Hoppa yfir valmynd
6. maí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 7/2014.  Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 23. apríl 2014

í máli nr. 7/2014:

Hlaðan ehf.

gegn

Húnaþingi vestra

Með kæru 11. apríl 2014 kærir Hlaðan ehf. ákvörðun og málsmeðferð við innkaup, varnaraðila, Húnaþings vestra á rekstri skólamötuneytis og veitingastaðar á Hvammstanga. Jafnframt er kærð ákvörðun varnaraðila um að velja kæranda ekki til þátttöku í útboði um innkaupin. Í þessum hluta málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar um stundarsakir en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar. Varnaraðila auk Gauksmýri ehf., sem einnig tók þátt í innkaupsferlinu, hefur verið gefinn kostur á að tjá sig um kröfu um stöðvun.

Samkvæmt gögnum málsins auglýsti varnaraðili 13. desember 2013 eftir áhugasömum aðilum um rekstur skólamötuneytis og rekstur veitingastaðar á Hvammstanga. Í auglýsingunni sagði m.a. eftirfarandi: „Áhugasamir aðilar aðilar sendi Húnaþingi vestra skriflega greinargerð þar sem þeir geri grein fyrir framtíðarsýn sinni gangvart rekstri veitingastaðar og framleiðslu skólamáltíða á Hvammstanga. Í greinargerðinni skal tilgreina staðsetningu og stærð veitingastaðar, reynslu og þekkingu af sambærilegum rekstri ásamt öðru því sem viðkomandi telur mikilvægt að fram komi. Áhugasamir aðilar skili greinargerð sinni á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en föstudaginn 10. janúar 2014.“  Í kjölfarið átti varnaraðili viðræður við þá aðila sem skiluðu greinargerð, þ.á m. kæranda. Með bréfi varnaraðila 28. janúar 2014 var kæranda tilkynnt að fyrirtækinu yrði ekki boðið að taka þátt í lokuðu útboði. Kærandi óskaði eftir frekari skýringum á ákvörðuninni og fékk þær með bréfi varnaraðila 19. febrúar þess árs en þar var m.a. tilkynnt að gengið yrði til samninga við Gauksmýri ehf. um þjónustuna.

            Kærandi reisir í grundvallaratriðum málatilbúnað sinn á því að varnaraðili hafi ekki tekið fram í auglýsingunni í desember 2013 að um væri að ræða forval fyrir lokað útboð. Kærandi segist ekki hafa fengið upplýsingar um að hið kærða ferli hafi verið forval fyrr en hann fékk afrit af athugasemdum varnaraðila til Samkeppniseftirlitsins og innanríkisráðuneytisins 4. apríl 2014, en þær athugasemdir eru vegna kæru á sama innkaupaferli.

Niðurstaða

Í málinu liggur að hinn 13. desember 2013 auglýsti varnaraðili eftir áhugasömum aðilum um rekstur skólamötuneytis og rekstur veitingastaðar á Hvammstanga. Var kærandi meðal þeirra sem lýsti yfir áhuga á þátttöku í innkaupunum. Hinn 28. janúar 2014 var kæranda synjað um þátttöku í lokuðu útboði í framhaldi af auglýsingu varnaraðila og hinn 19. febrúar þess árs veitt varnaraðili frekari skýringar á ákvörðun sinni. Að mati kærunefndar útboðsmála var eigi síðar en þá fullt tilefni fyrir kæranda að bera lögmæti innkaupferlis varnaraðila undir kærunefnd útboðsmála samkvæmt XIV. kafla laga nr. 84/2007 um opinber innkaup. Getur það ekki haggað þessari niðurstöðu þótt varnaraðili hafi fyrst í apríl 2014 lýst innkaupsferlinu með heitinu „forval”. Er því löngu liðinn frestur samkvæmt 1. mgr. 94. gr. laga um opinber innkaup, sbr. 11. gr. laga nr. 58/2013, til þess að bera undir kærunefnd útboðsmála lögmæti þess innkaupaferlis sem varnaraðili notaðist við í hinum kærðu innkaupum. Verða hin kærðu innkaup því ekki stöðvuð um stundarsakir með vísan til þess að óljóst hafi verið að auglýsing varnaraðila hafi markað upphaf forvals sem undanfara lokaðs útboðs.

Samkvæmt framangreindu verður kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar um stundarsakir hafnað. Endanleg úrlausn um kröfur kæranda bíður úrskurðar.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Hlöðunnar ehf., um stöðvun samningsgerðar varnaraðila, Húnaþings vestra, um stundarsakir við Gauksmýri ehf. um skólamáltíðir fyrir grunnskóla sveitarfélagsins og rekstur veitingahúss, er hafnað.

Reykjavík, 23. apríl 2014.

 Skúli Magnússon

Stanley Pálsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum