Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 18/2011

Fimmtudaginn 5. janúar 2012

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 11. október 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 10. október 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 22. september 2011, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði ásamt viðbættu álagi.

Með bréfi, dags. 11. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 26. október 2011. Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 1. nóvember 2011, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

Hinn 7. desember 2001, barst úrskurðarnefndinni afrit af bréfi frá Fæðingarorlofssjóði til kæranda, dags. 7. desember 2011, þar sem fram kemur að vegna mistaka í útreikningi á endurkröfu og vegna nýrra gagna, þ.e. launaseðils fyrir maímánuð 2011, hafi Fæðingarorlofssjóður afturkallað þá stjórnsýsluákvörðun sem tekin var í máli kæranda með vísan til 1. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Jafnframt er kæranda tilkynnt að hann megi búast við því að fá nýja greiðsluáskorun sem sé kæranleg til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) er hlutverk úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli ffl. Í 1. mgr. 6. gr. ffl. segir að kæra skuli berast skriflega innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt 4. mgr. 6. gr. ffl. skal um málsmeðferð fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga að öðru leyti en því sem fram kemur í ffl.

Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga er aðila máls heimilt að kæra stjórnvaldsákvörðun til æðra stjórnvalds til þess að fá hana fellda úr gildi eða henni breytt nema annað leiði af lögum eða venju.

 

Með hliðsjón af því að ekki liggur fyrir kæranleg ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs verður að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni. Komi upp ágreiningur þegar fyrir liggur ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um rétt kæranda á grundvelli ffl. er sú ákvörðun kæranleg til nefndarinnar.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum