Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 1/2006

Föstudaginn, 28. apríl 2006

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 3. janúar 2006 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 28. desember 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 29. nóvember 2005 um að synja kæranda um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Ég er að kæra orlofið þar sem að þegar það ég hætti í skóla fór ég að leita mér að vinnu og var í byggingarvinnu í eitt ár og byrjaði svo á sjó og er búinn að vera á sjó í eitt ár tvo mánuði og ég tel að greiðsla til mín í orlofi ættu að vera metnar eftir því. Að mínu mati er þetta stór galli við fæðingarorlofið þar sem flestir hugsa það þannig að ná sér fyrst í gott starf með góðum tekjumöguleikum og núna er ég búinn að vera á sjó síðan í ágúst 2004 og er þess vegna búinn að vera næstum eitt ár og tvo mánuði á sjó og er þar með tekjur sem er þrisvar til fjórum sinnum meiri en ég var með sem byggingaverkamaður hjá B og þess vegna fannst mér ekki vera hægt að láta mig fá orlofsgreiðslu til að framfæra mig og barnið í samanburði við launin sem ég var með sem verkamaður hjá B í staðinn fyrir laun sem ég er með sem háseti á frystitogara hjá D á sama skipi það er að segja E í samtals 14 mánuði. Vonandi nægir þetta til að þið takið mark á kvörtun minni takk fyrir.“

Með bréfi, dagsettu 5. janúar 2006, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 1. febrúar 2006. Í greinargerðinni segir:

„Með umsókn, dags. 26. október 2005, sem móttekin var sama dag, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í 6 mánuði, vegna væntanlegrar barnsfæðingar 3. nóvember 2005.

Auk umsóknar kæranda bárust lífeyristryggingasviði vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 19. október 2005, tilkynning um fæðingarorlof, dags. 27. október 2005, launaseðlar fyrir tímabilið 10. júlí til 22. september 2005, starfsvottorð frá D, dags. 5. desember 2005 og fæðingarvottorð útg. af Hagstofu Íslands þann 5. desember 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 9. desember 2005, var honum tilkynnt að umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt frá 3. nóvember 2005 og að mánaðarleg greiðsla næmi 80% af meðaltekjum hans samkvæmt skrám skattyfirvalda tekjuárin 2003 og 2004. Áður hafði lífeyristryggingasvið sent kæranda bréf, dags. 29. nóvember 2005, þar sem óskað hafði verið eftir frekari gögnum frá honum.

Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, er kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns eða þess árs er barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Í lokamálslið 2. mgr. 2. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004, sem er fyllingar lagaákvæðinu, segir að jafnframt teljist til launa þær greiðslur sem koma til samkvæmt a. - d. liðum 3. gr. reglugerðarinnar.

Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof segir enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi starfað á innlendum vinnumarkaði. Þessu til fyllingar segir í 5. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 að meðaltal heildarlauna miðist við þann fjölda mánaða á umræddu viðmiðunartímabili sem foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði, sbr. 3. gr.

Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 segir að það að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV., V. og VI. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda sé gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar er síðan talið upp í fjórum stafliðum hvað teljist enn fremur til þátttöku á vinnumarkaði.

Í 3. mgr. 15. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 5. gr. laga nr. 90/2004, er kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Tryggingastofnun ríkisins aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segir jafnframt að Tryggingastofnun ríkisins skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna tekjuára skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Barn kæranda er fætt þann 11. nóvember 2005 og skal því, samkvæmt framangreindum laga- og reglugerðarákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hans árin 2003 og 2004, enda taldist kærandi samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa starfað á innlendum vinnumarkaði allan þann tíma, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hefur kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram kemur í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hans á árunum 2003 og 2004 og telur lífeyristryggingasvið að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda.

Með vísan til alls framangreinds telur lífeyristryggingasvið að áðurnefnt bréf lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 9. desember 2005, beri með sér réttan útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 10. febrúar 2006, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2004, skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingaorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Samkvæmt 3. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar skulu að auki teljast til launa greiðslur sem koma til skv. a-d liðum 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar.

Í 3. málsl. 2. mgr. 13. gr. ffl. segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði. Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 er kveðið á um að það að starfa á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV., V. og VII. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði.

Samkvæmt gögnum málsins er barn kæranda fætt 11. nóvember 2005. Með hliðsjón af því verður viðmiðunartímabilið við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði árin 2003 og 2004, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 90/2004. Kærandi var á innlendum vinnumarkaði allt viðmiðunartímabilið, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl. og 1. og 2. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Lög um fæðingar- og foreldraorlof eða reglugerð nr. 1056/2004 heimila ekki að vikið sé frá framangreindri reglu um að viðmiðunartímabil við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skuli vera tvö tekjuár á undan fæðingarári barns. Verður því ekki fallist á kröfu kæranda um breytingu á útreikningi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins er því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til A er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum