Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 26/2005

Þriðjudaginn, 29. nóvember 2005

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

 Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 12. júlí 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 11. júlí 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 4. júlí 2005 um að synja kæranda um fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Undirritaður kærir hér með úrskurð fæðingarorlofssjóðs bréf dags. 4. júlí 2005 þar sem ákveðið var að undirritaður fengi hálfan fæðingarstyrk eða kr. 41.621 á mánuði úr fæðingarorlofssjóði en samkvæmt samtali við starfsmann var synjunarbréf útbúið 4. júlí 2005. Ástæða þess að ég er með upplýsingar um að ég fái einungis greiddan hálfan fæðingarstyrk er að ég sótti greiðsluáætlun til Tryggingastofnunar þann 6. júlí 2005, sjá meðfylgjandi greiðsluáætlun. Undirritaður er ekki sáttur við ákvörðun sjóðsins þar sem ég hef verið í 100% námi undanfarin ár. Og óska þar af leiðandi eftir að úrskurðarnefnd fjalli um erindi mitt og taki endanleg afstöðu, sjá rökstuðning hér að neðan.

Ástæða kæru minnar er sú að ég hef verið undanfarin ár í 100% námi við B-skólann. Á þeim tveimur önnum sem teknar eru til mats við fæðingarorlof hef ég verið skráður í 100% nám. Eins og gerð er krafa um í lögum um fæðingar-og foreldraorlof um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrks. Í reglugerðinni kemur fram að skilyrði til þess að fá fullan fæðingarstyrk sé að viðkomandi sé skráður í 75-100% nám og hann sýni fram á viðunandi námsárangur. Ekki kemur skýrt fram í reglugerðinni hvað telst vera viðunandi námsárangur.

Undirritaður skilaði á haustönn 2004 80% mætingu en náði einungis að ljúka 9 einingum af þeim 19 sem ég var skráður í á þeirri önn. Ástæða þess var mikið þunglyndi á þessum tíma. Ég leitaði mér ekki læknismeðferðar vegna þessa á þeim tíma og get því ekki lagt fram læknisvottorð því til rökstuðnings... Á vorönn 2005 var ég skráður í 100% nám samtals 24 einingar og lauk 20 einingum. Mæting á önninni var 90% sjá meðfylgjandi upplýsingar frá skóla.

Undirritaður vill meina að miðað við skráðar einingar í upphafi annar og skólasókn þá uppfylli ég þau skilyrði sem sett eru fram í lögum um foreldra- og fæðingarorlof sem og reglugerð um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrk, vil ég sérstaklega benda á að ég var skráður í 100% nám á þessum tveimur önnum sem teknar eru við viðmiðs og skilaði um og yfir 80% skólasókn á báðum önnum.“

  

Með bréfi, dagsettu 13. september 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 26. september 2005. Í greinargerðinni segir:

„Kærandi sótti með umsókn, ódags. sem móttekin var 10. maí 2005, um fæðingarstyrk námsmanna í þrjá mánuði frá 1. júní 2005 að telja. Umsókn hans var vegna barns, sem fætt er 20. maí 2005, en áætlaður fæðingardagur þess var 29. maí 2005.

Með umsókn kæranda fylgdu vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 23. febrúar 2005, staðfesting B-skóla á skólavist kæranda, dags. 22. mars 2005 og námsferilsáætlun kæranda við B-skóla, útprentuð 22. mars 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 31. maí 2005, var óskað eftir frekari gögnum frá kæranda. Þann 20. júní 2005 barst lífeyristryggingasviði frá kæranda, staðfesting sýslumannsins í Reykjavík, dags. 16. júní 2005, um sameiginlega forsjá og útprentun yfir námsferlisyfirlit kæranda á vorönn 2005.

Enn fremur lágu einnig fyrir við afgreiðslu umsóknar kæranda upplýsingar úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 4. júlí 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám. Þá var tekið fram að í stað fæðingarstyrks námsmanna yrði kæranda greiddur fæðingarstyrkur, sem foreldri utan vinnumarkaðar og kæranda send greiðsluáætlun þess efnis, dags. sama dag.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist, eins og að framan greinir, þann 20. maí 2005 og verður því við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins að líta hvort tveggja til náms hans á haustönn 2004 og vorönn 2005. B-skóla telst til skóla á framhaldsskólastigi og mun 18 eininga nám á önn teljast vera 100% nám. Fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 telst því vera 13 - 18 einingar á önn.

Samkvæmt þeim gögnum sem lágu fyrir við afgreiðslu umsóknar kæranda um námsferil hans við B-skóla var hann í upphafi haustannar 2004 skráður í 19 einingar. Hann sagði sig úr einu þriggja eininga námskeiði í upphafi annarinnar, þann 2. september 2004, og var áfram skráður í 16 einingar út önnina. Kærandi lauk fjórum námskeiðum samtals til 9 eininga en féll í þremur námskeiðum samtals til 7 eininga. Á vorönninni 2005 var kærandi upphaflega skráður í 24 einingar. Hann sagði sig úr einu tveggja eininga námskeiði, tók próf í sjö námskeiðum og náði 20 einingum en féll á einu prófi.

Kærandi lauk því samkvæmt framansögðu fullu námi á vorönn 2005 en ekki á haustönn 2004. Lífeyristryggingasvið telur sér ekki fært að líta svo sem kærandi hafi sýnt viðunandi námsárangur á haustönn 2005 með því að ljúka þá 50% námi eða 9 einingum.

Nokkrar undanþáguheimildir er að finna frá skilyrðinu um fullt nám í sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Þannig er samkvæmt 8. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrði um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki uppfyllt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 9. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 19. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Þá segir í 19. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna skilgreindra heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda.

Með vísan til alls framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 10. október 2005, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð m.a. vegna þess að beðið var eftir gögnum frá kæranda.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða varanlegt fóstur rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi framangreindra laga er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 11. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100%  samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda er fætt 20. maí 2005. Tólf mánaða viðmiðunartímabil samkvæmt framangreindu er því frá 20. maí 2004 fram að fæðingu barns.

Kærandi var við nám í B-skóla. Við mat á því hvort hann uppfylli skilyrði um fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns skal líta til náms hans og námsárangurs á haustönn 2004 og vorönn 2005. Hjá B-skóla er 100% nám 18 einingar. Kærandi var skráður í 19 eininga nám á haustönn 2004. Hann sagði sig úr þriggja eininga áfanga þann 2. september 2004 en lauk námi á önninni í fjórum áföngum eða samtals 9 einingum en féll í þremur áföngum eða samtals 7 einingum. Í einum þessara þriggja áfanga var mætingarhlutfall hans 83% á haustönn 2004 og áfanganum lokið á vorönn 2005. Í hinum áföngunum tveimur var mætingarhlutfall lægra og þeim ólokið. Á vorönn 2005 var kærandi skráður í 24 eininga nám. Hann sagði sig úr tveggja eininga áfanga, en féll á einu prófi og lauk samtals 20 einingum.

Samkvæmt framangreindu var kærandi í fullu námi á vorönn 2005. Hins vegar verður ekki talið að nám hans á haustönn 2004 geti talist fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðar nr. 1056/2004. Samkvæmt því uppfyllir kærandi ekki skilyrði um a.m.k. sex mánaða fullt nám á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum