Hoppa yfir valmynd
7. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 26/2010

Fimmtudagurinn 7. október 2010

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 9. júlí 2010 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 1. júlí 2010. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með greiðsluáskorun, dags. 23. mars, og leiðréttri greiðsluáskorun, dags. 5. ágúst 2010, um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 22. júlí 2010, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 5. ágúst 2010.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 6. ágúst 2010, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann hafi farið í hálft fæðingarorlof vegna fæðingar tvíbura og auk þess tekið að sér aukavinnu til að reyna að ná endum saman. Laun sem hafi verið í boði fyrir hann hafi ekki dugað til framfærslu fjölskyldunnar en í dag séu báðir foreldrarnir atvinnulausir og því eigi hann erfitt með að greiða til baka þá fjárhæð sem hann sé krafinn um af Fæðingarorlofssjóði.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 3. nóvember 2009, vakið athygli hans á því að stofnunin væri með mál hans til meðferðar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra hafi tekjur hans ekki lækkað í samræmi við hlutfall fyrirhugaðs fæðingarorlofs. Með bréfinu hafi því verið óskað eftir launaseðlum fyrir tímabilið maí 2008 til júní 2009 ásamt útskýringum frá vinnuveitendum og útskýringum og andmælum kæranda sjálfs.

Þann 20. nóvember 2009 hafi borist útskýringar kæranda og þann 27. nóvember 2009 hafi borist launaseðlar fyrir mánuðina maí og ágúst til desember 2008 og janúar, maí, júní og ágúst 2009. Hvorki hafi borist launaseðlar fyrir júní og júlí 2008 og febrúar til apríl 2009 né heldur skýringar frá vinnuveitanda. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 17. febrúar 2010, og önnur þann 23. mars 2010.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í kæru komi fram þær viðbótarskýringar kæranda að hann hafi tekið fæðingarorlof hálfan daginn en einnig tekið að sér aukavinnu til að ná endum saman. Samkvæmt því telji Fæðingarorlofssjóður að kærandi mótmæli því ekki að hafa unnið meira en hann hafi mátt.

Fæðingarorlofssjóður vísar í ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) þar sem fram komi að fæðingarorlof samkvæmt lögunum sé leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Þá vísar fæðingarorlofssjóður í ákvæði 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, þar sem kveðið sé á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, og úrskurðum úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 41/2009 og 15/2010 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 segi orðrétt:

„Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. Þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.“

Þá bendir Fæðingarorlofssjóður á að í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 segi orðrétt:

„Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.“

Fæðingarorlofssjóður vísar til 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, þar sem fram komi hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld séu skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telur með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Þá bendir Fæðingarorlofssjóður á að í 15. gr. a. ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er hafi leitt til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að upphaf málsins megi rekja til þess að við vinnslu umsóknar kæranda með barni sem fæddist Y. nóvember 2009 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið að fá of há laun greidd frá C ehf. á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í ágúst 2008 til júní 2009 að febrúar 2009 undanskildum. Kærandi hafi því verið upplýstur um að hugsanleg ofgreiðsla hans væri til meðferðar og óskað hafi verið eftir gögnum og skýringum vegna frekari rannsóknar málsins.

Þá greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að kærandi hafi þegið greiðslu frá Vinnumálastofnun-Greiðslustofu í mars 2009, sem komi fram í þeim mánuði í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra alls X kr., sé 100% greiðsla atvinnuleysisbóta vegna febrúar 2009 en á sama tíma hafi kærandi verið skráður í 50% fæðingarorlof og þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Í samræmi við 1. mgr. 33. gr. ffl. hafi það mál verið sent til Vinnumálastofnunar-Greiðslustofu til frekari skoðunar og innheimtu.

Enn fremur greinir Fæðingarorlofssjóður frá því að eftir að kæra hafi komið fram hafi sjóðurinn tekið eftir að við útsendingu fyrri greiðsluáskorana hafi láðst að taka tillit til þess starfshlutfalls sem kæranda hafi verið heimilt að sinna samhliða fæðingarorlofstöku. Hafi kæranda í framhaldinu verið send ný greiðsluáskorun, dags. 5. ágúst 2010, þar sem krafa um endurgreiðslu með 15% álagi hafi verið lækkuð úr X kr. í X kr. fyrir mánuðina september 2008 til júní 2009 að febrúar 2009 undanskildum. Ekki sé gerð krafa vegna ágúst 2008 eins og gert hafði verið í fyrri greiðsluáskorunum þar sem sá mánuður sé að mati Fæðingarorlofssjóðs í lagi.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að á umsókn kæranda, dags. 14. apríl 2008, um greiðslur úr sjóðnum með börnum fæddum Y. júní 2008 komi fram að hann sæki um greiðslur í fjóra mánuði. Á afsali á sameiginlegum rétti foreldra, dags. 24. júní 2008, komi fram að móðir afsali til kæranda sameiginlegum rétti til fæðingarorlofs og á eyðublaðinu sem nefnist breyting á tilhögun fæðingarorlofs sem sé dagsett sama dag komi fram að kærandi ætli að taka 100% fæðingarorlof frá Y. júní til Y. ágúst 2008 og 50% fæðingarorlof frá september 2008 til 1. september 2009. Kæranda hafi verið send greiðsluáætlun um það, dags. 26. júní 2008. Síðar hafi kærandi afsalað eftirstöðvum af sameiginlegum rétti fæðingarorlofs til móður, sbr. afsal á sameiginlegum rétti, dags. 10. desember 2008, og stytt töku fæðingarorlofs, sbr. tilkynningu um fæðingarorlof, dags. 29. desember 2008, en á henni komi fram að orlofi sé dreift á lengri tíma samhliða vinnu í skertu starfshlutfalli, þ.e. 50%. Upphafsdagur fæðingarorlofs sé skráður frá 1. september 2008 til 30. júní 2009 í 50% fæðingarorlof sem sé sá tími sem kærandi hafi verið afgreiddur með en áður hafi hann verið í 100% fæðingarorlofi frá Y. júní til Y. ágúst 2008.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. með börnum fæddum Y. júní 2008 sem sé tímabilið frá desember 2006 til nóvember 2007 hafi meðaltekjur kæranda verið X kr. og 50% af þeirri fjárhæð sé X kr. sem sé sú fjárhæð sem notuð hafi verið við mat á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 9. mgr. 13. gr. ffl.

Í september 2008 til júní 2009 (febrúar 2009 sé undanskilinn, sbr. umfjöllun að framan) hafi kærandi verið skráður í 50% fæðingarorlof og þegið 50% greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði eða X kr. á mánuði alla mánuðina. Kærandi hefði á sama tíma mátt fá frá vinnuveitanda greitt 50% af meðaltali heildarlauna sinna af viðmiðunartímabilinu eða X kr.

Í september 2008 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í október 2008 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í nóvember 2008 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í desember 2008 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í janúar 2009 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í mars 2009 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í apríl 2009 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað, í maí 2009 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað og í júní 2009 hafi kærandi fengið X kr. frá vinnuveitanda og ofgreiðslan því numið X kr. eða X kr. útborgað.

Fæðingarorlofssjóður bendir enn fremur á að líkt og fram komi í kæru virðist sem kærandi hafi tekið að sér aukavinnu til að ná endum saman. Ekki verði því séð að tilefni sé til að fella niður 15% álagið, sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl. og 6. gr. reglugerðar nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, af þeim sökum.

Samkvæmt öllu framangreindu og í samræmi við 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl. telur Fæðingarorlofssjóður að sjóðurinn hafi ofgreitt kæranda alls X kr. útborgaðar og að viðbættu 15% álagi X kr. sem gerð sé krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði í samræmi við greiðsluáskorun, dags. 5. ágúst 2010.

Þann 21. maí 2010 hafi kæranda verið sent bréf og hann upplýstur um að skuld hans við Fæðingarorlofssjóð hefði verið send til innheimtumanns ríkissjóðs skv. 3. og 4. mgr. 15. gr. a. ffl. og 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1218/2008, til frekari innheimtu. Við álagningu skattyfirvalda þann 1. ágúst sl. hafi innheimtumaður skuldajafnað X kr. á móti inneign kæranda hjá skatti. Eftir standi því X kr. með 15% álagi.

Með vísan til alls framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að kærandi hafi réttilega verið endurkrafinn um greiðslur frá sjóðinum vegna fæðingarorlofs með börnum fæddum Y. júní 2008, sbr. greiðsluáskorun dags. 5. ágúst 2010.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar tvíbura hans hinn Y. júní 2008.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið of há laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði.

Eftir að kæra var lögð fram lækkaði Fæðingarorlofssjóður kröfu sína um endurgreiðslu á X kr. með 15% álagi þar sem sjóðnum hafði láðst að taka tillit til þess starfshlutfalls sem kæranda var heimilt að sinna samhliða fæðingarorlofstöku. Þá var krafa um endurgreiðslu vegna ágústmánaðar 2008 jafnframt felld niður. Var kæranda í samræmi við þetta send ný greiðsluáskorun, dags. 5. ágúst 2010. Í þeirri greiðsluáskorun endurkrefur Fæðingarorlofssjóður kæranda um greiðslur vegna septembermánaðar 2008 til júnímánaðar 2009 að febrúarmánuði 2009 undanskildum, samtals að fjárhæð X kr., auk 15% álags eða samtals X kr.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi tekið að sér aukavinnu en verið í fæðingarorlofi hálfan daginn. Á tilkynningu um fæðingarorlof, dags. 29. desember 2008, breytir kærandi tilhögun fæðingarorlofs síns á þann hátt að hann skráir sig í 50% fæðingarorlof samhliða vinnu á tímabilinu 1. september 2008 til 30. júní 2009 í stað tímabilsins frá september 2008 til ágúst 2009.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, eins og ákvæðið hljóðaði við fæðingu barna kæranda Y. júní 2008 skyldi mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skyldi miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kom inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og 8. gr. laga nr. 74/2008 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Í greiðsluáætlun, dags. 26. júní 2008, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof sé samkvæmt því X kr. Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að 50% af X kr. sé X kr. sem sé sú fjárhæð sem notuð var við mat á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 9. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við 80% fæðingarorlof fyrir júnímánuð 2008, að fjárhæð X kr., 100% greiðslu fyrir júlímánuð 2008, að fjárhæð X kr., 20% greiðslu fyrir ágústmánuð 2008, að fjárhæð X kr. og 50% greiðslu fyrir mánuðina september 2008 til júní 2009, að fjárhæð X kr. á mánuði, en líkt og fyrr greinir lýtur endurkrafan að tímabilinu frá september 2008 til júní 2009.

Samkvæmt upplýsingum úr skrám ríkisskattstjóra og þeim launaseðlum sem liggja fyrir í málinu fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum á tímabilinu frá september 2008 til júní 2009 að febrúarmánuði 2009 undanskildum, alls að fjárhæð X kr. fyrir september 2008, X kr. fyrir október 2008, X kr. fyrir nóvember 2009, X kr. fyrir desember 2008, X kr. fyrir janúar 2009, X kr. fyrir mars 2009, X kr. fyrir apríl 2009, X kr. fyrir maí 2009 og X kr. fyrir júní 2009. Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og 8. gr. laga nr. 74/2008 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Er því óhjákvæmilegt að staðfesta niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum, sem var í gildi við fæðingu barna kæranda, skal foreldri ef það telur að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar um hærri greiðslur úr sjóðnum færa skriflega fyrir því rök innan fjögurra vikna frá því að greiðsluáskorun sannanlega barst foreldri. Kærandi hefur engin rök fært fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til hinnar kærðu ákvörðunar. Með vísan til alls framangreinds verður hún því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að krefja A um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar úr Fæðingarorlofssjóði fyrir tímabilið frá september 2008 til júnímánaðar 2009 að febrúarmánuði 2009 undanskildum, er staðfest með vísan til þeirra breytinga sem gerðar voru á henni 5. ágúst 2010.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum