Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 12/2011. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 5. október 2011

í máli nr. 12/2011:

Logaland ehf.

gegn

Ríkiskaupum

Með bréfi, dags. 17. maí 2011, kærði Logaland ehf. útboð Ríkiskaupa nr. 15039 „Automated system for viral screening and measurement of ferritin in blood donors“. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1. Að kærunefndi stöðvi þegar í stað innkaupaferli/gerð samnings á grundvelli útboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

 

2. Að kærunefndin felli úr gildi ólögmæta skilmála í útboðslýsingu þar sem krafist er að bjóðendur hafi „established implementation of a fully operational and bi-directional connection to Prosang, the Blood Bank Information System in at least two (2) Blood Banks in Europe.“ en þessi krafa er sett fram í eftirtöldum ákvæðum útboðsins:

Ákvæði 7. mgr. í gr. 1.2.1

Ákvæði gr. 2.3.4, þriðji reitur að ofan í töflu

Ákvæði gr. 5.3 (bls. 6 í viðauka)

 

3. Að nefndin láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu kaupanda gagnvart kæranda.

 

4. Að nefndin ákveði að kaupandi og/eða Ríkiskaup greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.“

 

Kærandi lagði fram ódagsetta „Greinargerð með kæru“ og „Viðauka við greinargerð með kæru“, dags. 26. maí 2011. Kærða var kynnt kæran og önnur gögn kæranda og gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir útboðsskilmálum. Með bréfi, dags. 8. júní 2011, krafðist kærði þess að kærunni yrði vísað frá en annars að kröfu um stöðvun samningsgerðar yrði hafnað og að kæranda yrði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð. Kærandi ítrekaði gerðar kröfur og málsástæður með tölvupósti, dags. 29. ágúst 2011.

 

Með ákvörðun, dags. 14. júní 2011, hafnaði kærunefnd útboðsmála að stöðva útboð kærða nr. 15039 „Automated system for viral screening and measurement of ferritin in blood donors“.

 

I.

Í mars 2011 auglýsti kærði útboð nr. 15039 „Automated system for viral screening and measurement of ferritin in blood donors“. Í útboðsgögnum var m.a. að finna eftirfarandi skilyrði í gr. 1.2.1 sem ber heitið „Qualification Criteria“:

„The tenderer SHALL have an established implementation of a fully operational bi-directional connection to Prosang, the Blood Bank Information System in at least two (2) Blood Banks in Europe.“

 

Kærandi sótti útboðsgögn hinn 16. mars 2011.

 

II.

Kærandi byggir á því að tiltekin skilyrði útboðsgagna séu ólögmæt. Samkvæmt 1. mgr. 94. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, skal kæra borin undir kærunefnd útboðsmála innan fjögurra vikna frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Í athugasemdum við 94. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 84/2007 er m.a. tekið fram að í opinberum innkaupum sé oft og tíðum sérlega mikilvægt að ekki sé fyrir hendi óvissa um gildi tiltekinna ákvarðana, jafnvel þótt vera kunni að ákvarðanir séu ólögmætar. Af ummælum í athugasemdunum má ráða að ætlast sé til þess að kærufrestur verði túlkaður þröngt og upphaf hans miðað við fyrsta mögulega tímamark.

Kærandi sótti útboðsgögn í hinu kærða útboði hinn 16. mars 2011 en kæra er dagsett 17. maí 2011. Fjögurra vikna kærufrestur til að bera meinta annmarka á útboðsgögnum undir kæru­nefnd útboðsmála var þannig liðinn. Verður því að vísa öllum kröfum kæranda frá kærunefnd útboðsmála.

Kærði hefur krafist þess að kæranda verði gert að greiða málskostnað til ríkissjóðs. Samkvæmt seinni málslið 3. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007 getur kærunefnd útboðsmála úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem rennur í ríkissjóð ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa. Með hliðsjón af orðalagi framangreindrar lagaheimildar er ljóst að mikið þarf til að koma svo að henni verði beitt. Skilyrðum ákvæðisins er ekki fullnægt í þessu máli og verður því að hafna kröfunni.

 

 

Úrskurðarorð:

Kröfum kæranda, Logalands ehf., er vísað frá.

 

Kröfu kærða, Ríkiskaupa, um að kærandi, Logaland ehf., greiði málskostnað í ríkissjóð, er hafnað.

 

 

                                                   Reykjavík, 5. október 2011.

                                                   Páll Sigurðsson

                                                   Auður Finnbogadóttir

                                                   Stanley Pálsson

                                                              

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,                 október 2011.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum