Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 32/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 15. desember 2011

í máli nr. 32/2011:

Logaland ehf.

gegn

Ríkiskaupum

Með bréfi, dags. 16. nóvember 2011, kærði Logaland ehf. útboð Ríkiskaupa nr. 15066 „Rammasamningsútboð – Ýmsar gerðir af nálum, vökva- og blóðgjafasettum o.fl. fyrir heilbrigðisstofnanir“. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1. Að kærunefndin stöðvi þegar í stað innkaupaferli/gerð samnings á grundvelli útboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

 

2. Að kærunefndin leggi fyrir kærða að auglýsa útboðið á nýjan leik.

 

3. Að kærunefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu kærða gagnvart kæranda.

 

4. Að kærunefndin ákveði að kærða verði gert að greiða kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.“

 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun á samningsgerð. Með bréfi og gögnum, sem bárust kærunefnd útboðsmála 5. desember 2011, krafðist kærði þess að kröfu um stöðvun samningsgerðar yrði hafnað.

 

Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva samningsgerð í kjölfar hins kærða útboðs.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.

 

I.

Í júlí 2011 auglýsti kærði útboð nr. 15066 „Rammasamningsútboð – Ýmsar gerðir af nálum, vökva- og blóðgjafasettum o.fl. fyrir heilbrigðisstofnanir“. Kærandi var meðal bjóðenda í útboðinu og kærði tilkynnti um val tilboða hinn 7. nóvember 2011.

            Með bréfi, dags. 2. desember 2011, tilkynnti kærði öllum þátttakendum í hinu kærða útboði að gildistími tilboða hafi runnið út 4. október 2011 án þess að óskað hefði verið eftir famlengingu tilboða. Þar með hafi öll tilboð verið fallin úr gildi þegar tilkynnt var um val á tilboðum. Kærði afturkallaði því val á tilboðum og felldi niður útboðið.

           

II.

Kærði hefur fellt niður hið kærða innkaupaferli og er ferlinu þannig lokið. Þegar af þeirri ástæðu er ekki hægt að stöðva hið kærða innkaupaferli

 

 

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Logaland ehf., um að útboð kærða, Ríkiskaupa, nr. 15066 „Rammasamningsútboð – Ýmsar gerðir af nálum, vökva- og blóðgjafasettum o.fl. fyrir heilbrigðisstofnanir“ verði stöðvað þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, er hafnað.

 

 

                                                Reykjavík, 15. desember 2011.

                                                Páll Sigurðsson

                                                Auður Finnbogadóttir

                                                Stanley Pálsson

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,                desember 2011.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum