Hoppa yfir valmynd
14. mars 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 59/2005

Þriðjudaginn, 14. mars 2006

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins


Úrskurður


Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 30. desember 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 22. desember 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 22. september 2005 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Haustið 2004 byrjaði ég nám við B-framhaldsskólann og var þá með 13 einingar í stundatöflu. Eftir fyrsta mánuðinn komst ég að því að ég væri orðin þunguð, aðdragandi að því fékk ég mikla morgunógleði.

Í gögnum sem ég sendi með (bréfi frá sérkennara) sést að ég á við mikla F erfiðleika að stríða. Í B-framhaldsskólanum fékk ég ekki þá hjálp sem ég á rétt á þótt ég hafi ítrekað reynt að fá greiningu sem að ég þurfti að fá í B-framhaldsskólanum.

Ástundun mín var yfir 80% og stundaði ég skólann eins og ég mögulega gat, en því miður náði ég ekki öllum lokaprófunum.“

Með bréfi, dagsettu 30. desember 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 20. janúar 2006. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004.

Með umsókn, sem móttekin var 11. maí 2005, sótti kærandi um fæðingarstyrk námsmanna í sex mánuði frá 1. september 2005 að telja. Umsókninni fylgdi vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 10. maí 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 20. júní 2005, var óskað eftir frekari gögnum frá kæranda. Þann 20. september 2005 barst lífeyristryggingasviði afrit af prófskírteini kæranda við D-framhaldsskólann, dags. 21. maí 2004, námsferilsyfirlit kæranda við B-framhaldsskólann á haustönn 2004 og námsferilsyfirlit kæranda við B-framhaldsskólann á vorönn 2005 og staðfesting á að kærandi hefði hætt störfum í E í apríl 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 22. september 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám. Tekið var fram að í stað fæðingarstyrks námsmanna yrði kæranda greiddur fæðingarstyrkur, sem foreldri utan vinnumarkaðar og henni sent greiðsluyfirlit þess efnis, dags. sama dag.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist þann 7. júní 2005 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að líta hvort tveggja til náms hennar á haustönn 2004 og vorönn 2005.

Samkvæmt námsferlisyfirliti B-framhaldsskólans stundaði kærandi nám við skólann á haustönn 2004. Var hún þá skráð í 15 einingar, lauk 6 þeirra en féll í 9 einingum og sagði sig úr námskeiði til einnar einingar. Samkvæmt námsferlisyfirliti D-framhaldsskólans stundaði kærandi nám við skólann á vorönn 2005. Var hún þá skráð í 20 einingar, lauk hún 17 þeirra en féll í 3 einingum.

Þegar um er að ræða nám við framhaldsskóla teljast 18 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 13 - 18 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Með hliðsjón af framangreindu nær nám kæranda á haustönn 2004 ekki að vera fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof og þar með uppfyllir kærandi ekki skilyrðið um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 fyrir fæðingu barns hennar.

Nokkrar undanþáguheimildir er að finna frá skilyrðinu um fullt nám í sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Þannig er samkvæmt 8. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrði um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki uppfyllt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 9. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 19. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Þá segir í 19. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna skilgreindra heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðinu um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda.

Með vísan til alls framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 30. janúar 2006, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem verið hafa í fullu námi a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi framangreindra laga er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 7. mgr. 19. gr. ffl. Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Kærandi ól barn 7. júní 2005. Viðmiðunartímabil samkvæmt framangreindu er því frá 7. júní 2004 fram að fæðingu barns.

Í framhaldsskólum er almennt miðað við að 100% nám sé 18 einingar á önn. Kærandi var skráð í B-framhaldsskólann á haustönn 2004 í 15 einingar. Hún lauk 6 einingum en féll í 9 einingum. Hún stundaði nám við D-framhaldsskólann á vorönn 2005 og var hún skráð í 20 einingar og lauk 17 einingum.

Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 skal leggja fram staðfestingu frá skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Með hliðsjón af því sem fram kemur um námsframvindu og námsárangur kæranda í gögnum málsins verður ekki talið að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 19. gr. ffl. um að hafa verið í fullu námi a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins þegar litið er til haustannar 2004.

Þá ber að fallast á þá niðurstöðu Tryggingastofnunar ríkisins að heimildir ffl. og reglugerðar nr. 1056/2004 til undanþágu frá skilyrði um fullt nám eigi ekki við um aðstæður kæranda.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum