Hoppa yfir valmynd
31. maí 2002 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 2/2002

Föstudaginn, 31. maí 2002

 

A 

gegn 

Tryggingastofnun ríkisins

  

Úrskurður

 

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir, hdl., Jóhanna Jónasdóttir, læknir, og Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri.

 

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála barst kæra A, dags. 8. janúar 2002.

 

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi útreikning á greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði til kæranda í fæðingarorlofi.

 

Með bréfi frá Tryggingastofnun ríkisins, dags. 14. nóvember 2001, var kæranda tilkynnt um greiðslu í fæðingarorlofi.

 

Í rökstuðningi með kæru segir m.a.:

"...Hef sótt um og fengið staðfest að greiðsla til mín í fyrirhuguðu fæðingarorlofi í nóvember 2002 verði brúttó krónur 359.826,- eða 80% af tekjum frá september 2000 til og með ágúst 2001. Ég tel að hér sé ekki miðað við rétt tekjutímabil.

 

Samkvæmt lögunum skulu greiðslur í fæðingarorlofi taka mið af tekjum 12 mánaða tímabils sem lýkur tveimur mánuðum fyrir töku fæðingarorlofs. Ég fer því fram á að greiðsla til mín verði endurmetin þegar þær upplýsingar liggja fyrir, en eins og fram kemur þá eru enn um níu mánuðir þar til ég hef töku míns fæðingarorlofs.

 

Ég hef ekki óskað eftir leiðréttingu á þessu beint við fæðingarorlofssjóð, en í bréfi þeirra er boðið upp á þessa úrskurðarleið. Ég skil líka að vera má að ekki sé komin það mikil reynsla á mismunandi útfærslur fæðingarorlofsgreiðslna, að svona úrlausnarefni komi upp."

 

Með bréfi, dags. 28. janúar 2002, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dags. 1. febrúar 2002. Í greinargerðinni segir:

"Kærður er útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, og óskar kærandi eftir því að viðmiðunartímabil tekjuútreiknings hans verði annað en litið var til við afgreiðslu máls hans.

 

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveim mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Í greinargerð með lagafrumvarpinu er tekið fram að hér sé átt við almanaksmánuði.

 

Afgreiðsla lífeyristryggingasvið miðaðist við 80% meðaltekna kæranda á tímabilinu frá 1. september 2000 til og með ágúst 2001, en barn hans er fætt í nóvember sl.

 

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur, í máli nr. 42/2001, kveðið úr um það hvað skuli teljast upphafsdagur fæðingarorlofs sbr. 2. og 3. mgr. 8. gr. laganna. Er þar miðað við að upphaf orlofs sé í síðasta lagi við fæðingu barns. Samkvæmt því skuli útreikningur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði miðast við þau tímamörk, jafnvel þótt annað foreldrið nýti rétt sinn til töku orlofs á síðara tímabili.

 

Lífeyristryggingasvið telur að ágreiningsefni máls þessa sé sambærilegt því sem um ræddi í máli nr. 42/2001 og vísar til niðurstöðu þess máls og rökstuðnings fyrir þeirri niðurstöðu."

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 6. febrúar 2002, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

 

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi útreikning á greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði til kæranda í fæðingarorlofi.

 

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð m.a. vegna anna hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

 

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) stofnast réttur foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir samfellt starf í sex mánuði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Framangreind regla er skoðuð þegar finna á út hvort viðkomandi foreldri á rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. ffl. stofnast réttur til fæðingarorlofs við fæðingu barns, ákvæðið veitir konu þó heimild til þess að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag sem staðfestur skal með læknisvottorði. Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof kemur fram varðandi þá undantekningu að ekki verði litið á þetta sem mismunun þar sem það teljist ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, sbr. 3. gr. laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (nú 22. gr. laga nr. 96/2000). Þá segir í 3. mgr. 8. gr. ffl. að kona skuli vera í fæðingarorlofi að minnsta kosti fyrstu tvær vikurnar eftir fæðingu barns.

 

Upphafsdagur fæðingarorlofs foreldra er skilgreindur í 2. og 3. mgr. 8. gr. ffl. Það færi í bága við 1. mgr. 22. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þar sem hvers kyns mismunun eftir kynjum er lýst óheimil, ef karlar gætu sjálfir ákvarðað upphafsdag fæðingarorlofs. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. ffl. fellur réttur til fæðingarorlofs niður er barnið nær 18 mánaða aldri. Sveigjanleiki til töku fæðingarorlofs breytir ekki upphafsdegi fæðingarorlofs eða grundvelli útreiknings greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, sbr. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Í athugasemdum við 13. gr. frumvarps til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof kemur fram að átt sé við almanaksmánuði.

 

Samkvæmt meginreglunni í 2. mgr. 8. gr. ffl. var upphafsdagur fæðingarorlofs kæranda fæðingardagur barnsins, þann 10. nóvember 2001. Viðmiðunartímabil við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði verður því samkvæmt framangreindu frá september 2000 til og með ágúst 2001.

 

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi greiðslur í fæðingarorlofi staðfest.

  

ÚRSKURÐARORÐ:

 Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu í fæðingarorlofi til A er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir, hdl. 

Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri

Jóhanna Jónasdóttir, læknir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum