Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 35/2010

Fimmtudaginn 11. nóvember 2010

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

 

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 15. september 2010 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 10. september 2010. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 14. júní 2010, um útreikning á greiðslum til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði og viðmiðunartímabil útreikningsins.

Með bréfi, dags. 17. september 2010, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 23. september 2010.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 24. september 2010, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að 14. júní 2010 hafi umsókn hennar verið samþykkt og mánaðarlegar greiðslur ákvarðaðar. Til viðmiðunar hafi verið tekið meðaltal launa frá desember 2008 til nóvember 2009. Helming þessa tíma hafi hún verið í námi og þar af leiðandi tekjulaus, hinn helminginn hafi hún haft stopula vinnu og verið atvinnulaus mánuðina október og nóvember 2009. Frá áramótunum 2009/2010 hafi hún starfað hjá B, sem hafi verið þriggja mánaða átaksverkefni í gegnum Vinnumálastofnun. Hún hafi síðan farið á atvinnuleysisbætur áður en hún fæddi barn Y. júní sl.

Kærandi telur að viðmiðunartímabilið gefi því mjög ranga mynd af raunverulegum tekjum hennar fyrir töku fæðingarorlofs þar sem heildartekjur hennar síðustu 11 mánuði fyrir fæðingu barns hafi verið X kr. Hins vegar sé aðeins gert ráð fyrir X kr. í greiðsluáætlun en samkvæmt núgildandi reglum sé viðmiðunartímabilið tólf mánuðir aftur í tímann, sex mánuðum fyrir fæðingu barns.

Kærandi greinir frá því að þar sem hún hafi verið í námi hafi hún verið með skertan bótarétt til atvinnuleysisbóta og fengið aðeins greiddar 59% bætur. Kærandi greinir frá því að henni þyki ósanngjarnt að sér sé hegnt fyrir skertan bótarétt í tvígang þar sem atvinnuleysisbæturnar séu notaðar sem viðmiðun við útreikning annarra bóta.

Kærandi krefst þess að miðað verði við tekjur síðustu tólf mánuði fyrir fæðingu barns, þ.e. frá Y. júní 2009 til Y. júní 2010 eða að miðað verði við 100% bótarétt úr Atvinnuleysistryggingasjóði við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 22. mars 2010, sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 26. maí 2010. Auk umsóknar kæranda hafi borist vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 8. mars 2010, tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs, dags. 23. mars 2010, launaseðlar fyrir janúar og febrúar 2010, prófskírteini, dags. 29. maí 2010, greiðslusaga atvinnuleysistrygginga, dags. 2. mars 2010, tölvupóstur frá Vinnumálastofnun, dags. 27. apríl 2010, og tölvupóstur og greiðslusaga atvinnuleysistrygginga, dags. 14. júní 2010. Enn fremur hafi legið fyrir upplýsingar úr skrám ríkisskattstjóra og Þjóðskrá Íslands.

Þann 14. júní 2010 hafi kæranda verið send greiðsluáætlun með útreikningum á væntanlegum greiðslum þar sem fram komi að mánaðarleg greiðsla sé X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Fæðingarorlofssjóður vísar í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, (ffl.), sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, þar sem kveðið sé á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og skal aldrei taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að átt sé við almanaksmánuði.

Þá vísar Fæðingarorlofssjóður í 3. mgr. 15. gr. ffl. þar sem kveðið sé á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að fæðingardagur barns kæranda sé Y. júní 2010 og því skuli mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda samkvæmt framangreindum lagaákvæðum reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið desember 2008–nóvember 2009, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting um að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Á tímabilinu desember 2008–maí 2009 hafi kærandi stundað fullt nám við C-háskóla, sbr. prófskírteini dags. 29. maí 2009, og því hafi hún ekki verið á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. á því tímabili. Því beri að undanskilja þá mánuði við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar. Í júní og júlí 2009 hafi kærandi þegið laun frá D sem höfð séu með við útreikninginn. Í júlí hafi kærandi þegið laun frá E og í ágúst 2009 hafi kærandi þegið laun frá F hf. sem einnig séu höfð með við útreikninginn. Kærandi hafi auk þess fengið greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði fyrir tímabilið 17. ágúst 2009–30. nóvember 2009 sem séu ekki tekjutengdar en hafðar með við útreikninginn. Kærandi hafi auk þess fengið greiðslur frá Félagsþjónustu G-bæjar í október og nóvember 2009 sem séu undanskildar við útreikning á meðaltali heildarlauna þar sem ekki sé greitt af þeim tryggingagjald.

Að lokum greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að í ffl. og í reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda né heldur því tímabili sem miða skuli við útreikninginn.

Með vísan til framangreinds telur Fæðingarorlofssjóður að bréf til kæranda, dags. 14. júní 2010, hafi falið í sér réttan útreikning á réttindum kæranda.

 

IV.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 14. júní 2010, um útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Þegar um er að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, á viðmiðunartímabili skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við. Þó er tekið fram í greinargerð með frumvarpi um 8. gr. laga nr. 74/2008 að ekki sé átt við styrki sem foreldri kann að hafa fengið úr Atvinnuleysistryggingasjóði eða sjúkrasjóðum stéttarfélaga á tímabilinu heldur eingöngu þær greiðslur sem ætlað er að koma í stað launa. Einungis skal miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. ffl. Aldrei skal þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 13. gr. a. ffl., sbr. 9. gr. laga nr. 74/2008, er skilgreint hvað felist í því að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. Þar segir í 1. mgr. að þátttaka á innlendum vinnumarkaði feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi.

Í 2. mgr. 13. gr. a ffl. segir að til þátttöku á vinnumarkaði teljist enn fremur:

 

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

 

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

 

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

 

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

 

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda er fætt Y. júní 2010 og því er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. tímabilið desember 2008 til og með nóvember 2009.

Af hálfu kæranda er farið fram á að miðað verði við tekjur hennar síðastliðna tólf mánuði fyrir fæðingu barns, þ.e. frá Y. júní 2009 til Y. júní 2010. Hvorki er heimilt samkvæmt ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að líta til launa kæranda á öðru tímabili en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning meðaltals heildarlauna og greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði eða miða við önnur laun en foreldri raunverulega hafði á viðmiðunartímabilinu. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin ekki unnt að fallast á kröfu kæranda um að miða skuli við annað viðmiðunartímabil.

Viðmiðunartímabil meðaltals heildarlauna kæranda er því tímabilið desember 2008 til og með nóvember 2009. Kærandi var í fullu námi við C-háskóla í desember 2008 sem og í janúar til og með maí 2009. Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra fékk kærandi greidd laun frá D í júní og júlímánuði árið 2009. Teljast þau laun með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Þá fékk kærandi greidd laun frá E í júlímánuði 2009 og frá F hf. í ágústmánuði sama ár. Teljast þau laun einnig með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Kærandi fékk greiðslur frá Félagsþjónustu G-bæjar í október og nóvembermánuði 2009. Greiðslur frá félagsþjónustu sveitarfélaga eru ekki meðal þeirra greiðslna sem taldar eru upp í 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sbr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fellur ekki undir tilvik sem tilgreind eru í stafliðum a–e í 2. mgr. 13. gr. a ffl. Með vísan til þess skulu þær greiðslur sem kærandi fékk í október og nóvembermánuði 2009 ekki reiknaðar með við útreikning meðaltals heildarlauna hennar. Kærandi fékk greiðslur frá Vinnumálastofnun-Greiðslustofu í september, október og nóvember 2009. Samkvæmt gögnum málsins átti kærandi rétt til 59% greiðslna frá stofnuninni á tímabilinu. Voru þær greiðslur ekki tekjutengdar. Í greinargerð með frumvarpi um 8. gr. laga nr. 74/2008 um 8. gr. er tekið fram að við útreikning meðaltals heildarlauna skuli ekki miða við viðmiðunartekjur sem greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði miðuðust við þegar um er að ræða styrki sem foreldri kann að hafa fengið úr Atvinnuleysistryggingasjóði heldur eingöngu þegar um er að ræða greiðslur sem ætlað er að koma í stað launa. Í því tilviki sem hér um ræðir er kærandi með ótekjutengdar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á umræddu tímabili og verður því miðað við þær greiðslur til hennar við útreikning meðaltals heildarlauna en ekki viðmiðunartekjur.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 14. júní 2010, talin fela í sér réttan útreikning á þeim greiðslum sem kærandi á rétt á úr Fæðingarorlofssjóði, og verður hún því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna til A úr Fæðingarorlofssjóði er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum