Hoppa yfir valmynd
2. júní 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 18/2005

Fimmtudaginn, 2. júní 2005

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 10. maí 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 3. maí 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var kæranda með bréfi dagsettu 24. október 2003 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal kæra berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um hina kærðu ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins með bréfi dagsettu 24. október 2003. Kæran barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 10. maí 2005.

Í 4. mgr. 6. gr. ffl. er um málsmeðferð vísað til stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:
„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Þegar kæra barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála var liðið nær hálft annað ár frá því að hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda. Með hliðsjón af því og með vísan til 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 ber að vísa kærunni frá nefndinni.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A, er vísað frá þar sem hún er of seint fram komin.

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum