Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 10/2009. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 30. mars 2009

í máli nr. 10/2009:

Olíuverzlun Íslands hf.

gegn

Ríkiskaupum           

Með bréfi, dags. 25. mars 2009, kærði Olíuverzlun Íslands hf. ákvörðun kærða, Ríkiskaupa, um að taka tilboðum Skeljungs hf. og N1 hf. í ramma­samnings­útboði 14627 – Eldsneyti og olíur fyrir skip og flugvélar. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„Þess er krafist að samningsgerð við Skeljung hf. og N1 hf. verði stöðvuð á meðan leyst er úr kæru þessari.

 

Aðalkrafa kæranda er að ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboðum Skeljungs hf. og N1 hf. verði felld úr gildi.

 

Til vara er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda.

 

Í báðum tilfellum er þess krafist að varnaraðili greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.“

 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun á gerð samnings. Með bréfi kærða, dags. 27. mars 2009, bárust athugasemdir kærða vegna kröfu um stöðvun samningsgerðar um stundarsakir.

 

Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva gerð samnings.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.


 

I.

Í janúar 2009 auglýsti kærði „Rammasamningsútboð nr. 14627 - Eldsneyti og olíur fyrir skip og flugvélar”. Kærandi var einn bjóðenda í útboðinu. Hinn 27. febrúar 2009 tilkynnti kærði um val á tilboðum Skeljungs hf. og N1 hf. í vöruflokki A og B og tilboðum N1 hf., Skeljungs hf. og Olíuverzlunar Íslands hf. í vöruflokki C. Með tölvupósti, dags. 12. mars 2009, var tilkynnt að framangreind tilboð hefðu verið endanlega samþykkt.

 

II.

Kærandi telur að tilboð frá N1 hf. og Skeljungi hf. séu ekki í samræmi við útboðs­skilmála enda hafi þau ekki verið sett fram með skírskotun til almennra og opinberra verðlista félaganna, eins og krafist var í útboðslýsingu. Kærandi segir að með þessu hafi tilboð félaganna í raun verið frávikstilboð en slík tilboð hafi ekki verið leyfð samkvæmt útboðslýsingu. Kærandi telur að með því að leyfa tilboð félaganna sé brotið gegn jafnræði bjóðenda og þar með brotið gegn 1. mgr. 14. gr. laga um opinber innkaup.

 

III.

Kærði lýsir því yfir að tilboð hafi verið endanlega samþykkt innan gildistíma þeirra og þar með sé kominn á bindandi samningur.

 

IV.

Samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, getur kærunefnd útboðsmála stöðvað gerð samnings þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Eftir að bindandi samningur skv. 76. gr. laganna er kominn á verður hann þó ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt, sbr. 1. mgr. 100. gr. laganna. Frá því að ákvörðun um val tilboða var tilkynnt og þangað til tilboð voru endanlega samþykkt liðu tíu dagar. Í þeim innkaupum sem mál þetta lýtur að hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 76. gr. laga nr. 84/2007 og þegar af þeirri ástæður er ekki heimilt, lögum samkvæmt, að stöðva samningsgerðina.

 


 

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Olíuverzlunar Íslands hf., um að samningsgerð við Skeljung hf. og N1 hf. verði stöðvuð á meðan leyst er úr kæru vegna ramma­samnings­útboðs „14627 – Eldsneyti og olíur fyrir skip og flugvélar“, er hafnað.

 

 

                                                       Reykjavík, 30. mars 2009.

                                                       Páll Sigurðsson

                                                       Sigfús Jónsson

                                                       Stanley Pálsson

 

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,           . mars 2009.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum