Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 7/2010

Fimmtudaginn 15. apríl 2010

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 5. febrúar 2010 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 1. febrúar 2010. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 5. nóvember 2009, um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks til foreldris í fullu námi. Í bréfinu var tiltekið að kærandi teldist ekki hafa uppfyllt skilyrðið um að hafa stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins þar sem hann hafi einungis lokið tólf einingum haustið 2008 og 20 einingum vorið 2009.

Með bréfi, dags. 8. febrúar 2010, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 10. febrúar 2010.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 11. febrúar 2010, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann hafi lagt stund á fullt nám við Háskóla Íslands. Í ágúst 2009 hafi hann sótt um fæðingastyrk sem námsmaður en barnið hans hafi fæðst Y. október sama ár. Kærandi kveðst hafa sent inn öll tilskilin gögn og gengið út frá því að hann ætti von á greiðslu um mánaðamótin sem hann hafi ekki fengið, en 5. nóvember hafi honum verið synjað um fæðingarstyrk sem námsmanni á grundvelli 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. breytingar á 19. gr. með lögum nr. 74/2008.

Kærandi telur að þrátt fyrir að hann fullnægi ekki skilyrði laganna um viðunandi námsárangur eigi hann rétt á að fá greiddan fæðingarstyrk sem námsmaður en ekki sem foreldri utan vinnumarkaðar.

Kærandi byggir kæru sína á orðalagi og efni ffl., sbr. lög nr. 74/2008. Samkvæmt 16. gr. laga nr. 74/2008 um breytingu á 19. gr. sé krafa um að námsmaður sé í fullu námi sem skv. c-lið 2. gr. reglugerðarinnar sé 75–100% nám, sbr. 4. gr. laganna, sem þurfi að standa yfir a.m.k. síðustu sex mánuði af tólf fyrir fæðingu barns. Enn fremur sé krafa um að námsmaður sýni viðunandi námsárangur en það hugtak sé hvergi skilgreint hvorki í lögunum né orðskýringum í reglugerð.

Samkvæmt 2. gr. ffl. sé markmið laganna að gera konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Með hinni kærðu ákvörðun telur kærandi að fallið hafi verið frá markmiði laganna þar sem hann fullnægi öllum skilyrðum nema þessu ákveðna atriði, þ.e. um viðunandi námsárangur. Þá telur hann að miðað við hversu matskennd og opið umrætt ákvæði sé, sé ekki unnt að synja honum um fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi með umsókn, dags. 31. ágúst 2009, sótt um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmaður í þrjá mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar, 22. september 2009.

Með umsókn kæranda hafi fylgt námsferilsáætlun frá Háskóla Íslands, dags. 3. nóvember 2009, vottorð um skólavist, dags. 28. september 2009, vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 20. júlí 2009, og starfslokavottorð frá B ehf., dags. 8. október 2009. Enn fremur hafi upplýsingar úr Þjóðskrá legið fyrir.

Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 5. nóvember 2009, hafi kæranda verið synjað um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni. Í bréfinu hafi verið tiltekið að kærandi teldist ekki hafa uppfyllt skilyrðið um að hafa stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins þar sem hann hafi einungis lokið tólf einingum haustið 2008 og 20 einingum vorið 2009.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að skv. 1. mgr. 19. gr. ffl., sbr. 16. gr. laga nr. 74/2008, eigi foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og sýnt viðunandi námsárangur rétt á fæðingarstyrk. Foreldri skuli leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að það hafi verið skráð í fullt nám og sýnt viðunandi námsárangur. Heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms í stað námsárangurs á þeirri skólaönn sem barn fæðist.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að skilgreiningu á fullu námi sé að finna í 4. mgr. 7. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008. Þar komi fram að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75–100% samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem standi yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur sé átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljist ekki til náms.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að fæðingardagur barns kæranda hafi verið Y. október 2009 og verði því við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám samfellt í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins að horfa til tímabilsins frá Y. október 2008 fram að fæðingardegi barnsins.

Þá greinir sjóðurinn frá því að samkvæmt námsferilsáætlun frá Háskóla Íslands, dags. 3. nóvember 2009, hafi kærandi lokið 12 ECTS einingum á haustönn 2008 og á vorönn 2009 hafi kærandi lokið 20 ECTS einingum.

Þegar um sé að ræða nám við háskóla teljist 30 ECTS einingar á önn vera 100% nám og því teljist 22–30 ECTS einingar vera fullt nám samkvæmt ffl. Með hliðsjón af þeim gögnum sem fyrir liggi fyrir um námsframvindu kæranda líti Fæðingarorlofssjóður svo á að kærandi uppfylli ekki almenna skilyrðið um að hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. sex mánuði síðustu tólf mánuðina fyrir fæðingardag barns.

Með vísan til alls framangreinds telur Fæðingarorlofssjóður að umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni hafi réttilega verið synjað með bréfi, dags. 5. nóvember 2009.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni hinn 5. nóvember 2009.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. ffl., sbr. 16. gr. laga nr. 74/2008, eiga foreldrar sem verið hafa í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og sýnt viðunandi námsárangur rétt til fæðingarstyrks. Foreldri skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að það hafi verið skráð í fullt nám og sýnt viðunandi námsárangur. Heimilt er að taka tillit til ástundunar náms í stað námsárangurs á þeirri skólaönn sem barn fæðist.

Í 4. mgr. 7. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir að fullt nám samkvæmt lögunum sé 75–100% nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur sé átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljist ekki til náms.

Barn kæranda er fætt hinn Y. október 2009. Tólf mánaða viðmiðunartímabil skv. 1. mgr. 19. gr. ffl. er því tímabilið frá Y. október 2008 fram að fæðingu barnsins. Samkvæmt vottorði frá Háskóla Íslands, dags. 28. september 2009, var kærandi skráður stúdent við skólann háskólaárin 2008–2009 og 2009–2010. Þar kemur reyndar ekki fram hvort kærandi hafi verið skráður í fullt nám. Það hefur hins vegar ekki sérstaka þýðingu í málinu þar sem fram kemur á yfirliti frá Háskóla Íslands, dags. 3. nóvember 2009, að kærandi lauk einungis 12 einingum á haustönn 2008 og 20 einingum á vorönn 2009.

Í upphafsmálslið 1. mgr. 19. gr. ffl. segir að foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns og sýnt viðunandi námsárangur eigi sjálfstæðan rétt til fæðingarstyrks. Hvorki er að finna nánari skilgreiningu á hugtakinu viðunandi námsárangur í ffl. né lögskýringargögnum. Hins vegar liggur fyrir að fullt nám við Háskóla Íslands er 30 einingar á önn og fullt nám í skilningi ffl. er samkvæmt því 22–30 einingar, sbr. 4. mgr. 7. gr. ffl. Með vísan til upphafsmálsliðar 1. mgr. 19. gr. ffl. lítur nefndin svo á, að við túlkun á hugtakinu viðunandi námsárangur þurfi að líta til skilgreiningar laganna á fullu námi. Með vísan til framangreinds telst kærandi því ekki hafa verið í fullu námi og sýnt viðunandi námsárangur í skilningi ffl., hvorki á haustönn 2008 né vorönn 2009 og verður hann því ekki talinn uppfylla skilyrði ffl. um fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum