Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Úrskurður nr. 5/2016

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

NR. 5/2016


Ár 2016, föstudaginn 8. janúar, er tekið fyrir mál nr. 646/2015; A, dags. 4. desember 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :

 

I.

 

Málavextir eru þeir að kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þann 8. júní 2014. Kæranda var ákvörðuð 870.663 kr. sem leiðréttingarfjárhæð og birt ákvörðun um ráðstöfun hennar 23. desember 2014.

Með erindi umboðsmanns kæranda til ríkisskattstjóra, dags. 25. febrúar 2015, gerði kærandi athugasemd við útreikning leiðréttingarfjárhæðar, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 35/2014 um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar kom fram að kærandi hefði skilið að borði og sæng á árinu 2009, fasteignin að M-götu væri séreign hans og hann hefði staðið einn að skuldbindingum veðlána sem hvíldu á þeirri eign. Meðfylgjandi var óundirritaður kaupmáli, dags. 27. mars 2002. Í ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 2. desember 2015, var kæranda bent á að ekki skipti máli hvort hjóna væri skráð fyrir lánum sem hvíldu á sameiginlegu heimili hjóna. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands hefði kærandi verið skráður í hjúskap frá 28. mars 2002 til 22. maí 2009. Að mati ríkisskattstjóra ætti því fyrrverandi maki kæranda sjálfstæðan rétt á hluta leiðréttingar lánanna sem um ræddi, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014. Kæranda var sérstaklega bent á að kaupmáli gæti engu breytt þar um.

Með kæru til úrskurðarnefndar, dags. 4. desember 2015, sbr. rökstuðning umboðsmanns kæranda sem dagsettur er sama dag og var áframsendur frá ríkisskattstjóra, krefst kærandi þess að útreikningur á leiðréttingarfjárhæð hans verði miðaður við það þegar hann sleit samvistir og þar með fjárfélagi við fyrrverandi eiginkonu sína í maí 2008. Byggt er á því að réttaráhrif leiðréttingar miðist við slit á fjárfélagi en ekki lögskilnað. Í kæru kom fram að lögskilnaður hefði gengið í gegn árið 2009 án undangengis skilnaðar að borði og sæng.

Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 18. desember 2015, óskaði nefndin eftir því að kærandi upplýsti nefndina um misræmi milli skráningar í Þjóðskrá Íslands og þess sem fram kæmi í kæru. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands hafi kærandi skilið að borði og sæng í maí 2009 og lögskilnaður væri skráður þann 19. janúar 2010. Engin svör bárust frá kæranda.

Með erindi úrskurðarnefndar til ríkisskattstjóra, dags. 18. desember 2015, var óskað eftir umsögn embættisins um hvers vegna útreikningar á leiðréttingarfjárhæð kæranda miðaðist við 50% tilkall á tímabilinu frá 22. maí 2009 til 31. desember 2009 í kjölfar skilnaðar að borði og sæng, sbr. 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014. Í umsögn ríkisskattstjóra, dags. 29. desember 2015, kemur fram að kærandi hafi aðeins talið fram helming lánsins á móti fyrrverandi maka, þ.e. láninu hefði verið skipt til helminga á milli framtala þeirra. Þar sem engin gögn hefðu verið lögð fram um yfirtöku kæranda á láninu við skilnað hefði lánið verið lagt til grundvallar útreiknings til helminga til loka árs 2009.

 

II.

 

Ágreiningsefni máls þessa snýr að fjárhæð leiðréttingar. Samkvæmt forsendum ríkisskattstjóra var kærandi á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2008 í hjúskap með B. Á tímabilinu frá 1. janúar 2009 til 31. desember 2009 hafi hlutfall skuldar kæranda í láni sjóðs X nr. 1 verið 50%. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands var kærandi í hjúskap í upphafi leiðréttingartímabils, þ.e. frá 1. janúar 2008, þar til hann skildi að borði og sæng þann 22. maí 2009. Fjárhæð leiðréttingar fyrrverandi eiginkonu kæranda er ekki til umfjöllunar í máli þessu.

Ljóst er að leiðrétting kæranda miðast við að tilkall hans til leiðréttingar lána hafi verið 50% vegna hjúskapar og hlutfalls kæranda í skuld eftir skilnað að borði og sæng eða 1.044.894 kr. Frá þeirri fjárhæð dragast frádráttarliðir, sbr. 8. gr. laga nr. 35/2014, samtals að fjárhæð 174.231 kr. Nánar tiltekið er um að ræða sérstaka vaxtaniðurgreiðslu. Ákvörðuð leiðréttingarfjárhæð kæranda er því 870.663 kr.

Í 3. gr. laga nr. 35/2014 er fjallað um afmörkun leiðréttingar samkvæmt lögunum. Þar segir í 2. mgr. að leiðrétting samkvæmt lögunum taki til heimila, þ.e. einstaklinga, hjóna og sambýlisfólks sem uppfyllti skilyrði til samsköttunar innan leiðréttingartímabils skv. 1. mgr. Taki leiðrétting til áhvílandi lána á sameiginlegu heimili hjóna eða sambýlisfólks, óháð því hvor aðilinn var skráður fyrir lánunum á tímabilinu. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 segir að leiðrétting einstaklings og hámark hennar ráðist af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í athugasemdum við 3. gr. frumvarps, er varð að lögum nr. 35/2014, kemur fram að afmörkun og þar með tilkall til leiðréttingar byggist á nokkrum þáttum. Síðan segir: „Í fyrsta lagi afmarkast leiðrétting við ákveðið tímabil, í öðru lagi þarf að hafa verið áhvílandi verðtryggt lán á heimili á sama tímabili, í þriðja lagi er það skilyrði að vaxtagjöld af lánunum hafi verið viðurkennd sem grundvöllur útreiknings vaxtabóta. Síðastgreinda atriðið felur nánar í sér kröfu um að til lána hafi verið stofnað vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þ.e. til heimilishalds viðkomandi, en hvorki til útleigu, né annarra nota eða sem fjárfesting einvörðungu. Réttur til vaxtabóta hefur þannig víðtæka skírskotun í þessu sambandi því annars vegar er um að ræða staðfestingu á nýtingu láns og hins vegar afmörkun á rétti til annars vegar vaxtabóta við einstaklinga og hins vegar hjóna og sambúðarfólks óháð því hver skráður er fyrir láni á þeim tíma sem um sameiginlegt heimilishald var að ræða. Á þessum forsendum er litið svo á að tilkall til leiðréttingar vegna lána til öflunar húsnæðis til sameiginlegs heimilishalds eigi jafnt við um hjón og einstaklinga sem höfðu sambærilega fjárhagslega samstöðu vegna sambúðar óháð því hvort viðkomandi var formlega skráður fyrir lánum á því tímabili sem leiðréttingu er ætlað að taka til. Réttur eða tilkall til leiðréttingar kann þannig að ráðast af hjúskaparstöðu á tímabilinu eða innan áranna 2008–2009. Skilnaður hjóna eða samvistarslit hefur þannig ekki í för með sér brottfall réttar til leiðréttingar, enda ræðst útreikningur leiðréttingar skv. 7. gr. af stöðu lána sem hvíldu á hverjum tíma á sameiginlegu heimili á tímabilinu.“

Nánar er fjallað um útreikning leiðréttingar og ráðstöfun í 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar segir í 3. mgr. að fjárhæð leiðréttingar einstaklings og hámark hennar ráðist skv. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Ef breytingar hafi orðið á högum umsækjanda, einu sinni eða oftar, sbr. 1. málsl., á leiðréttingartímabilinu skuli útreikningur leiðréttingar miða við að breytingin taki gildi í sama mánuði. Í 4. mgr. segir að heildarsamtala fjárhæðar útreiknaðrar leiðréttingar hvers heimilis geti að hámarki orðið 4 milljónir kr. Við útreikning á hámarki leiðréttingar hvers heimilis skuli, eftir atvikum, skipta fjárhæð leiðréttingar í samræmi við breytingar á hjúskapar- eða heimilisstöðu hvers einstaklings á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í tilviki kæranda hefur því ekki verið andmælt að hann hafi verið í hjúskap til 22. maí 2009, þ.e. hluta leiðréttingartímabils 1. gr., sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014. Við ákvörðun leiðréttingarfjárhæðar byggði ríkisskattstjóri á því að á tímabilinu 22. maí 2009 til 31. desember 2009 hefði kærandi ekki tekið yfir ábyrgð á láninu. Kærandi lagði fram við meðferð málsins hjá ríkisskattstjóra óundirritaðan kaupmála, dags. 27. mars 2002. Þar kemur fram að tilteknar fasteignir séu séreignir kæranda og verði þær seldar og aðrar eignir keyptar í staðin skulu séreignarákvæði gilda um þær eignir. Þá heldur kærandi því fram að hann hafi staðið einn að skuldbindingum á láni sjóðs X nr. 1. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands skildi kærandi að borði og sæng þann 22. maí 2009. Leiðrétting einstaklings ræðst af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, sbr. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014. Fjárhæð leiðréttingar og hámark hennar tekur mið af hjúskapar- og heimilisstöðu leiðréttingartímabilsins, óháð því hvor aðili var skráður fyrir leiðréttum lánum á tímabilinu og óháð því hvor er nú ábyrgur fyrir skuldum ef sambýlisfólk uppfyllir skilyrði samsköttunar. Af þessu leiðir að fyrrverandi sambýliskona kæranda átti sjálfstæðan rétt á hluta leiðréttingar lána sem um ræðir í þessu máli meðan hún og kærandi voru í hjúskap og jafnvel þó hún hefði ekki verið ábyrg fyrir láni nr. 1. Þar sem kærandi skildi að borði og sæng í maí 2009 hefði útreikningur leiðréttingarfjárhæðar átt að miða við að breyting á högum kæranda hafi tekið gildi í sama mánuði, sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort fyrrverandi eiginkona kæranda hafi verið skuldari fyrrgreinds láns aðrar en þær að kærandi taldi einungis fram helming skuldarinnar á skattframtali sínu árið 2010.

Eins og fram kemur byggir ákvörðun ríkisskattstjóra á leiðréttingarfjárhæð á því að kærandi og fyrrverandi eiginkona hans hafi átt jafnt tilkall til leiðréttingar á láni sjóðs X nr. 1. Annars vegar vegna hjúskapar og hins vegar vegna skráningar í skattframtali. Ekki er unnt að ganga út frá því, samkvæmt framlögðum gögnum, að kærandi og fyrrverandi eiginkona hans hafi borið sameiginlega ábyrgð á umræddu láni eftir að þau skildu að borði og sæng. Hafi átt að að byggja á því að þau hafi bæði borið ábyrgð og verið skuldarar lánsins, þrátt fyrir staðhæfingar kæranda um annað, við ákvörðun leiðréttingarfjárhæðar, hefði ekki verið hjá því komist að afla frekari upplýsinga um hagi kæranda að þessu leyti, m.a. skýringa hans sjálfs, enda bar ríkisskattstjóra að sjá til þess að málið væri nægjanlega upplýst áður en tekin var ákvörðun í því, sbr. rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Málið var því ekki nægjanlega upplýst við töku ákvörðunar. Þar fyrir utan er ljóst af 5. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 698/2014 að ríkisskattstjóri getur tekið til leiðréttingar athugasemdir vegna rangra upplýsinga um staðreyndir, s.s. um hjúskaparstöðu og lán. Verður því að ómerkja hina kærðu ákvörðun ríkisskattstjóra varðandi leiðréttingarfjárhæð kæranda og senda ríkisskattstjóra til nýrrar efnismeðferðar.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð :

 

 Kærunni ásamt meðfylgjandi gögnum er vísað til ríkisskattstjóra til ákvörðunar leiðréttingarfjárhæðar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum