Hoppa yfir valmynd
4. júní 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 4/2012. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. maí 2012

í máli nr. 4/2012:

Öryggismiðstöð Íslands hf.

gegn

Reykjanesbæ

Með bréfi, dags. 9. mars 2012, kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. útboð Reykjanesbæjar „Vöktun viðvörunarkerfa“. Kröfur kæranda eru orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1. Að gerð samnings við Securitas hf., kt. 640388-2699, verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunefndar liggur fyrir í máli þessu skv. 96. gr. laga nr. 84/2007.

 

2. Að kærunefnd ógildi ákvörðun kærða um að samþykkja tilboð Securitas hf., kt. 640388-2699, sbr. 1. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007, og að kaupanda verði gert skylt að auglýsa og bjóða út verkið að nýju að viðlögðum dagsektum, sbr. 4. og 5. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007.

 

3. Að kaupanda verði gert skylt að greiða kæranda þann kostnað sem kærandi hefur þurft að bera vegna kæru þessarar.“

 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Með bréfi, dags. 16. mars 2012, krafðist kærði þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað. Með bréfi, dags. 23. apríl 2012, gerði kærandi athugasemdir við greinargerð kærða.

 

Með ákvörðun, dags. 23. mars 2012, hafnaði kærunefnd útboðsmála að stöðva samningsgerð kærða, Reykjanesbæjar, við Securitas hf. um „Vöktun viðvörunarkerfa“.

 

I.

Í febrúar 2012 auglýsti kærði útboð „Vöktun viðvörunarkerfa“. Kafli 1.2 í útboðslýsingu nefndist „Opnun tilboða“ og þar sagði:

Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 23. febrúar 2012, kl. 10:00 á skrifstofu Rafmiðstöðvarinnar að Framnesvegi 19, Reykjanesbæ að viðstöddum þeim bjóðendum sem mættir verða á þeim tíma“

 

Opnun tilboða var síðar frestað til fimmtudagsins 1. mars 2012, kl. 10:00. Kærandi skilaði tilboði 4 mínútum of seint. Í fundargerð opnunarfundar er m.a. bókuð eftirfarandi athugasemd:

„Securitas áskilur sér rétt til að skoða það nánar að tilboð Öryggismiðstöðvarinnar barst 4 mínútum of seint.“

 

Umsjónarmaður útboðsins staðfesti að tilboð kæranda hefði borist eftir kl. 10:00 hinn 1. mars 2012. Hinn 6. mars 2012 upplýsti kærði bjóðendur um að tilboð Securitas hf. hefði verið valið í hinu kærða útboði.

                       

II.

Kærandi segist hafa skilað inn gildu tilboði á útboðsfundi fyrir opnun tilboða, tilboð hans hafi verið móttekið og opnað á útboðsfundi eins og fundargerð fundarins beri með sér. Tilboðinu hafi ekki verið vísað frá á fundinum heldur opnað með öðrum tilboðum. Kærandi segir að ef kærði hefði talið að tilboð kæranda hefði borist of seint hefði kærða borið, samkvæmt 3. mgr. 69. gr. laga nr. 84/2007, að vísa tilboðinu frá og afhenda kæranda það óopnað. Þar sem kærði móttók tilboðið og opnaði með öðrum tilboðum telur kærandi að tilboðið hafi orðið skuldbindandi fyrir kærða og lögum samkvæmt hafi borið að líta til þess við ákvörðun um gerð samnings. Kærandi segir að einhliða athugasemd Securitas hf. og umsjónarmanns útboðsins á atvikum fundarins geti engu breytt um þá skyldu kaupanda. Kærandi segist hafa átt lægsta tilboð í verkið og kærða hafi því borið að ganga til samninga við hann.

 

III.

Kærði segir að honum hafi verið heimilt að hafna tilboði kæranda þar sem það hafi komið of seint og þar af leiðandi ekki talist gilt tilboð í skilningi 71. gr. laga nr. 84/2007. Kærði segir að sér hafi ekki orðið mistökin ljós fyrr en eftir að ráðgjafi hans, starfsmaður Rafmiðstöðvarinnar, hafði opnað tilboð kæranda. Kærði segir að sér hafi verið rétt að leiðrétta mistökin þar sem ákvörðun hafði ekki verið birt málsaðilum skv. 1. mgr. 23. gr. og 2. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga.

 

IV.

Tilboðum í hinu kærða útboði bar að skila fyrir kl. 10:00 hinn 1. mars 2012. Ljóst virðist að tilboð kæranda barst 4 mínútum of seint. Kærandi hefur ekki neitað því að tilboðið hafi borist eftir kl. 10:00 hinn 1. mars 2012 en byggir á því að kærði hafi móttekið tilboðið og með því hafi tilboðið orðið skuldbindandi. Óumdeilt er að kærði opnaði tilboð kæranda á opnunarfundi en fimm dögum síðar ákvað kærði að hafna tilboðinu á þeirri forsendu að það hefði komið of seint.

Í samræmi við jafnræðisreglu útboðsréttar hafa allir bjóðendur sama tíma til að skila inn tilboði og tilboð sem berast eftir að fresti lýkur eru ógild. Kaupendum í opinberum innkaupum er óheimilt að taka við tilboðum sem berast of seint og þeir geta ekki vikið frá þeirri reglu. Samkvæmt 3. mgr. 69. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, skal tilboð sem berst of seint sent viðkomandi bjóðanda óopnað ásamt skýringu á ástæðum þess að það er endursend. Samkvæmt reglu 3. mgr. 69. gr. bar kærða að hafna tilboði kæranda sem barst of seint, strax á opnunarfundi. Jafnvel þótt svo hafi ekki verið gert og tilboð kæranda hafi verið opnað breytir það ekki þeirri staðreynd að tilboðið barst of seint og kærða var þar af leiðandi óheimilt að taka við því. Kærða var þannig rétt að hafna tilboði kæranda.

Af framangreindum ástæðum hafnar kærunefnd útboðsmála kröfum kæranda.  

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda, Öryggismiðstöðvar Íslands hf., um að kærunefnd ógildi ákvörðun kærða, Reykjanesbæjar, um að samþykkja tilboð Securitas hf. og að kærða verði gert skylt að auglýsa og bjóða út verkið að nýju að viðlögðum dagsektum, er hafnað.

 

Kröfu kæranda, Öryggismiðstöðvar Íslands hf., um að kærða, Reykjanesbæ, verði gert að greiða kæranda málskostnað, er hafnað.

 

 

                                              Reykjavík, 24. maí 2012.

                                              Páll Sigurðsson

                                              Auður Finnbogadóttir

                                              Stanley Pálsson

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,                maí 2012.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum