] verið handtekin í kjölfarið og að sögn kæranda var dæmt í málinu. […]

Kærandi kveðst óttast um líf sitt en samkvæmt fjölmiðlum og upplýsingum sem kærandi hafði fengið séu aðilarnir sem hóta honum, […], þekkt fyrir ofbeldisverk og hafi […] verið tengdur mafíunni. Kærandi kvað ekki mögulegt fyrir sig að flytja sig um set innan [...] þar sem þau hefðu sterk tengsl um allt landið.

Í greinargerð kæranda kemur fram að skipulögð glæpastarfsemi sé mikil í [...] þar sem [...] mafían sé áhrifamikil. Í greinargerð er vísað til skýrslu um viðskipti, spillingu og glæpi í [...] ([...]  UNODC, 2013) þar sem kemur fram að spilling og aðrir glæpir standi viðskiptalífi [...] fyrir þrifum og hafi neikvæði áhrif á fjárfestingu einkaaðila. Einnig segir í greinargerð að stjórnvöld í landinu séu ófær um að veita kæranda vernd vegna tengsla þeirra sem hóta honum við háttsetta aðila í [...] og eins sé mikil spilling innan réttarkerfisins þar. Sú spilling birtist meðal annars í lögregluofbeldi, mútuþægni og mismunun í málsmeðferð almennra borgara hjá lögreglu og dómstólum. Það sé því til lítils að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár [...] stjórnvalda og fengið þar fullnægjandi vernd þar sem öll gögn bendi til þess að spilling, mútuþægni, skortur á gagnsæi og skipulögð glæpastarfsemi séu landlægt vandamál sem veikt réttar- og löggæslukerfi [...] sé á engan hátt í stakk búið til að takast á við.

Kveðst kærandi hafa leitað aðstoðar lögreglu í [...] en sú aðstoð hafi verið takmörkuð. Í greinargerð er því haldið fram að [...] stjórnvöld hafi með athöfnum og athafnaleysi sínu brugðist jákvæðum skyldum sínum skv. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. dóm Mannréttindasdómstóls Evrópu í máli Beganovic gegn Króatíu (nr. 46423/06). Er ennfremur byggt á því að með endursendingu kæranda til [...] verði brotið gegn meginreglu þjóðarréttar um non-refoulement auk þess sem slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins.

Varðandi varakröfu kæranda segir í greinargerð að í athugasemdum frumvarps til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, komi fram að með íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veita ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af þessu og því sem kærandi hefur greint frá sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 12. gr. f útlendingalaga, þar sem [...] stjórnvöld annað hvort vilja ekki eða geta ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum, og því beri að veita kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Kærandi kveður ekki mögulegt fyrir sig að flytja sig um set innan [...] þar sem […] hafi sterk tengsl um allt landið. Ennfremur er ítrekað í greinargerð kæranda að í skýrslu bresku landamærastofnunarinnar frá 2013 greini að flutningur fórnarlamba [...] innan [...] geti veitt nægjanlega vernd en það velti á áhrifum og útbreiðslu þess hóps sem hefndarinnar leitar.

Með greinagerð kæranda fylgdu skýrslur kæranda og systur hans sem þau gáfu hjá lögreglu í [...] […] og þýðing þeirra, upplýsingar um fyrirtæki kæranda […].

V.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar og [...]

[...] er lýðræðisríki með um 3 milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. [...] gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Landið gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna [...] 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi [...] 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu [...] 1994.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað skýrslu [...] um ástæður hælisumsókna [...] ríkisborgara í Schengenríkjunum ([...]).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að [...] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið, frelsi og öryggi. Sérstaklega höfðu orðið framfarir hvað varðar landamæravörslu, samvinnu í dómskerfinu og í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þrátt fyrir að enn sé mikið verk fyrir höndum til þess að stjórnvöldum takist að uppræta skipulagða glæpastarfsemi í [...] þá séu þeir sem leiti aðstoðar lögreglu í slíkum málum almennt sáttir við vinnubrögð hennar og almenningur ber mikið traust til ríkislögreglunnar.

a. Krafa um hæli

Kærandi óskaði eftir því við komuna til landsins að honum yrði veitt réttarstaða flóttamanns. Með áritun sinni á birtingarvottorð, dags. 16. febrúar 2015, kærði kærandi þá ákvörðun Útlendingastofnunar að synja honum um hæli skv. 44. gr. útlendingalaga. Því telur kærunefndin rétt að fjalla um kröfu kæranda á grundvelli 44. gr. útlendingalaga í heild sinni, þrátt fyrir að í greinargerð kæranda sé aðeins gerð krafa um viðbótarvernd skv. 2. mgr. 44. gr. þeirra laga.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í hættu í heimalandi sínu. Kærandi segir [...] yfirvöld hvorki vilja né geta veitt honum fullnægjandi vernd.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á hæfilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í [...]. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að góðar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærandi hefur staðhæft að hann sé í lífshættu vegna hótana aðila sem að hans sögn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í heimalandi hans. Kveður hann þá aðila sem hótuðu honum vilja fá fyrirtæki hans og einkaleyfi sem hann kveðst eiga tilkall til. Kærandi hefur því ekki borið fyrir sig ofsóknir af ástæðum sem taldar eru upp í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, þ.e. á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

b. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess í greinargerð að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í ákvæðinu er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingar á útlendingalögum. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu opinberir starfsmenn. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að góðar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita fullnægjandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi í málum nr. 38851/09 og 39128/09).

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið kemur fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur eitthvað áunnist í þeirri vinnu sérstaklega hvað varðaði baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi í landinu. Í skýrslu stofnunar Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og glæpi ([...] UNODC 2013) er fjallað um áhrif spillingar og skipulagðrar glæpastarfsemi á viðskiptalíf [...]. Þar kemur m.a. fram að eigendur fyrirtækja í landinu sem brotið er á leita flestir til lögreglu vegna þeirra brota og um það bil helmingur þeirra sem leituðu til lögreglu voru sáttir við vinnubrögð lögreglu. Í frásögn kæranda kemur fram að lögreglan hafi rannsakað hin meintu brot þeirra aðila sem hótuðu honum og að sögn kæranda handtekið einn þeirra. Því er ljóst að lögreglan er virk í [...] og getur veitt kæranda vernd.

Er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar og að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin hvorki að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna, né að endursending hans þangað geti brotið í bága við 45. gr. laganna. Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi hafnað.

c. Varakrafa kæranda

Samkvæmt 12. gr. f útlendingalaga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisbeiðni sína og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 30. janúar 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. janúar 2015, í máli […] er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision, of 30 January 2015, in the case of […], is affirmed.


Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

 

 Anna Valbjörg Ólafsdóttir                                                                                                    Oddný Mjöll Arnardóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum