Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 7/2008

Föstudaginn, 25. apríl 2008

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 4. febrúar 2008 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 1. febrúar 2008.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni sem tilkynnt var bréfi dagsettu 20. júlí 2007 og síðar með bréfi dagsettu 1. nóvember 2007 eftir að stofnuninni höfðu borist viðbótagögn frá kæranda.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Undirrituð sótti um fæðingarstyrk námsmanna til Fæðingarorlofssjóðs vegna væntanlegrar fæðingar. Þeirri umsókn var synjað á þeim forsendum að undirrituð uppfyllti ekki skilyrði fyrir greiðslu fæðingarstyrks námsmanna, þ.e. að hafa stundað 75% nám sl 12 mánuði fyrir fæðingardag barns, skv. upplýsingum af heimasíðu Vinnumálastofnunar um rétt foreldra til fæðingarstyrks í fullu námi er heimilt greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þó foreldri fullnægi ekki skilyrði um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% námi á síðustu önn í námi og ljóst er að víðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu.

Einnig er heimilt að greiða móður fæðingarstyrk námsmanna þótt hún uppfylli ekki skilyrði um viðunandi námsárangur, enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu af meðgöngutengdum heilsufarsástæðum. Skilyrði er að móðir hafi verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður, verið á biðtíma eftir þeim eða hefði átt rétt á þeim hefði hún sótt um þá.

Undirrituð er að ljúka BA námi í B-fræði við D-háskóla, á einungis lokaritgerðina eftir. Undirritaðri reyndist ekki unnt að sinna náminu fyrstu 3 mánuði vegna veikinda á meðgöngu og ekki eftir 20 viku vegna hótandi fyrirburafæðingar. Undirrituð hafði því á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu lokið tilskildum greinum til útskriftar fyrir utan lokaritgerð. Undirrituð gat hvorki skilað inn lokaritgerð fyrir útskrift í febrúar 2007 eða júní 2007 vegna veikinda á meðgöngu eins og áður kemur fram.

Undirrituð skilaði inn læknisvottorði vegna veikinda á meðgöngu til Tryggingastofnunar ríkisins. Samþykkt var að greiða hálfa sjúkradagpeninga til undirritaðrar á fyrri hluta meðgöngu og undirrituð átti rétt á sjúkradagpeningum á tímabilinu 01.01.2007-31.01.2007.

Skv. ofangreindu ætti undirrituð að eiga rétt á fæðingarstyrk. Veikindi á meðgöngu eru staðfest skv. læknisvottorði og úrskurði Tryggingastofnunar Undirrituð er auk þess á síðustu önn í námi, sjá fylgiskjal 6.

Ljóst er að ef undirrituð hefði haft heilsu til hefði lokaritgerð og þar með BA námi í B-fræði lokið í febrúar eða júní 2007 og hefði undirrituð því átt rétt á fæðingarstyrk námsmanna. Það eru því veikindi á meðgöngu sem valda því að undirrituð á aðeins rétt á fæðingarstyrk sem foreldri utan vinnumarkaðar skv. úrskurði Fæðingarorlofssjóðs. Það getur ekki staðist!!“

 

Með bréfi, dagsettu 5. febrúar 2008, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 23. febrúar 2008. Í greinargerðinni segir:

„Með umsókn, dags. 8. júlí 2007, sótti kærandi um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í fullu námi í 6 mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar, 3. ágúst 2008.

Með umsókn kæranda fylgdi vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 5. júní 2007. Staðfesting um námsframvindu frá D-háskóla, dags. 19. júní 2007. Læknisvottorð, dags. 19. júní 2007 og sjúkradagpeningavottorð, dags. 19. júní 2007. Auk þess liggja fyrir í málinu tölvupóstsamskipti milli kæranda og Fæðingarorlofssjóðs frá 24. júlí og aftur 15.–16. október 2007, sjúkradagpeningavottorð dags. 14. ágúst 2007 og svarbréf frá TR dags. 26. september 2007. Enn fremur lágu fyrir upplýsingar úr þjóðskrá Hagstofu Íslands.

Með bréfi Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 20. júlí 2007, var henni synjað um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni þar sem hún hefði ekki verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingardag barns. Jafnframt var kærandi afgreiddur með fæðingarstyrk sem foreldri utan vinnumarkaðar.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur kemur fram að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Einstök námskeið teljast ekki til fulls náms. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist þann 31. júlí 2007 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám samfellt í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að horfa til tímabilsins frá 31. júlí 2006 fram að fæðingardegi barnsins.

Samkvæmt námsferilsyfirliti frá D-háskóla lauk kærandi á framangreindu tímabili tveimur fögum, alls 8 einingum, í sumarprófum 2006. Sumarönn er ekki kennd við B-fræði D-háskóla og er því um stök próf að ræða sem haldin eru á tímabilinu 15.–25. ágúst. Kærandi var svo skráður í BA–ritgerð í B-fræði sumarið 2007 en lauk henni ekki.

Þegar um er að ræða nám við háskóla teljast 15 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 11-15 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum nr. 95/2000. Með hliðsjón af þeim gögnum sem fyrir liggja um námsframvindu kæranda lítur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður svo á að kærandi uppfylli ekki almenna skilyrðið um að hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. 6 mánuði síðustu 12 mánuðina fyrir fæðingardag barns.

Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er að finna nokkrar undanþágur frá framangreindu skilyrði um fullt nám í a.m.k. 6 mánuði á síðustu tólf mánuðum fram að fæðingu barns. Er m.a. í 19. gr. reglugerðarinnar að finna undanþáguákvæði fyrir móður frá skilyrðum 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna skv. 2. mgr. 9. gr. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í nám skv. 1. mgr. 18. gr. og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Undanþágan á ekki við í tilviki kæranda þar sem ekki verður ráðið að hún hafi verið skráð í nám á því tímabili sem um ræðir, sbr. námsferilsyfirlit.

Undanþága 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, á ekki við í tilviki kæranda. Í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé á grundvelli umsóknar að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þó að foreldri fullnægi ekki skilyrði 1. mgr. 18. gr. um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu. Skal foreldrið jafnframt fullnægja öðrum skilyrðum 19. gr. ffl., með síðari breytingum, og 16. gr., sbr. þó 17. gr., og 18. gr., sbr. þó 19. gr. reglugerðarinnar. Undanþágan á því við þegar foreldri hefur verið í samfelldu fullu námi og foreldrið á eftir minna en 75% af náminu á síðustu önn og er að ljúka prófgráðu. Þá er hægt að taka tillit til þeirrar annar en það á ekki við í tilviki kæranda.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi hafi réttilega verið synjað með bréfi, dags. 20. júlí 2007 og að kærandi hafi réttilega verið afgreiddur með fæðingarstyrk sem foreldri utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 27. febrúar 2008, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða varanlegt fóstur rétt til fæðingarstyrks.

Fullt nám í skilningi ffl. er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Fæðingardagur barns kæranda var 31. júlí 2007. Tólf mánaða viðmiðunartímabil skv. 1. mgr. 19. gr. ffl. sbr. og 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 er því frá 31. júlí 2006 fram að fæðingu barns.

Samkvæmt yfirliti um námsferil kæranda við D-háskóla dagsettu 19. júní 2007 lauk hún tveimur fögum eða átta einingum í B-fræðinámi sínu sumarið 2006. Ekki kemur fram að hún hafi verið skráð í nám á haustmisseri 2006 eða vormisseri 2007. Sumarið 2007 var hún skráð í átta eininga B.A.-ritgerð í B-fræði og gert var ráð fyrir brautskráningu í október 2007.

Hjá D-háskóla er almennt miðað við að 100% nám sé 15 eininga nám á misseri. Fullt nám þar í skilningi 19. gr. ffl., sbr. 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, telst því vera 11-15 einingar. Með hliðsjón af því sem fram kemur í yfirliti um námsferil kæranda er ljóst að hún uppfyllir ekki almenna skilyrðið um fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Kærandi vísar í kærubréfi í heimildir til undanþágu frá skilyrðinu um fullt nám annars vegar vegna veikinda á meðgöngu og hins vegar vegna námsloka þar sem hún hafi verið að ljúka B.A. námi í B-fræði og einungis B.A.-ritgerðin verið eftir.

Samkvæmt 19. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 er heimilt að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna skv. 2. mgr. 9. gr. Skal hún sannanlega verið skráð í nám skv. 1. mgr. 18. gr. og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Skal móðir jafnframt fullnægja öðrum skilyrðum 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.

Í 20. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um undanþágu vegna námsloka foreldris. Samkvæmt ákvæðinu er á grundvelli umsóknar heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þó að foreldri fullnægi ekki skilyrði 1. mgr. 18. gr. um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu. Skal foreldri jafnframt fullnægja öðrum skilyrðum 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum.

Hvorki er í 19. eða 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 vikið frá skilyrði 19. gr. ffl. um 6 mánaða samfellt nám á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Samkvæmt því sem fram kemur á námsferilsyfirliti um skráningu kæranda í nám og námsframvindu á tímabilinu 31. júlí 2006 til 31. júlí 2007 uppfyllir kærandi ekki það skilyrði. Undanþáguákvæði 19. og 20. gr. reglugerðarinnar eiga því þegar af þeirri ástæðu ekki við um aðstæður kæranda. Samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum