Hoppa yfir valmynd
18. september 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 31/2009

Föstudaginn 18. september 2009

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 31. júlí 2009 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 26. júní 2009.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 15. júní 2009 um að synja kæranda um framlengingu á fæðingarorlofi.

 

Í rökstuðningi með kæru segir:

„Var að sækja um framlengingu á fæðingarorlof þar sem ég fæddi barn í janúar á þessu ári með klofin mjúkgóm. Þeirri beiðni var hafnað með þeirri útskýringu að barnið þurfi ekki frekari umönnun foreldris, en ég og læknar barnsins erum ekki sammála þeirri niðurstöðu

Það er sagt að barnið þurfi ekki frekari umönnunar foreldris sem er ekki rétt.

Eins og ég sagði áðan að þá er barnið fætt með klofinn mjúkgóm sem þýðir það, að það er allt opið á milli kok og nefs. Frá því að barnið var 2 vikna hefur hún verið að fá öndunafærasýkingar og miklar eyrnabólgur í kjölfar þessa meðfædda galla. Barnið hefur verið í fyrirbyggjandi lyfjameðferð hjá B barnalækni hjá C frá 1,5 mánaða aldri, þar sem að það koma alltaf upp sýking bæði í lungum og eyrum um leið og lyfjagjöf var hætt. Fyrirhugað er að barnið fari í rör sem fyrst, en þar sem barnið er einnig með Hyperdermia Malignant (svæfingarsjúkdóm) vilja læknarnir ekki svæfa fyrr en um eins árs aldur. Einnig er fyrirhuguð aðgerð á góm ekki fyrr en í lok desember, og hef ég fengið þau fyrirmæli bæði frá B og D lýtalækni að barnið megi ekki fara í dagvistun fyrr en sú aðgerð hefur verið gerð, þar sem barnið er vegna þessa galla mjög viðkvæm fyrir sýklum og þ.h.

Einnig vegna þessa galla getur barnið ekki drukkið eðlilega né borðað venjulegan mat, og á barnið einnig mjög erfitt með að borða krukkumat sem er vel maukaður.

D var búin að senda til ykkar vottorð, sem þið hafið byggt ykkar synjun á.“

 

Með bréfi, dagsettu 7. ágúst 2009, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 14. ágúst 2009. Í greinargerðinni segir:

„Kærandi sótti um framlengingu greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði vegna alvarlegs sjúkleika barns hennar, sem fæddist Y. janúar 2009, með læknisvottorði, dags. 8. júní 2009. Áður hafði verið samþykkt að greiða móður fæðingarorlof í 6 mánuði frá fæðingardegi barns sem hún lét dreifa á 7 mánuði, sbr. greiðsluáætlun til hennar dags. 28. janúar 2009. Ekki hafa verið afgreiddar greiðslur til föður.

Með bréfi Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 15. júní 2009 var umsókninni synjað þar sem ekki var talið að um væri að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefðist nánari umönnunar foreldris. Hefur sú ákvörðun nú verið kærð til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Í 2. mgr. 17. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), með síðari breytingum, og 12. gr. reglugerðar nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, er að finna heimild til að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs um allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris umfram þann almenna rétt foreldra sem kveðið er á um í 1. mgr. 8. gr. ffl. Í 5. mgr. 17. gr. ffl. segir að þörf fyrir framlengingu á fæðingarorlofi skv. 1. – 4. mgr. skuli rökstyðja með vottorði sérfræðilæknis. Enn fremur segir að Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir umsögn frá öðrum sérfræðilækni um hvort lenging fæðingarorlofs sé nauðsynleg.

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður óskaði umsagnar E sérfræðilæknis við ákvörðunina. Var það mat E að sjúkdómsástand barns gæfi ekki tilefni til framlengingar á fæðingarorlofi á grundvelli þeirra upplýsinga sem kæmu fram í læknisvottorði D, dags. 8. júní 2009, né heldur væri séð að þörf væri aukinnar umönnunar foreldris umfram það sem eðlilegt gæti talist með svo ungt barn.

Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. ffl., sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1218/2008, er um heimildarákvæði að ræða. Við mat á því hvort beita eigi heimildinni og veita foreldri lengri rétt til fæðingarorlofs en kveðið er á um í 1. mgr. 8. gr. ffl. er ljóst að uppfylla þarf tvö megin skilyrði svo réttur til framlengingar skapist vegna alvarlegs sjúkleika barns. Annars vegar er það skilyrðið um alvarlegan sjúkleika barns en hins vegar að sjúkleikinn krefjist nánari umönnunar foreldris.

Verður nú fyrst vikið að fyrra skilyrðinu. Í athugasemdum við umrætt ákvæði í núgildandi lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, er vísað til 15. og 16. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum, til frekari útskýringar. Þó er tekið fram að önnur veikindi barna lengi ekki fæðingarorlof. Í athugasemdum með 7. gr. laga nr. 51/1997, er breyttu þágildandi lögum um almannatryggingar, er að finna eftirfarandi skýringar á alvarlegum sjúkleika barns. En þar segir orðrétt:

Þá er gert ráð fyrir að lenging fæðingarorlofs vegna alvarlegs sjúkleika barns verði allt að þrír mánuðir í stað eins áður. Hér getur bæði verið um að ræða alvarlega meðfædda sjúkdóma, svo og alvarlegar afleiðingar fæðingar fyrir tímann.

Samkvæmt framangreindu falla ekki öll veik börn undir ákvæðið heldur einvörðungu þau sem greinast með alvarlega meðfædda sjúkdóma svo og þau sem verða fyrir alvarlegum afleiðingum vegna fæðingar fyrir tímann. Sérstaklega er hnykkt á því í athugasemdum með lögum nr. 95/2000 að önnur veikindi barna lengi ekki fæðingarorlofið. Vísbendingu má finna um hversu alvarlegur sjúkleikinn þarf að vera af skoðun á seinna skilyrði ákvæðisins.

Seinna skilyrðið sem verður að uppfylla svo tilefni gefist til að beita heimildarákvæðinu er að sjúkleiki barns sé það alvarlegur að hann krefjist nánari umönnunar foreldris. Ekki er óalgengt að ung börn veikist sem kallar þá á aukna umönnun foreldris tímabundið en án þess þó að veikindin geti talist alvarleg. Einnig er ljóst að öll börn þurfa umtalsverða umönnun á fyrsta æviskeiðinu og eru foreldrar því iðulega heima með börnum sínum til að annast þau fyrstu mánuðina. Verður því að telja að hin aukna umönnun, vegna hins alvarlega sjúkleika, þurfi að vera umtalsvert meiri en venjubundið getur talist, t.d. hjá foreldrum sem eru heima hjá barni sínu í fæðingarorlofi skv. 1. mgr. 8. gr. ffl., til þess að tilefni gefi að beita heimildarákvæði 2. mgr. 17. gr. ffl., sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1218/2008.

Í læknisvottorði D, dags. 8. júní 2009, kemur fram að um sé að ræða barn sem hafi fæðst með skarð í góm. það hafi fengið endurteknar miðeyrnssýkingar sem raktar séu til gómskarðsins að hluta. Það þarfnist því sérstakrar umönnunar á fyrsta árinu. Fyrirhuguð sé aðgerð á góm 1 árs. Eftir aðgerðina þarfnist það sérstakrar umönnunar í ca. 2 vikur eftir heimkomu.

Samkvæmt framangreindu læknisvottorði fæddist barnið með skarð í góm. Óumdeilt er því að barnið fæddist með skarðið. Í læknisvottorðinu kemur fram að fyrirhuguð sé aðgerð á gómnum við 1 árs aldur barnsins (barnið fæddist Y. janúar 2009) og að barnið muni þarfnast sérstakrar umönnunar í ca. 2 vikur eftir heimkomu. Af læknisvottorðinu verður ekki ráðið að um alvarlegan sjúkleika barns sé að ræða í þessu tilviki né heldur að barnið þarfnist sérstakrar umönnunar umfram það sem eðlilegt getur talist með börn á þessum aldri. Í læknisvottorðinu kemur jafnframt fram að barnið hafi fengið endurteknar miðeyrasýkingar sem raktar séu að hluta til gómskarðsins. Ekki er óalgengt að ung börn fái sýkingar í eyra og þurfi eftir atvikum að fara á tímabundna lyfjakúra vegna þessa eða fá rör í eyra/u. Ekki verður heldur séð að um sé að ræða alvarlegan meðfæddan sjúkleika barns og/eða alvarlegar afleiðingar vegna fæðingar fyrir tímann í þessu tilviki né heldur að barnið þarfnist aukinnar umönnunar foreldris vegna þessa umfram önnur börn.

Með vísan til alls framangreinds telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að kæranda hafi réttilega verið synjað um framlengingu fæðingarorlofs vegna alvarlegs sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris, sbr. synjunarbréf dags. 15. júní 2009.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 18. ágúst 2009, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 15. júní 2009 um að synja kæranda um framlengingu fæðingarorlofs vegna sjúkdóms barns.

Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (ffl.) er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris. Samkvæmt 5. mgr. 17. gr. laga skal rökstyðja þörf fyrir lengingu fæðingarorlofs skv. 1.–4. mgr. sömu greinar með vottorði sérfræðilæknis. Í sömu málsgrein segir jafnframt að Vinnumálastofnun sé heimilt að óska eftir umsögn frá öðrum sérfræðilækni um hvort lenging fæðingarorlofs sé nauðsynleg samkvæmt ákvæðinu.

Í athugasemdum við 17. gr. ffl. segir í greinargerð að ákvæðið eigi sér fyrirmynd í 15. og 16. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum, og þar er einnig tekið fram að önnur veikindi barna lengi ekki fæðingarorlof. Ákvæði um lengingu fæðingarorlofs vegna alvarlegs sjúkleika barns, sem krefst nánari umönnunar foreldris, kom fyrst inn í lög um almannatryggingar með lögum nr. 97/1980 um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971. Í lögunum eða lögskýringargögnum með þeim er ekki að finna frekari skilgreiningar eða viðmiðanir um það hvað telst alvarlegur sjúkleiki barns í þessu sambandi, en tekið fram í lagatextanum að þörfin skuli rökstudd með læknisvottorði og staðfest af tryggingaráði. Sambærilegt orðalag er að finna í lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og í athugasemdum við 7. gr. laga nr. 51/1997, sem breyttu þeim lögum er að finna ákveðnar leiðbeiningar um hvað teljist alvarlegur sjúkleiki barns, þar sem segir að hér geti bæði verið um að ræða alvarlega meðfædda sjúkdóma, svo og alvarlegar afleiðingar fæðingar fyrir tímann.

Með umsókn kæranda til Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs fylgdi læknis-vottorð D sérfræðings, dagsett 8. júní sl., þar sem fram koma upplýsingar um barn kæranda sem fæddist Y. janúar sl. Í læknisvottorðinu segir að heiti sjúkdóms sé „Cleft palate, unspecified“. Um lýsingu á sjúkdómi, læknisskoðun og batahorfur segir: „Barn sem fætt er með skarð í góm. Fengið endurteknar miðeyrnasýkingar sem raktar eru til gómskarðsins að hluta. Það þarfnast því sérstakrar umönnunar á fyrsta árinu. Fyrirhuguð aðgerð á góm 1 árs.“ Þá segir um dvöl á sjúkrahúsi: „Aðgerð fyrirhuguð 1. árs sbr. ofan. Eftir aðgerð þarfnast það sérstakrar umönnunar í ca. 2 vikur eftir heimkomu.“

Framangreint læknisvottorð staðfestir að barn kæranda hafi fæðst með skarð í góm og fengið endurteknar miðeyrnasýkingar sem raktar séu til gómskarðsins að hluta. Þá segir að það þarfnist því sérstakrar umönnunar á fyrsta árinu en fyrirhuguð aðgerð á gómi sé við eins árs aldur en þá þurfi það sérstaka umönnun í um tvær vikur eftir heimkomu.

Samkvæmt heimildarákvæði 2. mgr. 17. gr. ffl. þarf að leggja mat á hvort um sé að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris. Nánar tiltekið þarf að uppfylla tvö skilyrði samkvæmt ákvæðinu, annars vegar að um sé að ræða alvarlegan sjúkleika barns og hins vegar að sjúkleikinn krefjist nánari umönnunar foreldris. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður ekki talið að staðfest sé að barn kæranda sé haldið alvarlegum sjúkleika í skilningi framangreinds heimildarákvæðis. Er þá litið til þess að sýkingar sem að hluta má rekja til skarðs í mjúkgómi teljast að mati úrskurðarnefndarinnar ekki til alvarlegs sjúkleika í skilningi ffl. Af þeirri ástæðu hefur það ekki sérstaka þýðingu við mat á beitingu heimildarinnar að ekki sé ráðlegt vegna sýkingarhættu að barnið fari í dagvistun fyrr en aðgerð hefur verið framkvæmd.

Með hliðsjón af öllu framangreindu telur úrskurðarnefndin að skilyrðum 2. mgr. 17. gr. ffl. um framlengingu á greiðslum í fæðingarorlofi vegna sjúkdóms barns kæranda sé ekki fullnægt og er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar- Fæðingarorlofssjóðs um að synja A um framlengingu fæðingarorlofs er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum