Hoppa yfir valmynd
13. júní 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 16/2005. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 13. júní 2005

í máli nr. 16/2005:

Verktækni ehf.

gegn

Rangárþingi ytra

Með bréfi 1. júní 2005 kærir Verktækni ehf. þá ákvörðun Rangárþings ytra að ganga til samninga við Þjótanda ehf. í kjölfar útboðs Rangárþings Ytra, Öldur II á Hellu, gatnagerðarútboðs.

Kærandi gerir eftirfarandi kröfur í málinu:

  1. Að kærunefnd útboðsmála stöðvi alla samningsgerð af hálfu kærða vegna útboðsins þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.
  2. Að nefndin úrskurði um niðurstöðu útboðsins á þá leið að semja skuli við kæranda á grundvelli tilboðs hans, sbr. 1. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001.
  3. Til vara að nefndin úrskurði að framgangur kærða eftir að tilboð voru opnuð þann 5. apríl 2005 hafi verið ólögmætur.
  4. Að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu kærða í samræmi við 2. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001.
  5. Að kærði verði úrskurðaður til þess að greiða kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi, sbr. 3. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001.

Kærði krefst þess að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað.

Kærunefnd útboðsmála telur rétt að taka afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þegar í stað. Úrlausn um kröfur kæranda að öðru leyti bíða hins vegar endanlegs úrskurðar.

I.

Í mars sl. bauð Rangárþing ytra út verkið Öldur II á Hellu, gatnagerðarútboð. Verkinu var skipt í liði A og B. Liður A miðaðist við hellulagðar gangstéttir en liður B við malbikaðar gangstéttir og átti kærði að velja um hvor hátturinn skyldi hafður á. Tilboð kæranda í lið A nam kr. 44.038.350 og í lið B kr. 42.037.350 og voru þau í báðum tilvikum næstlægst. Tilboð Þjótanda ehf. nam kr. 45.436.300 í lið A og kr. 43.087.300 í lið B. Lægstbjóðandi var Jöfnun hf., en þar sem þau gögn sem fyrirtækið skilaði voru of gömul var ekki tekin afstaða til tilboðs fyrirtækisins. Kærði kallaði eftir viðbótargögnum frá þeim fimm bjóðendum sem voru með lægstu tilboðin. Með bréfi, dags. 10. maí 2005, var kæranda tilkynnt að á fundi hreppsráðs Rangárþings ytra hinn 28. apríl 2004 hefði verið samþykkt tillaga um að taka tilboði Þjótanda ehf. í lið B. Jafnframt var tekið fram að þessi samþykkt hreppsráðs hefði verið samþykkt á fundi hreppsnefndar Rangárþings ytra hinn 4. maí 2004. Hinn 10. maí 2004 var undirritaður samningur á milli kærða og Þjótanda ehf. um hið kærða verk.

II.

Kærandi byggir kröfu sínu um stöðvun samningsgerðar á því að kærði hafi gengið framhjá tilboði hans, sem fullnægi öllum kröfum útboðslýsingar og hljóti jafnframt að skoðast sem lægsta tilboðið, þar sem Jöfnun ehf. hafi ekki uppfyllt nauðsynleg skilyrði. Mikilvægt sé að stöðva fyrirhugaða samningsgerð kærða við Þjótanda ehf. strax þar sem samningur verði ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um gerð samnings hafi verið ólögmæt eftir að samningur hafi verið gerður, sbr. 1. mgr. 83. gr. laga nr. 94/2001. Verði samningsgerð kærða við aðra ekki stöðvuð nú þegar, sé í raun útilokað að samið verði við kæranda um hið kærða verk á grundvelli tilboðs hans. Kærði hafi tekið ákvörðun um að ganga framjá tilboði kæranda, sem hafi átt lægsta gilda boðið í verkið, án nokkurs rökstuðnings. Verði frekari samningsgerð kærða við aðra ekki stöðvuð þegar í stað meðan skorið verði úr öðrum kröfum kæranda megi vera ljóst að kærandi verði fyrir fjárhagslegu tjóni.

III.

Kærði krefst þess að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað þar sem verksamningur milli kærða og Þjótanda ehf. hafi verið undirritaður hinn 10 maí 2005.

IV.

Kærandi hefur í máli þessu krafist stöðvunar samningsgerðar, sbr. heimildir kærunefndar útboðsmála samkvæmt 80. gr. laga um opinber innkaup nr. 94/2001. Í 1. mgr. 54. gr. laganna kemur fram að tilboð skuli samþykkja skriflega innan gildistíma þess og er þá kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðs bjóðanda. Þó skal gera sérstakan samning um kaup á vöru, þjónustu eða verki á grundvelli útboðsins þegar við á eða annar aðili óskar þess. Í 1. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup nr. 94/2001 kemur fram að eftir að samningur hefur verið gerður verður hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Í 3. mgr. sömu greinar segir að um gildi samninga, sem stofnað er til samkvæmt lögunum, fari að öðru leyti eftir almennum reglum.

Í máli þessu liggur fyrir verksamningur milli kærða og Þjótanda ehf. um hið kærða verk. Samningurinn er dagsettur 10. maí 2005. Á því tímamarki verður að líta svo á að kominn hafi verið á bindandi samningur milli kærða og Þjótanda ehf. Brestur kærunefnd útboðsmála því heimild til að verða við kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar á grundvelli hins kærða útboðs. Með vísan til framangreinds verður að hafna kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar í útboðinu.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Verktækni ehf., um stöðvun samningsgerðar vegna útboðs Rangarárþings ytra, Öldur II á Hellu, gatnagerðarútboð er hafnað.

Reykjavík, 13. júní 2005.

Páll Sigurðsson

Sigfús Jónsson

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík, 13. júní 2005.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum