Hoppa yfir valmynd
20. desember 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 45/2005

Þriðjudaginn, 20. desember 2005

 

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur. Þann 27. október 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 20. október 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 8. október 2005 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Vitnað er í lög um fæðingar-og foreldraorlof, 19. gr. Fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi og reglugerð 1056/2004 18. gr. Fullt nám og 20. gr. Undanþága vegna námsloka foreldris. Þrátt fyrir að mér sýnist lögin liggja ljós fyrir og sýna fram á að ég uppfylli skilyrði sem fullur fæðingarstyrkur krefst, þá sakar ekki að benda á að vinnuframlag mitt til BA-ritgerðar náði fram á vorönn 2005 og að ég sat intensívan einnar einingar kúrs í maí 2005 (sjá fylgiskjal frá skorarformanni B-skorar) sem sýnir að þó að námsárangur hafi ekki verið jafn alla mánuðina, eins og oft vill verða í námi á háskólastigi, þá var sú vinna sem ég skilaði af mér frá janúar til maí 2005 meiri en lesa má úr tölunum einum saman.

Mér var sagt í samtali við D yfirkonu Fæðingarorlofsdeildar að dómur hefði fallið um að ekki mætti leggja saman einingar anna og deila þeim yfir námið, en hvergi sá ég þess merki í lögum né reglugerðum að verðandi foreldrum sé gerð grein fyrir þessu. Í góðri trú um að ég væri að gera rétt gagnvart námi mínu og fjárhag fjölskyldunnar ákvað ég að halda áfram námi eftir BA-prófið.

Aðalatriðin eru sem sé þessi:

Ég tók upplýsta ákvörðun um nám mitt með tilliti til laga um fæðingarstyrk

Ég var í samfelldu námi í átta mánuði á árinu fyrir fæðingu

Ég náði 23,5 (ein eining hefur ekki enn skilað sér í nemendaskrá, sjá bréf skorarformanns B-skorar) sem er rúm sjötíu og fimm prósent námsárangur á þessum tíma. Þess má geta að starfsmaður TR, E, vitnaði í reglugerð 909/2000 í bréfi til mín dagsettu 8. október, reglugerð sem löngu er fallin úr gildi.“

 

Með bréfi, dagsettu 7. nóvember 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 29. nóvember 2005. Í greinargerðinni segir:

„Með umsókn, dags. 31. ágúst 2005, sem móttekin var sama dag, sótti kærandi um fæðingarstyrk námsmanna í sex mánuði frá fæðingardegi barns hennar, 10. ágúst 2005. Umsókninni fylgdi námsferilsyfirlit F háskóla, dags. 16. ágúst 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 8. október 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám. Tekið var fram að í stað fæðingarstyrks námsmanna yrði kæranda greiddur fæðingarstyrkur, sem foreldri utan vinnumarkaðar og henni sent greiðsluyfirlit þess efnis, dags. sama dag.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist, eins og að framan greinir, þann 10. ágúst 2005 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að líta hvort tveggja til náms hennar á haustönn 2004 og vorönn 2005.

Samkvæmt námsferlisyfirliti F háskóla stundaði kærandi nám við skólann bæði á haustönn 2004 og vorönn 2005. Á haustönn lauk kærandi 15 einingum en á vorönninni lauk kærandi 8,5 einingum.

Þegar um er að ræða nám við F háskóla teljast 15 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 11 - 15 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Með hliðsjón af framangreindu nær nám kæranda á vorönn 2005 ekki að vera fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof og þar með uppfyllir kærandi ekki skilyrðið um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 fyrir fæðingu barns hennar.

Nokkrar undanþáguheimildir er að finna frá skilyrðinu um fullt nám í sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Þannig er samkvæmt 8. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrði um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki uppfyllt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 9. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 19. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Þá segir í 19. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna skilgreindra heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðinu um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda.

Með vísan til alls framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 30. nóvember 2005, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust með bréfi dagsettu 12. desember 2005, þar sem kærandi telur sig eiga rétt á fæðingarstyrk sem námsmanni og sé ekki að fara fram á undanþágu til greiðslu fæðingarstyrksins.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004 eiga foreldrar í fullu námi rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi framangreindra laga er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 7. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda er fætt 10. ágúst 2005. Viðmiðunartímabil samkvæmt framangreindu er því frá 10. ágúst 2004 fram að fæðingu barns.

Hjá F háskóla er almennt miðað við að 100% nám sé 15 einingar á misseri. Við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns skal líta til náms hennar á haustmisseri 2004 og á vormisseri 2005. Samkvæmt yfirlitum um námsferil kæranda við skólann dagsettum 2. og 3. nóvember 2005 lauk hún 15 einingum á haustmisseri 2004. Hún var skráð í 16 eininga nám á vormisseri 2005, sagði sig úr 7,5 eininga námi og lauk 8,5 einingum.

Að mati úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála var kærandi ekki í fullu námi við F háskóla á vormisseri 2005. Hún uppfyllir því ekki skilyrði þess að hafa verið í 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum