Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 18/2013

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 15. mars 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 13. mars 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 25. janúar 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 19. mars 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 28. mars 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 9. apríl og 24. maí 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 28. maí 2013. 

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að kærð sé ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslu vegna mánaðanna ágúst og september 2012. Athugasemdir hafi verið gerðar við endurkröfu sjóðsins og farið fram á skýringu á hverju sú fullyrðing væri byggð að ekki hafi verið heimilt að þiggja orlofsgreiðslu á sama tíma og launþegi hafi verið í fæðingarorlofi. Komið hafi í ljós að þar hafi verið um að ræða túlkun sjóðsins á 4. mgr. 33. gr. laga 95/2000, þótt ekki hafi verið vísað til þess ákvæðis í greiðsluáskorunum. Í ákvæðinu segi að foreldri sem njóti orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka geti ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Fyrir liggi að áður en ákvæðið hafi verið sett hafi afstaða Fæðingarorlofssjóðs verið sú að ekki skyldi draga frá greiðslur vinnuveitanda vegna ótekins orlofs starfsmanns, hefði réttur til þess áunnist á öðru tímabili.

Spurning sé því hvort setning 4. mgr. 33. gr. breyti nokkru um réttindi þeirra sem taki fæðingarorlof í slíkum tilvikum. Ljóst sé að ákvæðið fjalli um greiðslu orlofslauna og greiðslur vegna starfsloka. Ekki hafi hér verið um að ræða greiðslu vegna starfsloka þar sem fyrir liggi að kærandi muni snúa aftur til starfa hjá vinnuveitanda sínum að fæðingarorlofi loknu.

Þá segi í 4. mgr. 33. gr. að foreldri sem njóti orlofslauna geti ekki nýtt sér rétt sinn til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Þetta skilyrði sé í fullu samræmi við 3. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. sem kveði á um að eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Kærandi hafi fengið útgreidda fimmtán orlofsdaga, sex í ágúst 2012 að fjárhæð X kr. og níu í september 2012 að fjárhæð X kr. Það hafi verið gert að henni fornspurðri. Kærandi hafi áunnið sér umrædd orlofsréttindi á orlofsárinu maí 2011 til apríl 2012 líkt og fram komi í vottorðum vinnuveitanda, og hefðu allt eins getað verið greiddar út í hverjum mánuði þess orlofsárs. Í tilviki kæranda hafi þeim hins vegar verið safnað saman og komið til greiðslu í ágúst og september 2012. Greiðslurnar hafi því átt við um annað tímabil en þegar kærandi hafi verið í fæðingarorlofi og því ætti að fara um þær eins og Fæðingarorlofssjóður hafi afgreitt hingað til. Í samræmi við 4. mgr. 33. gr. og 3. málsl. 10. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 sé þess því krafist að orlofsgreiðslurnar komi ekki til frádráttar greiðslum til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. desember 2012, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir ágúst og september 2012 ásamt útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Bréf hafi borist frá kæranda, dags. 16. janúar 2013, og frá vinnuveitanda kæranda, dags. 12. janúar 2013, ásamt umbeðnum launaseðlum. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 21. janúar 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar. Ekki hafi verið gerð krafa um 15% álag þar sem fyrir hafi legið í gögnum málsins að kæranda hafi eigi verið kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar sjóðsins. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. ágúst 2012 og innsendum gögnum og skýringum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 10. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Þann 25. janúar 2013 hafi kæranda verið send leiðrétt greiðsluáskorun en kærandi hafi verið afgreidd í fæðingarorlof frá röngum upphafsdegi í ágúst 2012. Við það hafi krafa fyrir ágúst lækkað úr X kr. í X kr. Heildarendurkrafa fyrir ágúst og september 2012 hafi þannig lækkað úr X kr. í X kr.

Í kjölfarið hafi borist tölvupóstur frá lögfræðingi kæranda, dags. 28. janúar 2013, og honum verið svarað þann 29. janúar 2013. Í þeim tölvupósti hafi ranglega verið vísað til 4. mgr. 33. gr. ffl. enda hafi ekki verið um að ræða orlofsgreiðslu vegna starfsloka heldur hafi einfaldlega verið að greiða út hluta af orlofi á sama tíma og fæðingarorlof.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Með umsókn kæranda, dags. 4. júní 2012, hafi hún sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. ágúst 2012. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hún verið afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 28. ágúst 2012.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í bréfi kæranda, dags. 16. janúar 2013, komi meðal annars fram að þegar kærandi hafi farið í fæðingarorlof hafi hún átt inni rúmlega þrjár vikur í orlof (orlofsár 1. maí 2011 til 30. apríl 2012) sem hún hafi ekki getað tekið áður en hún hafi hafið fæðingarorlof. Vinnuveitandi hennar hafi talað við hana í byrjun september og útskýrt að hann hafi greitt út hluta af orlofinu með ágústlaunum og að restin myndi fylgja í september. Honum hafi fundist óþægilegt að kærandi tæki orlofið út árið 2013 þegar hún kæmi til baka úr fæðingarorlofi.

Í bréfi vinnuveitanda kæranda, dags. 12. janúar 2013, komi fram að þegar kærandi hafi farið í fæðingarorlof hafi hún átt inni óuppgert sumarorlof vegna orlofsársins 1. maí 2011 til 30. apríl 2012 sem hafi verið gert upp við hana í ágúst og september 2012.

Í ágúst 2012 hafi kærandi þegið samtals X kr. í laun og orlofsgreiðslur frá vinnuveitanda sínum. Þannig hafi kærandi haldið fullum launum í ágúst 2012 og fengið sem svari 10% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir ágúst 2012 sé því X kr. útborgað.

Í september 2012 hafi kærandi þegið X kr. í orlofslaun frá sínum vinnuveitanda. Hún hafi því fengið sem svari 44% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því mátt þiggja 56% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir septembermánuð 2012 sé því X kr. útborgað.

Samkvæmt 1. gr. laga um orlof, nr. 30/1987, eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga sé fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau séu reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segi: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“

Samkvæmt framangreindu hafi meginreglan virst vera sú að greiða eigi orlofslaun samkvæmt orlofslögum við upphaf orlofstöku. Ekki verði því annað séð en orlofslaunum sé ætlað að mæta því tímabili sem töku orlofs sé ætlað að standa yfir alveg eins og greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé ætlað að mæta þeim tíma sem foreldri sé í fæðingarorlofi. Ekki sé því hægt að líta svo á að heimilt sé að greiða orlofslaun skv. 7. gr. orlofslaga á sama tíma og fyrir sama tímabil og foreldri sé í fæðingarorlofi og fái greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 10. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl. og til dæmis úrskurðir úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 43/2012, 44/2010 og 6/2011.

Í samræmi við framangreint sé því litið svo á að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 10. mgr. 13. gr. ffl., þar sem greiðslur frá vinnuveitanda kæranda í ágúst og september 2012 séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Við mat á því hvort foreldri hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sé ekki önnur leið fær en að horfa til þess hvort greiðslur frá vinnuveitanda séu hrri en sem nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna þeirra á viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl. að teknu tilliti til launabreytinga fram að fæðingu barns, ef um það sé að ræða, á greiðslutímabili Fæðingarorlofssjóðs. Við það mat sé alltaf horf á hvern og einn almanaksmánuð og hlutfall fæðingarorlofs í hverjum mánuði, sbr. meðal annars 2. mgr. 10. gr. ffl. og athugasemdir við þær greinar og til dæmis úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 30/2011 og 20/2012.  

Ljóst sé að ákvæðið opni því ekki á það að foreldri geti valið að vera í fæðingarorlofi hluta dags eða hluta mánaðar og lagt niður vinnu þann tíma en síðan bætt upp það tekjutap sem af því hlýst með frekari vinnu, til dæmis yfirvinnu, seinni hluta sama dags eða mánaðar eða með aukavinnu, bónusþóknunum, árangursþóknunum, bakvöktum, sérverkefnum eða með því að fá greidd orlofslaun og það leiði þannig til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði komi í raun til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti væri enda tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónamið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki náð.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað. Ekki sé gerð krafa um 15% álag. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. leiðrétta greiðsluáskorun til hennar, dags. 25. janúar 2013. Ekki sé gerð krafa um 15% álag.

 

III. Athugasemdir kæranda.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að málið snúist í raun um reglur um orlofslaun samkvæmt lögum nr. 30/1987. Orlofslaun megi greiða á ýmsan hátt og ýmsum tímum. Þau séu hins vegar áunnin jafnharðan og unnið sé og skuli nema a.m.k. 10,17% af mánaðarlaunum.

Í fyrsta lagi megi greiða mánaðarkaupsmönnum orlofslaun á sama tíma og reglubundnar launagreiðslur fara fram, sbr. 4. mgr. 7. gr. laga um orlof. Í öðru lagi megi greiða þau fyrsta virka dag fyrir töku orlofs, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Í tilviki kæranda hafi hins vegar hvorugt verið gert. Hún hafi ekki farið í orlof samkvæmt lögum nr. 30/1987 í ágúst eða september 2012, heldur hafi hún farið í fæðingarorlof.

Greiðslur þær sem inntar hafi verið af hendi af vinnuveitanda kæranda í ágúst og september 2012 vegna orlofsdaga geti því með engu móti talist hafa verið fyrir það tímabil, sem skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. skuli eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Orlofsinneign þessi sem komið hafi til greiðslu í ágúst og september 2012 samkvæmt ákvörðun vinnuveitanda kæranda hafi verið áunnin á allt öðru tímabili eða orlofsárinu 1. maí 2011 til 30. apríl 2012. Inneigninni hafi verið ætlað að bæta upp tekjutap á orlofsdögum sem enn hafi verið óteknir. Þeir hafi ekki verið nýttir í ágúst og september 2012.

Þótt vinnuveitandi kæranda hafi greitt af hendi orlofslaun sé alls ekki hægt að líta svo á að kærandi hafi þar með verið komin í sumarfrí á sama tíma og hún hafi verið í fæðingarorlofi. Hér sé aðeins um það að ræða að vinnuveitandi hafi ekki að öllu leyti farið eftir 7. gr. laga um orlof. Það geti ekki verið markmið laga um fæðingarorlof að það bitni á kæranda.

 

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. ágúst 2012. Ekki er gerð krafa um 15% álag og kemur það því ekki til skoðunar.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í ágúst og september 2012 á sama tíma og hún þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. ágúst 2012. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá febrúar 2011 til janúar 2012. Í greiðsluáætlun, dags. 28. ágúst 2012, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því 300.000 kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun frá 25. janúar 2013 má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í X kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í ágúst og september 2012 var henni einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hennar eins og þau voru hækkuð skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hennar kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 og X kr. í september 2012. Henni var því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 og X kr. í september 2012 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun auk orlofs frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 og X kr. í september 2012, en ljóst er að útborgun orlofs telst til réttinda sem eru ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl.

Það er kjarni þessa máls hvernig eigi að túlka ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um „sama tímabil [..] og þær greiðslur eiga við um“, sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um „greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“.

Ekki er unnt að fallast á að í þessum ákvæðum sé verið að vísa til þess tímabils þegar unnið er til orlofslauna. Launþegar vinna almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér eru ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok. Það virðist þannig hafið yfir vafa að umrædd orlofsgreiðsla var „ætluð fyrir tímabil“ og „átti við um“ það tímabil þegar kærandi var í fæðingarorlofi.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en henni var heimilt fyrir ágúst og september 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þá mánuði því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri henni að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum