Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 40/2007

Fimmtudaginn, 1. nóvember 2007

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 7. september 2007 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 6. september 2007.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 15. ágúst 2007 um útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Greiðslur til mín í yfirstandandi fæðingarorlofi eru umtalsvert lægri en ég hafði gert ráð fyrir. Ástæða þess liggur að mestu í því að til grundvallar meðallauna er miðað við síðustu tvö almanaksár (2005 og 2006) í stað síðustu tveggja ára (júlí 2005-júlí 2007). Umtalsverðar breytingar hafa orðið á launahögum mínum á síðasta ári (2007), og því kemur sú ákvörðun að miða heildarlaun við síðustu tvö almanaksár illa við fjárhag fjölskyldunnar.

Fer ég því fram á að útreikningur fæðingarorlofs miðist við síðustu 24 mánuði, ekki síðustu 2 almanaksár. 1. nóvember 2006 hætti ég rekstri eigin fyrirtækis og hóf vinnu hjá B. Ástæða þess var m.a. sú að ótryggar tekjur af eigin atvinnurekstri átti ekki við nýtt hlutverk mitt sem fjölskylduföður. Reiknuð mánaðargreiðsla frá Fæðingarorlofssjóði nemur nú um tæpum 60% af mánaðartekjum mínum hjá B og ætti hverjum sem er að vera ljóst að slíkur tekjumissir kemur illa við flest heimili.“

 

Með bréfi, dagsettu 25. september 2007, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 15. október 2007. Í greinargerðinni segir:

„Kærður er útreikningur Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Með umsókn, dags. 1. júní 2007, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í 3 mánuði, vegna væntanlegrar barnsfæðingar 7. ágúst 2007.

Auk umsóknar kæranda barst vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 6. júní 2007, tilkynning um fæðingarorlof, dags. 21. maí og 13. júlí 2007, launaseðlar fyrir apríl og maí 2007 frá B. Enn fremur lágu fyrir upplýsingar úr skrám ríkisskattstjóra.

Með greiðsluáætlun Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 15. ágúst 2007, var honum tilkynnt að umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt frá 12. júlí 2007 og að mánaðarleg greiðsla hans yrði 387.270 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.

Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) nr. 95/2000, sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, er kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns eða þess árs er barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi starfað á innlendum vinnumarkaði.

Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 segir að það að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV., V. og VI. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda sé gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi.

Í 3. mgr. 15. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 5. gr. laga nr. 90/2004, er kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segir jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna tekjuára skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Barn kæranda fæddist 12. ágúst 2007 og skal því, samkvæmt framangreindum laga- og reglugerðarákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hans fyrir þá mánuði á árunum 2005 og 2006 sem kærandi var starfandi í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hefur kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram kemur í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hans á árunum 2005 og 2006. Frá október – desember 2005 var kærandi utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli og skal því undanskilja þá mánuði við útreikning á meðaltali heildarlauna. Aðra mánuði á árunum 2005 – 2006 var kærandi í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði og skal því hafa þá mánuði með við útreikning á meðaltali heildarlauna hans skv. 2. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 4. gr. laga 90/2004.

Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof er ekki að finna neina undanþágu frá ákvæði 2. mgr. 13. gr. um að við útreikning á meðaltali heildarlauna skuli miða við 80% af meðaltali heildarlauna foreldris síðustu tvö tekjuár fyrir fæðingarár barns.

Með vísan til alls framangreinds telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að áðurnefnd greiðsluáætlun til kæranda, dags. 15. ágúst 2007, beri með sér réttan útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 18. október 2007, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2004, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingaorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Í 3. málsl. 2. mgr. 13. gr. ffl. segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði. Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 er kveðið á um að það að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV., V. og VIII. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði.

Samkvæmt gögnum málsins er barn kæranda fætt 12. ágúst 2007. Með hliðsjón af því verður viðmiðunartímabil við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði árin 2005 og 2006, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2004. Kærandi var á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. og 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 allt árið 2006 en mánuðina október til og með desember 2005 var kærandi utan vinnumarkaðar, þeir mánuðir eru því ekki reiknaðir með við útreikning meðaltals heildarlauna sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Lög um fæðingar- og foreldraorlof eða reglugerð nr. 1056/2004 heimila ekki að vikið sé frá framangreindri reglu um að viðmiðunartímabil við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skuli vera tvö tekjuár á undan fæðingarári barns. Verður því ekki fallist á kröfu kæranda um breytingu á útreikningi. Ákvörðun Vinnumálastofnunar- Fæðingarorlofssjóðs er því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum