Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 19/2005

Þriðjudaginn, 23. ágúst 2005

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

  

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 23. maí 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 18. maí 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 18. apríl 2005 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Aðdragandi þessa máls er sá að á haustönn 2004 var mér ekki kleift að ljúka nema tíu einingum við nám mitt í E-háskóla. Ástæða þess var sú að ég hafði valið mér kjörsvið á F-braut sem var B-svið. Mér líkaði ekki það val mitt og eftir samráð við aðila innan G-deildar við skólann ákvað ég að skipta um svið. Fyrir valinu varð D- svið. Ætlun mín var sú að reyna að komast í þau fög sem voru í boði eða þessar fimm einingar sem upp á vantaði. Þar sem hins vegar mætingaskylda er í þessu námi stóðu þeir valmöguleikar ekki opnir fyrir mér þar sem þessi brautarskipti áttu sér ekki stað fyrr en um mánaðarmótin september og október. Því varð ég að láta mér nægja þessar tíu einingar þótt það hefði ekki verið ætlunin. Þessar fimm einingar ætla ég hins vegar að taka á haustönn 2005. Þá mun ég verða í 20 einingum.

Ég hóf nám við G-deild haustið [2003]. Á þeirri haustönn tók ég mínar 15 einingar og stóð öll þau próf og verkefni sem ætlast var til. Það sama á við um vorönn [2004]. Haustönn [2004] er eins og áður er lýst og vorönn 2005 voru teknar 15 einingar en á þessu stigi liggja ekki fyrir einkunnir en prófin gengu vel þannig að ég geri ráð fyrir að þau standi með sóma eins og önnur próf mín í þessu námi. Þetta nám á að taka í það minnsta þrjú ár. Ég ætla mér að klára það á þeim tíma og til þess tek ég 20 einingar á komandi haustönn.

Ég las reglur um fæðingarstyrk þegar ég sótti um slíkt nú í janúar síðastliðnum. Þar sem ég sá að maður þyrfti að vera í 75-100% námi og hafa verið það síðustu sex mánuði hringdi ég til Tryggingastofnunar og sagði sögu mína. Ég fékk þau svör þar að ef E-háskólinn myndi staðfesta þetta mál mitt myndi verða hægt að úthluta mér fullum fæðingarstyrk og ef ég gæti nú sýnt fram á að fullt nám hefði verið stundað 2004-2005 mundi það einnig hjálpa. Þetta gerði ég það er að segja sendi með umsókninni námsferil minn frá byrjun og vottorð frá brautarstjóra F-brautar um að ég hefði ekki átt þess kost að ljúka nema 10 einingum á haustönn 2004. “

 

Með bréfi, dagsettu 23. maí 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 3. júní 2005. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004.

Kærandi sótti með umsókn, dags. 19. janúar 2005, um fæðingarstyrk námsmanna í þrjá mánuði frá 1. september 2005 að telja. Umsókn hans var vegna barns, sem fætt er 15. apríl 2005, en áætlaður fæðingardagur þess var 22. apríl 2005.

Með umsókn kæranda fylgdu vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 21. janúar 2005, námsferilsyfirlit E-háskóla, dags. 6. janúar 2005 og vottorð E-háskóla, dags. 10. janúar 2005. Þá lágu einnig fyrir við afgreiðslu umsóknar kæranda upplýsingar úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 18. apríl 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám. Þá var tekið fram að í stað fæðingarstyrks námsmanna yrði kæranda greiddur fæðingarstyrkur, sem foreldri utan vinnumarkaðar og kæranda send greiðsluáætlun þess efnis, dags. sama dag.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt á fæðingarstyrks. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist, eins og að framan greinir, þann 15. apríl 2005 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að líta hvort tveggja til náms hans á haustönn 2004 og vorönn 2005.

Samkvæmt námsferilsyfirliti E-háskóla, dags. 6. janúar 2005, var kærandi skráður í 10 einingar á haustönn 2004 og lauk þeim öllum. Þá var kærandi skráður til náms í 17 einingum á vorönn 2005. Í vottorði frá skólanum, dags. 10. janúar 2005, segir að kærandi hafi skipt um kjörsvið á F-braut G-deildar E-háskólans þegar nokkuð hafi verið liðið á haustmisseri 2004 og hafi honum þess vegna ekki verið unnt að ljúka nema tíu einingum af fimmtán á haustmisserinu, m.a. vegna reglna um mætingaskyldu í tiltekna áfanga. Þegar um er að ræða nám á háskólastigi teljast 15 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 11 - 15 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, þ.e. 75-100% nám. Með hliðsjón af framangreindu nær nám kæranda á haustönn 2004 ekki að vera fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof og þar með uppfyllir kærandi ekki skilyrðið um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 fyrir fæðingu barns hans.

Nokkrar undanþáguheimildir er að finna frá skilyrðinu um fullt nám í sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Þannig er samkvæmt 8. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrði um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki uppfyllt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 9. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 19. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Þá segir í 19. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna skilgreindra heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðinu um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda. Enga undanþáguheimild er að finna, hvorki í lögum um fæðingar- og foreldraorlof né í reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sem veitir heimild til að tekið sé tillit til aðstæðna, eins og eiga við í tilviki kæranda, þ.e. að foreldri geti ekki stundað fullt nám á sex mánaða tímabilinu vegna breytinga sem það óskar eftir að gera á námi sínu.

Með vísan til alls framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 6. júní 2005, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. lagabreytingar nr. 90/2004 eiga foreldrar í fullu námi rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi framangreindra laga er skilgreint í 16. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 7. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda er fætt 15. apríl 2005. Viðmiðunartímabil samkvæmt framangreindu er því frá 15. apríl 2004 fram að fæðingu barns.

Hjá E-háskóla er almennt miðað við að 100% nám sé 15 einingar á misseri. Samkvæmt yfirliti um námsferil kæranda við E-háskóla dagsettu 6. janúar 2005 lauk hann 15 eininga námi á vormisseri 2004 og 10 einingum á haustmisseri 2004. Samkvæmt vottorði frá E-háskóla dagsettu 10. janúar 2005 kemur fram að kærandi hafi skipt um kjörsvið á F-braut G-deildar þegar nokkuð var liðið á haustmisseri 2004. Vegna þess hafi honum ekki verið unnt að ljúka nema tíu einingum af fimmtán á nefndu misseri, meðal annars vegna reglna um 80% mætingaskyldu í tiltekna áfanga. Samkvæmt vottorði E-háskólans dagsettu 22. júní 2005 sagði hann sig úr tveimur áföngum þann 4. október 2004 og fór þá af B-sviði yfir á D-svið. Staðfest er að kærandi var skráður í 15 eininga nám á vormisseri 2005.

Við mat á því hvort kærandi hafði stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns skal líta til náms hans á vormisseri og haustmisseri 2004 og á vorönn 2005. Á vormisseri 2004 lauk kærandi 15 eininga námi og á vormisseri 2005, þ.e. á því misseri er barn kæranda fæddist var hann skráður í fullt nám. Hann var skráður í fullt nám haustið 2004 en í október skipti hann um kjörsvið og sagði sig úr tveimur áföngum. Að mati úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála var kærandi á tímabilinu frá 15. apríl 2004 til loka vormisseris 2004 og tímabilinu frá upphafi vormisseris 2005 til fæðingardags barns þann 15. apríl 2005 í fullu námi. Þegar eingöngu er litið til náms kæranda á vormisseri 2004 og vormisseri 2005 þá uppfyllir hann ekki það skilyrði að hafa verið í sex mánuði í námi á síðastliðnum tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, sbr. 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Þegar litið er til námsframvindu kæranda verður eigi fallist á að hann hafi þá verið í fullu námi á haustmisseri 2004.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum