Hoppa yfir valmynd
15. október 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 15/2015


Á fundi úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála þann 15. október 2015 var tekið fyrir mál nr. 15/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A, hefur með kæru, dags. 23. júlí 2015, skotið til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir Fæðingarorlofssjóður), dags. 23. júní 2015, um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

 

I. Málsatvik og málsmeðferð

 

Kærandi var atvinnulaus á árunum 2012, 2013, 2014 og fram á vorið 2015. Hann var á atvinnuleysisbótum á þessum tíma, en í apríllok 2015 var réttur hans til atvinnuleysisbóta fullnýttur. Hann hóf störf hjá X þann 13. maí 2015. Kærandi sótti um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 22. ágúst 2015 með umsókn, dags. 3. júní 2015. Með umsókn kæranda fylgdi meðal annars launaseðill frá X vegna tímabilsins 13. maí til 31. maí 2015. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 18. júní 2015, var óskað eftir að kærandi legði fram staðfestingu frá X um hvenær hann hafi hafið störf þar í maí 2015. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. júní 2015, var kæranda tilkynnt að samkvæmt upplýsingum frá vinnuveitanda hans yrði ráðið að hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) um að hafa verið samfellt í minnst 25% starfshlutfalli að minnsta kosti sex síðustu mánuði fyrir fæðingardag barns þar sem engar tekjur væru skráðar á hann frá 1. til 12. maí 2015.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 23. júlí 2015. Með bréfi, dags. 11. ágúst 2015, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð Fæðingarorlofssjóðs barst með bréfi, dags. 13. ágúst 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. ágúst 2015, var greinargerð Fæðingarorlofssjóðs send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Sjónarmið kæranda

 

Kærandi greinir frá því að hann sé í vaktavinnu í 70% starfshlutfalli og hafi hafið störf þann 13. maí 2015. Í maí 2015 hafi hann skilað af sér 43% vinnuhlutfalli og uppfylli því skilyrði um 25% vinnuhlutfall. Kærandi óskar eftir að fá fullt fæðingarorlof til að njóta samveru með barni sínu og konu. 

 

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

 

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs er vísað til 1. mgr. 13. gr. ffl. þar sem kveðið sé á um að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Í 2. mgr. 7. gr. ffl. sé að finna orðskýringu á starfsmanni en samkvæmt ákvæðinu telst starfsmaður skv. lögunum vera hver sá sem vinnur launuð störf í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði.

Í 1. mgr. 13. gr. a ffl. komi fram að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa sem starfsmaður, sbr. 2. mgr. 7. gr., eða sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. 3. mgr. 7. gr. Fullt starf starfsmanns miðist við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skuli jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljist fullt starf.

Í 2. mgr. sé síðan talið upp í eftirfarandi fimm stafliðum hvað teljist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði:

 

a.       orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b.      sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c.       sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almanna­tryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d.      sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e.       sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Áætlaður fæðingardagur barns kæranda sé þann 22. ágúst 2015. Við mat á því hvort kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 13. gr. ffl. sé því ekki annað unnt en að horfa til tímabilsins frá 22. febrúar og fram að áætluðum fæðingardegi barnsins. Til að öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði þurfi kærandi, samkvæmt framangreindu, að hafa verið í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði á tímabilinu, sbr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a ffl.

Samkvæmt skrám ríkisskattstjóra sé kærandi með atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun frá 22. febrúar til 30. apríl 2015, sbr. einnig greiðslusaga Vinnumálastofnunar, dags. 3. júní 2015, og vottorð Vinnumálastofnunar til Fæðingarorlofssjóðs, ódagsett. Samkvæmt tölvupósti X, dags. 22. júní 2015, og kæru kæranda hafi hann hafið störf hjá X þann 13. maí 2015. Samkvæmt skrám ríkisskattstjóra hafi laun verið skráð á kæranda frá þeim tíma og út júní. Samkvæmt framangreindu uppfylli kærandi ekki meginreglu 1. mgr. 13. gr., sbr. 1. mgr. 13. gr. a ffl., um að hafa verið samfellt í a.m.k. 25% starfshlutfalli á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns tímabilið 1. til 12. maí 2015.

Með bréfi til kæranda, dags. 23. júní 2015, hafi hann verið upplýstur um framangreint og leiðbeint um hvað annað teldist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði, sbr. 2. mgr. 13. gr. a ffl. Kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem staðfestu þátttöku hans á innlendum vinnumarkaði tímabilið 1. til 12. maí 2015 þegar hann hafi kært mál sitt til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt framangreindu verði ekki séð að kærandi hafi verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir áætlaðan fæðingardag barns þann 22. ágúst 2015 tímabilið 1. til 12. maí 2015, sbr. 1. mgr. 13. gr. ffl. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a ffl.

 

IV. Niðurstaða

 

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi, dags. 23. júní 2015, um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á þeirri forsendu að hann hafi ekki verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. ffl. öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. a ffl., sbr. 2. mgr. 7. gr., felur þátttaka á innlendum vinnumarkaði meðal annars í sér að starfa sem starfsmaður, þ.e. að vinna launuð störf í annarra þjónustu í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði. Þá telst enn fremur til þátttöku á innlendum vinnumarkaði meðal annars orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti, sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags, enda hafi foreldrið látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum, sbr. 2. mgr. 13. gr. a ffl.

Áætlaður fæðingardagur barns kæranda var þann 22. ágúst 2015. Sex mánaða ávinnslutímabil skv. 1. mgr. 13. gr. ffl. er því frá 22. febrúar 2015 og fram að áætluðum fæðingardegi barnsins. Til þess að eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þurfti kærandi því að hafa verið samfellt á innlendum vinnumarkaði á því tímabili. Ágreiningur málsins lýtur að tímabilinu frá 1. til 12. maí 2015 en óumdeilt er að kærandi var á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. á öðrum tíma ávinnslutímabilsins.

Kærandi byggir á því að hann hafi unnið 43% starfshlutfall í maí 2015 og því uppfylli hann skilyrði 1. mgr. 13. gr. ffl. Samkvæmt gögnum málsins hóf kærandi störf hjá X þann 13. maí 2015 og fékk greidd laun fyrir tímabilið 13. til 31. maí 2015. Ekki liggja fyrir nein gögn sem staðfesta að kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið 1. til 12. maí 2015. Að því virtu er óhjákvæmilegt að líta svo á að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. ffl. um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns, en ekkert hefur komið fram í málinu um að stafliðir 2. mgr. 13. gr. a ffl. geti átt við um kæranda á því tímabili sem deilt er um.

Einungis vantar nokkra daga upp á að kærandi uppfylli framangreint skilyrði ffl. Hins vegar er enga heimild að finna í ffl. né reglugerð sem sett hefur verið með stoð í lögunum til að víkja frá ákvæðum 1. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. við mat á því hvort foreldri hafi verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns sem átt getur við í tilviki kæranda.

Með hliðsjón af því sem að framan er rakið verður ekki hjá því komist að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 23. júní 2015, um að synja umsókn A um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði er staðfest.

 

Haukur Guðmundsson formaður

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum