Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 91/2012

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 30. október 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 29. október 2012. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 2. ágúst 2012, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 31. október 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 2. nóvember 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 8. nóvember 2012, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að Fæðingarorlofssjóður hafi sent kæranda bréf þann 20. júní 2012 þess efnis að sjóðurinn hefði til meðferðar mál vegna hugsanlegrar ofgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði. Óskað hafi verið eftir gögnum og rökstuðningi vegna málsins og hafi það verið sent sjóðnum.

Þann 2. ágúst 2012 hafi Fæðingarorlofssjóður sent kæranda greiðsluáskorun. Kærandi hafi talið að um ranga túlkun á málsatvikum hafi verið að ræða og því skrifað nýtt erindi til Fæðingarorlofssjóðs. Nýtt svar hafi borist kæranda þar sem ítrekað sé að endurkrafa sjóðsins byggi á 4. mgr. 33. gr. laga nr. 95/2000. Í greininni segi að foreldri sem njóti orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka geti ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögunum á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um.

Kærandi hafi verið starfsmaður hjá V ehf. til 10. febrúar 2012 en kærandi hafi sagt upp starfi hjá fyrirtækinu þann 31. janúar 2012 og komist að samkomulagi við vinnuveitanda um að starfslok yrðu þann 10. febrúar 2012 eða við fæðingu barns, hvort sem á undan kæmi. Barn kæranda fæddist þann Y. febrúar 2012 og fæðingarorlof kæranda hafi hafist þá.

Þann 1. mars 2012 hafi vinnuveitandi kæranda greitt honum laun fyrir 1.-10. febrúar 2012 auk áunnins ónýtts orlofs frá 30. maí 2011 til 10. febrúar 2012 í samræmi við 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987. Hér sé því einfaldlega um að ræða uppgjör áunninna orlofsréttinda í samræmi við lög. Í bréfi frá vinnuveitanda kæranda sé staðfest að kærandi hafi sannanlega lagt niður störf og að einungis sé um uppgjör vegna starfsloka að ræða.

Jafnvel þótt skilningur sjóðsins sé sá að greiðslan falli annaðhvort undir skilgreiningu á orlofslaunum eða starfslokagreiðslu þá sé sérstaklega tekið fram að foreldri sé óheimilt að taka við greiðslum frá Fæðingarorlofssjóði og öðrum launagreiðslum á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Ljóst sé að greiðsla vegna uppgjörs áunninna ónýttra orlofsréttinda sem áunnin hafi verið frá 30. maí 2011 til 10. febrúar 2012 geti á engan hátt talist greiðsla fyrir tímabilið frá Y. febrúar 2012 til 29. febrúar 2012.

Kærandi vísar einnig til ákvæðis 10. mgr. 13. gr. ffl. þar sem skýrt sé tekið fram að eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Þar að auki sé staðfest að á tímabilinu frá 11. febrúar 2012 til 16. mars 2012 hafi kærandi ekki verið starfsmaður neins fyrirtækis og gæti því ekki hafa þegið greiðslur frá neinum vinnuveitanda fyrir það tímabil. Þetta leiði einnig til þess að enginn ágreiningur sé um hvort kærandi hafi sannanlega lagt niður störf á því tímabili sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi.

Af þessu leiði að þær greiðslur sem koma skuli til frádráttar skv. 10. mgr. 13. ffl. séu engar og því ljóst að mati kæranda að útreikningar sjóðsins sem ákvörðunin byggi á eigi sér ekki stoð í lögum.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. júní 2012, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir febrúar og mars 2012, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Þann 28. júní 2012 hafi borist útskýring frá vinnuveitanda kæranda, dags. 27. júní 2012, ásamt umbeðnum launaseðlum. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 2. ágúst 2012, þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar febrúar 2012. Ekki hafi verið gerð krafa vegna marsmánaðar 2012 né heldur um 15% álag. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. febrúar 2012 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir febrúar 2012 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, 3. og 14. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Í kjölfarið hafi borist tölvupóstur frá kæranda, dags. 8. ágúst 2012, sem ekki hafi verið talinn gefa tilefni til að breyta fyrri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs í málinu, sbr. tölvupóst til kæranda, dags. 27. ágúst 2012.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Í bréfi kæranda, dags. 28. júní 2012, hafi meðal annars komið fram að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá V ehf. þann 31. janúar 2012 og í framhaldinu hafi verið gert munnlegt samkomulag við framkvæmdastjóra fyrirtækisins um að láta af störfum frá og með fæðingardegi barnsins eða 10. febrúar 2012, hvort sem á undan kæmi. Kærandi hafi látið af störfum þann 10. febrúar 2012. Við starfslok hafi kærandi átt uppsöfnuð orlofsréttindi hjá fyrirtækinu. Orlofið hafi safnast upp frá lokum maí 2011 og ekkert af orlofinu hafi verið nýtt eða greitt út áður. Orlofið hafi því verið greitt út í einu lagi í febrúar 2012 ásamt launum fyrir 1.-10. febrúar 2012. Á launaseðli hafi hluti orlofsins verið látinn ganga upp í mánaðarlaunagreiðslu frá 11. febrúar til mánaðarloka og afgangurinn hafi verið í sér línu merkt orlof. Í þessari greiðslu fyrir orlof liggi skýringin á því af hverju fjárhæðin hafi verið svo há sem raun beri vitni.

Í bréfi frá V ehf., dags. 27. júní 2012, komi fram að kærandi hafi hætt störfum hjá fyrirtækinu þann 10. febrúar 2012. Hann hafi þá átt inni orlof sem hafi verið greitt út við starfslok. Eftir 10. febrúar 2012 hafi kærandi því ekki verið á launaskrá hjá fyrirtækinu.

Með umsókn kæranda, dags. 26. desember 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. febrúar 2012. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hann afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 23. febrúar 2012.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hans verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda honum til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í febrúar 2012 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Á launaseðli hafi komið fram að hann hafi fengið greidd full mánaðarlaun en samkvæmt skýringum kæranda liggi það í því að hluti orlofsins hafi verið látinn ganga upp í mánaðarlaunagreiðslu frá 11. febrúar og til mánaðarloka. Kærandi hafi síðan fengið uppgert orlof vegna starfsloka, alls þrjár einingar. Hann hafi því fengið sem svari 99% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því mátt þiggja 1% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir febrúar 2012 sé því X kr. útborgað.

Í kæru kæranda komi fram að hann telji sér heimilt að þiggja uppgjör á orlofi vegna starfsloka og standi hvorki 10. mgr. 13. gr. né 4. mgr. 33. gr. ffl. því í vegi þar sem orlofið hafi verið unnið á tímabili áður en fæðingarorlof hafi hafist og geti á engan hátt talist til greiðslu fyrir það tímabil sem hann hafi verið í fæðingarorlofi.

Eins og að framan hafi verið rakið sé fæðingarorlof skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 10. mgr. 13. gr. ffl. komi svo fram að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna skv. 2. mgr. 13. gr. skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í athugasemdum við 10. mgr. 13. gr. sé svo enn frekar hnykkt á því en þar komi fram að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Framangreindu ákvæði hafi lítillega verið breytt árið 2008, sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008. Við hafi bæst setningin: „Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“ Í athugasemdum við þá breytingu komi þó áfram fram sú fortakslausa regla að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Því hafi breytingin fyrst og fremst virst hafa átt að taka til eingreiðslna og annarra slíkra greiðslna frá vinnuveitendum sem foreldri geti átt rétt á á ákveðnum tíma árs og komi til framkvæmda meðan foreldri sé í fæðingarorlofi en sé ætlað fyrir lengra tímabil en nemi fæðingarorlofi foreldris, sbr. framangreindar athugasemdir með ákvæðinu og tilvitnað dæmi.

Ljóst sé að hluti launa kæranda í febrúar 2012 séu mánaðarlaun vegna vinnu innan mánaðarins eins og fram komi á launaseðli og staðfest sé bæði af kæranda og vinnuveitanda hans eða til 10. febrúar 2012. Stærsti hluti launanna séu þó greiðslur orlofslauna vegna starfsloka skv. 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987.

Samkvæmt 1. gr. orlofslaga eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga sé fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau séu reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segi: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“

Komi til ráðningarslita, sbr. 8. gr. orlofslaga, skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr.

Samkvæmt framangreindu sé meginreglan sú að orlofslaun samkvæmt orlofslögum séu greidd í tvenns konar tilvikum, annars vegar við upphaf orlofstöku og hins vegar við starfslok. Í þeim tilvikum sem starfsmenn fá orlofsgreiðslur frá vinnuveitendum á sama tíma og þeir séu í fæðingarorlofi hafi úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála staðfest að vegna ákvæða 7. gr. orlofslaga verði að líta svo á að starfsmennirnir séu í orlofi en ekki fæðingarorlofi, enda mæli ákvæðið fyrir um að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, sbr. meðal annars úrskurði í málum nr. 20/2011 og 23/2011. Öðru máli gegni hins vegar um orlofsgreiðslur sem starfsmenn fái vegna starfsloka enda sé í orlofslögum ekki gert ráð fyrir því að orlof sé greitt við upphaf orlofstöku þegar um ráðningarslit er að ræða.

Með breytingalögum nr. 136/2011 hafi komið inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011: „Foreldri sem nýtur orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/2011 hafi verið samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum verið 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taki ákvæði þeirra til foreldra barna sem fæðist, séu ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda fæddist eins og áður segir þann 6. janúar 2012 og því eigi ákvæðið við um tilvik kæranda.

Í athugasemdum með lagaákvæðinu sé ekki að finna frekari skýringar en komi fram í lagaákvæðinu sjálfu. Í samræmi við það sé ekki annað fært en að skýra það í samræmi við almenn lögskýringarsjónarmið samkvæmt orðanna hljóðan og að skýra beri yngri lög þannig að þau gangi fyrir eldri lögum ef þau rekist á.

Í ákvæðinu sé þannig ekki gerður greinarmunur á því hvort greiðslur vegna starfsloka séu greiðslur vegna launa í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga. Ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, séu yngri lög gagnvart 8. gr. orlofslaga og gangi því framar ef þau rekist á.

Samkvæmt 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, verði ekki séð að greiðslur vegna starfsloka, hvort heldur um sé að ræða laun í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga, fari saman með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Skýrt sé skv. 8. gr. orlofslaga að komi til ráðningarslita skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr. og því ekki annað hægt en líta svo á að þær greiðslur eigi þá við um tímabil í beinu framhaldi ráðningarslita.

Í því ljósi megi benda á að við mat á þátttöku á innlendum vinnumarkaði skv. a-lið 2. mgr. 13. gr. a ffl. hafi verið staðfest að uppsafnað orlof sem greitt sé út við starfslok hafi talist til tíma við matið. Einnig megi til dæmis benda á í þessu samhengi að einstaklingur sem sækir um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum hafi hann fengið greitt út ótekið orlof við starfslok eða fái greiðslur vegna starfsloka á því tímabili sem þær greiðslur eigi við um. Við umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hinn tryggði taka fram hvenær hann ætli að taka út orlof sitt fyrir lok næsta orlofstímabils, sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Vinnuveitandi kæranda hafi staðfest að hann hafi látið af störfum þann 10. febrúar 2012. Hann hafi þá átt inni orlof sem greitt hafi verið út við starfslok.  

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað, sbr. greiðsluáskorun til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 2. ágúst 2012. Ekki sé gerð krafa um 15% álag.

 

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. febrúar 2012. Ekki er gerð krafa um 15% álag og kemur það því ekki til skoðunar.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í febrúar 2012 á sama tíma og hann þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. febrúar 2012. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá ágúst 2010 til júlí 2011. Í greiðsluáætlun, dags. 23. febrúar 2012, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun frá 2. ágúst 2012 má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í X kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í febrúarmánuði 2012 var honum einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hennar eins og þau voru hækkuð skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hennar kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í febrúar 2012 og var honum því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í febrúar 2012 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun auk ótekins orlofs vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum í febrúar 2012 að fjárhæð X kr., en ljóst er að útborgun ótekins orlofs vegna starfsloka telst til réttinda sem eru ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl.

Það er kjarni þessa máls hvernig eigi að túlka ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um „sama tímabil [..] og þær greiðslur eiga við um“, sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um „greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“.

Ekki er unnt að fallast á að í þessum ákvæðum sé verið að vísa til þess tímabils þegar unnið er til orlofslauna. Launþegar vinna almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér eru ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok. Það virðist þannig hafið yfir vafa að umrædd orlofsgreiðsla var „ætluð fyrir tímabil“ og „átti við um“ það tímabil þegar kærandi var í fæðingarorlofi.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en honum var heimilt fyrir febrúarmánuð 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þá mánuði því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri honum að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A, skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum