Hoppa yfir valmynd
4. desember 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 39/2008

Fimmtudaginn 4. desember 2008

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 8. ágúst 2008 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra frá B, f.h. A, dagsett 7. ágúst 2008.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 16. maí 2008 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„A stundar mastersnám í grafískri hönnun við E-háskólann í F-ríki. Hún er gift þar, þriggja barna móðir. Tvær dætra hennar, H og I eru fæddar í G-landi.

A á enn sitt lögheimili í foreldrahúsum í Reykjavík og hyggst haga því svo uns hún lýkur námi.

Með bréfi dagsettu 28.4.2008 var sótt um fæðingarstyrk námsmanna fyrir A vegna stúlknanna tveggja. Í svari Fæðingarorlofssjóðs, dags. 15.5.2008, var umsókninni hafnað með þeim rökum að A uppfylli ekki skilyrði um fullt nám. Því skal áréttað að A var í fullu námi árin 2005 og 2006 og í 83 % námi árið 2007 eins og neðanrituð tafla sýnir. Þetta er staðfest með vottorðum frá E-háskóla.

Ár

Önn

Einingar

Námsframvinda

Athugasemdir

2005

Vorönn

9

Fullt nám

 

 

 

Haustönn

9

 

 

 

2006

Vorönn

9

Fullt nám

H fæðist í nóvember.

 

 

„Winter intersession"

3

 

 

 

 

 

 

Haustönn

6

 

 

 

 

2007

Vorönn

9

83 % nám

I fæðist í lok desember.

 

 

Haustönn

6

 

 

 

 

Svo kann að vera að í bréfi til fæðingarorlofssjóðs hafi ekki komið nógu skýrt fram að um mastersnám („post graduate") er að ræða, en ekki BA- eða BSc-nám („undergraduate"). Fullt nám á mastersstigi í E-háskóla er níu einingar á önn. Hver áfangi er þrjár einingar og bjóðast hvorki styttri né lengri áfangar í þessu námi.

Í ljósi þessa er farið fram á að úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála endurskoði afgreiðslu Fæðingarorlofssjóðs frá 15.5.2008.“

 

Með bréfi, dagsettu 4. september 2008, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 22. september 2008. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi.

Með umsókn, dags. 9. apríl 2008, sótti kærandi um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í fullu námi í 12 mánuði vegna tveggja barna sinna sem fæddust X. nóvember 2006 og X. desember 2007.

Með umsókn kæranda fylgdu 2 fæðingarvottorð, dags. X. nóvember 2006 og X. desember 2007 og vottorð frá E-háskóla, dags. 5. desember 2007. Auk þess lágu fyrir upplýsingar úr þjóðskrá.

Með bréfi Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs, dags. 15. maí 2008, var kæranda synjað um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi. Var í bréfinu tiltekið að kærandi teldist ekki hafa stundað fullt nám í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins. Við skráningu umsókna kæranda hafði láðst að skrá umsókn vegna barns sem fæddist X. nóvember 2006 og náði synjunin því bara til barns sem fæddist X. desember 2007.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur kemur fram að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar.

Börn kæranda fæddust X. nóvember 2006 og X. desember 2007 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám samfellt í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnanna, að horfa til tímabilanna X. nóvember 2005 – X. nóvember 2006 og X. desember 2006 – X. desember 2007.

Samkvæmt vottorðum frá E-háskóla, dags. 5. desember 2007, kemur fram að kærandi hafi stundað nám við skólann á haustönn 2005, vorönn 2006, haustönn 2006, vetrarönn 2006, vorönn 2007 og haustönn 2007. Lauk kærandi 9 einingum á haustönn 2005, 9 einingum á vorönn 2006, 6 einingum á haustönn 2006, 3 einingum á vetrarönn 2006, 9 einingum á vorönn 2007 og 6 einingum á haustönn 2007.

Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist. Í F-landi teljast 12 einingar á önn í meistaranámi vera 100% nám og því teljast 9 einingar á önn vera 75% nám.

Samkvæmt framangreindu var kærandi með 75% námsframvindu á haustönn 2005 og vorönn 2006. Kærandi uppfyllir því skilyrði um að teljast hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingardag barns X. nóvember 2006. Var kæranda send greiðsluáætlun þar um, dags. 8. september 2008, og telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að þar með hafi kærandi réttilega verið afgreiddur vegna barns sem fæddist X. nóvember 2006.

Kærandi var með 9 einingar á vorönn 2007 eða 75% námsframvindu og 6 einingar á haustönn 2007 eða 50% námsframvindu. Með hliðsjón af þessu og þeim gögnum sem fyrir liggja um námsframvindu kæranda lítur Vinnumálastofnun - Fæðingarorlofssjóður svo á að kærandi uppfylli ekki almenna skilyrðið um að hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. 6 mánuði síðustu 12 mánuðina fyrir fæðingardag barns sem fæddist X. desember 2007.

Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerðum sem settar hafa verið með stoð í lögunum er ekki að finna undanþágu um að hægt sé að leggja saman meðaltal tveggja anna við mat á fullu námi.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi vegna barns sem fæddist X. nóvember 2006 hafi réttilega verið afgreidd og að kæranda hafi réttilega verið synjað með bréfi, dags. 15. maí 2008, vegna barns sem fæddist X. desember 2007. Kærandi á þess í stað rétt á greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli vegna þess barns.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 30. september 2008, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða varanlegt fóstur rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi laganna er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 11. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75–100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75–100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75–100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Börn kæranda fæddust X. nóvember 2006 og X. desember 2007. Með hliðsjón af því er við það miðað að tólf mánaða viðmiðunartímabil skv. 1. mgr. 19. gr. ffl., sbr. og 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 sé frá X. nóvember 2005 til X. nóvember 2006 og X. desember 2006 til X. desember 2007.

 

Samkvæmt vottorði frá E-háskóla, dags. 5. desember 2007, lauk kærandi 9 einingum á haustönn 2005, 9 einingum á vorönn 2006, 6 einingum á haustönn 2006, 3 einingum á vetrarönn 2006, 9 einingum á vorönn 2007 og 6 einingum á haustönn 2007.

 

Fullt meistaranám í F-ríki mun vera ýmist 9 eða 12 einingar. Samkvæmt framangreindu vottorði var kærandi með a.m.k. 75% námsframvindu á haustönn 2005 og vorönn 2006 og uppfyllir því skilyrði um að teljast hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingardag barns sem fæddist X. nóvember 2006. Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður hefur viðurkennt rétt kæranda til fæðingarstyrks vegna þess barns.

 

Á vorönn 2007 lauk kærandi 9 einingum eða 75% námsframvindu miðað við 12 eininga nám. Á haustönn 2007 lauk kærandi 6 einingum sem telst vera 50% námsframvinda miðað við 12 einingar og tæp 67% miðað við 9 eininga nám.

Með vísan til ofanritaðs uppfyllir kærandi því ekki skilyrði um fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns sem fætt er X. desember 2007, sbr. 1. mgr. 19. gr. ffl., sbr. og 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Engin ákvæði eru í ffl. eða reglugerð nr. 1056/2004 sem heimila undantekningu frá því skilyrði þannig að hægt sé að leggja saman einingar tveggja anna.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja A um fæðingarstyrk sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum