Hoppa yfir valmynd
26. mars 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 8/2009

Fimmtudaginn 26. mars 2009

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 6. febrúar 2009 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 15. janúar 2009.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 22. desember 2008 um útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í kæru segir:

„Þann Z.12.2008 eignaðist ég dreng. Þann 24. desember (bréf dagsett 22. desember) barst mér bréf um greiðsluáætlun úr fæðingarorlofssjóði. Útreikningur á greiðslum byggði á tekjum á tímabili frá júní 2007 til maí 2008. Á þessu tímabili nánar tiltekið frá 11.3.08 til 13.5.08 var ég foreldraorlofi (sjá meðfylgjandi tilkynningu um foreldraorlof) og hafði ég ekki neinar tekjur á því tímabili. Það sem ég er ósatt við er að tímabilið sem ég er í foreldraorlofi sé tekið með í útreikning á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði Ég tók fram á umsókninni um fæðingarorlof þá ósk að þetta tímabili væri ekki tekið með til útreiknings (sjá meðfylgjandi umsókn). Það var ekki gert og fékk ég enga skýringu hvers vegna. Ég óska eftir því að útreikningur á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði verði endurskoðaðar og reiknaðar aftur þannig að tímabilið sem ég var í foreldraorlofi sé ekki tekið með í reikninginn.

Þann Y.6.2006 eignaðist ég mitt fyrsta barn. Að fæðingarorlofi okkar hjóna loknu vorum við ekki með dagvist fyrir dóttur okkar og björguðum við því með aðstoð ættingja. Frá mars fram í maí 2008 höfðum við ekki aðgang að þessari aðstoð og greip ég til þess ráðs að sækja um foreldraorlof til þess að sinna barninu mínu þar til það kæmist inn á leikskóla. Ein forsenda þess að ég sótti um foreldraorlof var að ég hafði heyrt um dóm sem féll í máli að ekki væri heimilt að reikna tekjur frá fæðingarorlofi fyrra barns inni greiðsluútreikning fyrir fæðingarorlof vegna annars barns og taldi ég að sama myndi gilda um foreldraorlof og fékk staðfestingu á því með símtali við fæðingarorlofssjóð (á þó enga skriflega staðfestingu á því). Ég gerði þetta vegna þess að við hjónin höfðum hug á að reyna að eignast annað barn fljótlega.

Mér finnst fráleitt að foreldraorlof sé sett í sama stall og launalaust leyfi til útreiknings á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði í rauninni eru þá afskaplega lítil réttindi sem fylgja foreldraorlofi. Einnig vil ég nefna að sveitafélagið bar ekki neinn kostnað vegna dagvistunar barns míns á þessu tímabili. Ekki hafði ég rétt á neinum bótum eða heimgreiðslum auk þess var ég launalaus á þeim tíma. Ég óska eftir því að útreikningur á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði sé endurskoðaður.“

 

Með bréfi, dagsettu 5. mars 2009, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 10. mars 2009. Í greinargerðinni segir:

„Með bréfi Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 22. desember 2008, var henni tilkynnt að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt og að mánaðarleg greiðsla yrði X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, er kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a – e liði 2. mgr. 13. gr. a.

Í 2. mgr. 13. gr. segir enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 1. mgr. 13. gr. a. ffl. segir að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Í 2. mgr. er síðan talið upp í fimm stafliðum hvað teljist enn fremur til þátttöku á vinnumarkaði:

Til þátttöku á vinnumarkaði telst enn fremur:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar.

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. er kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segir jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingardagur barns kæranda er Z. desember 2008 og skal því, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar mánuðina júní 2007 – maí 2008 enda taldist kærandi samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa verið á innlendum vinnumarkaði þann tíma, sbr. 2. mgr. 13. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. og úrskurður úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála nr. 59/2008.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hefur kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram kemur í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Mánuðina júní – júlí 2007 var kærandi að hluta í fæðingarorlofi með eldra barni og þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Í júní þáði kærandi 50% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði og í júlí 20% greiðslu samhliða því að fá laun greidd frá B og ber því að uppreikna greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði á því tímabili, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl., í X kr. í júní úr X kr. og í X kr. í júlí úr X kr. Aðra mánuði tímabilsins fékk kærandi greiðslur frá Ríkissjóði Íslands sem hafðar eru með við útreikninginn. Greiðslur sem kærandi fékk frá D sjóði og júlí 2007 eru undanskildar þar sem ekki er greitt af þeim tryggingagjald.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi verið í foreldraorlofi á tímabilinu 11. mars – 13. maí 2008 og gerir kærandi kröfu um að þeir mánuðir verði undanskildir við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar.

Foreldraorlof skv. VII. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof er orlof eða leyfi frá störfum sem starfsmaður getur átt rétt á í allt að 13 vikur til að annast barn sitt. Starfsmaðurinn öðlast rétt til foreldraorlofs eftir að hafa starfað samfellt í sex mánuði hjá sama vinnuveitanda. Foreldraorlofi fylgir ekki réttur til greiðslu launa úr Fæðingarorlofssjóði. Ráðningarsamband helst óbreytt milli starfsmanns og vinnuveitanda á meðan á foreldraorlofi stendur. Samkvæmt a – lið 2. mgr. 13. gr. a. ffl., telst orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi til þátttöku á vinnumarkaði þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti. Samkvæmt því verður að telja að kærandi hafi verið á vinnumarkaði allt viðmiðunartímabilið í skilningi ffl. og því ekki hægt að undanskilja þá mánuði við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda, sbr. 4. málsl. 2. mgr. 13. gr. ffl.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 11. mars 2009, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kærður er útreikningur Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 22. desember 2008.

Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segir:

„Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi skal nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um er að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og skal aldrei taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Einungis skal miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skal þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Barn kæranda fæddist Z. desember 2008. Samkvæmt framangreindu lagaákvæði 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda mánuðirnir júní 2007 til maí 2008. Í kærubréfi kemur fram ósk kæranda um að sá tími sem kærandi var í foreldraorlofi verði ekki reiknaður með í meðaltalsútreikningi á greiðslum til kæranda en kærandi var í foreldraorlofi á tímabilinu 11. mars 2008 til 13. maí 2008.

Í 13. gr. a ffl. er skilgreint hvað felist í því að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi fæðingar- og foreldraorlofslaga. Þar segir í 1. mgr. að þátttaka á innlendum vinnumarkaði feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi.

Í 2. mgr. 13. gr. a ffl. segir að til þátttöku á vinnumarkaði teljist enn fremur:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Ágreiningur er um hvort við útreikning meðaltals heildarlauna kæranda og greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skuli reikna með þeim tíma sem kærandi var í foreldraorlofi. Í 2. mgr. 13. gr. segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Foreldraorlof er ólaunað orlof sem foreldrar eiga rétt á, í allt að 13 vikur, á grundvelli VII. kafla ffl. Með hliðsjón af því og skilgreiningu 1. mgr. og a- liðar 2. mgr. 13. gr. a ffl. á því hvað felst í því að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. telst kærandi hafa verið á innlendum vinnumarkaði á öllu viðmiðunartímabilinu frá júní 2007 til maí 2008 þar á meðal þann tíma sem hún var í foreldraorlofi. Ekki er heimilt samkvæmt ffl. að undanþiggja ákveðna mánuði á viðmiðunartímabili ef foreldri telst hafa verið á innlendum vinnumarkaði í þeim mánuðum í skilningi ffl., sbr. 1. og 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt því verður að staðfesta hina kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum