Hoppa yfir valmynd
8. júní 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr 4/2013. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. maí 2013

í máli nr. 4/2013:

Bílaumboðið Askja ehf.

gegn

Reykjavíkurborg 

Með kæru, dags. 4. febrúar 2013, kærði Bílaumboðið Askja ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar um að velja tilboð Heklu ehf. í útboði nr. 12929 „Bifreiðaútboð, flokkabifreiðar að 3,5 t. og að 7,5 t., pallbifreiðar og smærri sendibifreiðar“. Kröfur kæranda eru orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1. Að samningsgerð kærða við Heklu ehf. í EES útboði nr. 12929 Bifreiðaútboð, verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunefndar liggur fyrir í máli þessu sbr. 96. gr. laga nr. 84/2007.

2. Að kærunefnd ógildi með úrskurði þá ákvörðun kærða, að ganga að tilboði Heklu ehf. í hluta 1 „Fjórtán minni flokkabílar“ í EES útboði nr. 12929 Bifreiðaútboð, og leggi fyrir kærða að bjóða út innkaupin að nýju, sbr. 1. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007.

3. Að kærða verði gert skylt að greiða kæranda þann kostnað sem kærandi hefur þurft að bera vegna kæru þessarar.“

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Með bréfum, dags. 8. febrúar og 8. mars 2013, krafðist kærði þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og að kærandi yrði úrskurðaður til greiðslu málskostnaðar. Hinn 9. apríl 2013 tilkynnti kærandi að ekki yrðu gerðar frekari athugasemdir af hans hálfu.

Með ákvörðun, dags. 1. mars 2013, hafnaði kærunefnd útboðsmála að stöðva samningsgerð kærða við Heklu ehf. í Hluta 1 í útboði nr. 12929.

I.

Í október 2012 auglýsti kærði útboð nr. 12929 „Bifreiðaútboð, flokkabifreiðar að 3,5 t. og að 7,5 t., pallbifreiðar og smærri sendibifreiðar“. Með útboðinu var óskað eftir tilboðum í fjórtán flokkabifreiðar að 3,5 tonnum að heildarþyngd, fimm flokkabifreiðar að 7,5 tonnum að heildarþyngd, fjórar pallbifreiðar og fjórar smærri sendibifreiðar, sem allar hefðu tvíeldsneytisvél sem gengi fyrir metani og bensíni. Heimilt var að bjóða breyttar bifreiðar, þar sem búið væri að breyta bensínvél í metan/bensín tvíeldsneytisvél. Útboðið skiptist í fjóra hluta og Hlutur 1 stefndi að innkaupum á fjórtán flokkabifreiðum að 3,5 tonnum að heildarþyngd.

Kærandi var meðal bjóðenda í útboðinu. Tilboð voru opnuð hinn 28. nóvember 2012 og átti Hekla ehf. lægsta tilboð í hluta 1, að fjárhæð kr. 66.500.000 sem var 55,88% af kostnaðaráætlun.  Tilboð kæranda var 109,85% af kostnaðaráætlun kærða.

Hinn 25. janúar 2013 tilkynnti kærði að hann hefði valið tilboð Heklu ehf. í hluta 1 í hinu kærða útboði.      

II.

Kærandi segir að tilboð Heklu ehf. í Hluta 1 í útboðinu beri ekki með sér að boðnar bifreiðar fullnægi tækniforskrift og því sé tilboðið ógilt. Kærandi segir að í tilboðinu séu boðnar bifreiðar sem séu framleiddar með bensínvél. Tilboðinu hafi ekki fylgt upplýsingar um þær breytingar sem gerðar verði á eldsneytiskerfi bifreiðanna svo þær fullnægi helstu tækniforskrift útboðslýsingar um tvíeldsneytisvél.

            Kærandi telur að tilboð Heklu ehf. hafi verið 55,88% af kostnaðaráætlun og þannig langlægst og óeðlilega lágt í skilningi 73. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup.

III.

Kærði segir að fylgigögn með tilboði Heklu ehf. hafi borið með sér að boðnar bifreiðar uppfylltu gerðar kröfur samkvæmt tækniforskrift útboðslýsingar. Kærði vísar til þess að í tilboðsgögnum Heklu ehf. komi fram tegund boðinna bifreiða. Þar komi auk þess fram eldsneytiseyðsla þeirra sem vísi m.a. til metangass.

            Kærði telur að tilboð Heklu ehf. hafi ekki virst óeðlilega lágt með hliðsjón af vöru enda hafi vörunni ítarlega verið lýst í þeim gögnum sem fylgdu tilboði félagsins. Kostnaðaráætlun kærða hafi miðað við listaverð fjórhjóladrifinna atvinnubíla á markaði haustið 2012. Þá hafi kostnaðaráætlun kærða auk þess verið mörgum breytilegum þáttum háð, bendir kærði þar einkum á að vörugjöld lækkaði af bifreiðum með metan sem aðalorkugjafa.

IV.

Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér tilboð Heklu ehf. í 1. hluta fyrrgreinds útboðs. Að mati nefndarinnar er nægilega fram komið að þær bifreiðar sem boðnar voru fram samræmist tæknilegum kröfum og öðrum skilmálum útboðslýsingar. Að virtri fjárhæð tilboðs Heklu ehf., sem var einungis 55,88% af kostnaðaráætlun kærða, er það álit nefndarinnar að kæra hefði verið rétt að kalla eftir nánari upplýsingum um grundvöll tilboðsins með vísan til 1. mgr. 73. gr. laga nr. 84/2007. Undir rekstri málsins hafa þó komið fram nægilegar skýringar á umræddri tilboðsfjárhæð. Verður því ekki fallist á að tilboðið sé óeðlilega lágt í skilningi fyrrgreinds ákvæðis.

            Samkvæmt framangreindu verður hafnað kröfu kæranda um ógildi ákvörðunar kærða.

            Eftir úrslitum málsins er rétt að hvor aðila beri sinn kostnað af málinu.

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda, Bílaumboðsins Öskju ehf., um ógildingu ákvörðunar kærða, Reykjavíkurborgar, hinn 25. janúar 2013 um að ganga að tilboði Heklu ehf. í EES útboði nr. 12929 er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 24. maí 2013.

Skúli Magnússon

Ásgerður Ragnarsdóttir

Stanley Pálsson

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,                maí 2013.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum