Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 1/2005

Mál nr. 1/2005

Þriðjudaginn, 5. apríl 2005

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 7. janúar 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 7. janúar 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 28. október 2004 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Ég leita til ykkar vegna þess að mér var neitað um fullan fæðingarstyrk af þeirri ástæðu að sjúkradagpeningar teldust ekki sem laun og vegna þess ég hafði aðeins verið í skóla í 5 mánuði...

Áætlaður fæðingardagur var 29. október 2004. Strax í mars hafði ég samband við umrædda stofnun og talaði þar við starfsmann sem ég var kunnug, B. Ég sagði henni frá aðstæðum mínum þar sem ég hafði áhyggjur og vildi hafa allt á hreinu. Ég var að hugsa um að fara í D-skóla um haustið en taldi það samt ekki vera skynsamleg þar sem ég yrði þá með eitt nýfætt og eitt 18 mánaða kríli líka. Hún sagði mér að þar sem ég væri að klára nám (varð stúdent í maí) þá snéri málið öðruvísi upp á tímann, 5 mánuðir í skóla, ég yrði hins vegar að skrá mig atvinnulausa strax að loknum prófum og ef ég yrði atvinnulaus fram að fæðingu þá fengi ég fullan styrk, sem ég gerði.

Ég vil taka fram að ég hóf nám haustið ’01 og var til vors ’03, strax að loknum prófum fór ég í fæðingarorlof á fullum styrk í 6 mánuði. Ég skráði mig svo atvinnulausa, en átti ekki rétt á atvinnuleysisbótum og fékk því aðstoð frá félagsþjónustunni í desember. Hóf svo nám strax í janúar ’04 og kláraði þar með stúdentinn...

Hvað varðar sjúkradagpeningana, þá liggur sökin algjörlega í höndum TR. Ég hafði haft samband við lækni í apríl vegna grindargliðnunar, sem var mjög slæm, þá hafði ég áhyggjur af því að geta ekki þegið neina vinnu vegna þess ég væri hreinlega óhæf í vinnu og skildi þá ekki hvers vegna ég ætti að vera á skrá hjá atvinnumiðlun. Ég hafði samband við TR og talaði þar við starfsmann sem ég kann ekki deili á. Hún sagði mér svo framarlega sem ég myndi sækja um sjúkradagpeninga frá námi og undirstrikaði það sérstaklega, frá námi, þá myndi ég fá óskertan styrk. Ég útskýrði aftur aðstæður mínar, þar sem ég hafði fjárhagslegar áhyggjur vegna þess að þessi meðganga var alls ekki plönuð, hún sagði mér að ef ég væri á sjúkradagpeningum frá námi þá fengi ég fullan styrk.

Læknirinn minn taldi mig óvinnufæra og ég þáði hjá þeim sjúkradagpeninga. Þegar leið á sumarið ákvað ég að ég myndi ekki fara í nám í D-skóla, þar sem ég treysti mér ekki til þess.

Ég átti svo 17. október og komst þá að því að TR ætlaði ekki að veita mér fullan styrk. Röng svör þeirra eru algjörlega óásættanleg þegar kemur að fjárhagslegu öryggi og að fæða barn í heiminn...“

 

Með bréfi, dagsettu 10. febrúar 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 23. febrúar 2005. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 (ffl.).

Kærandi sótti með umsókn, ódags., sem móttekin var 16. september 2004, um fæðingarstyrk námsmanna í sex mánuði, tímabilið nóvember 2004 til og með apríl 2005. Umsókn hennar varðar barn, sem fætt er 17. október 2004, en áætlaður fæðingardagur þess var 29. október 2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda lágu fyrir vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 26. ágúst 2004, staðfesting E-skóla á skólavist kæranda, dags. 26. ágúst 2004, ásamt yfirliti yfir námsferil kæranda við skólann, staðfesting F-skóla á skólavist kæranda, dags. 26. ágúst 2004, ásamt yfirliti yfir námsferil kæranda við skólann, yfirlit yfir greiðslur sjúkradagpeninga til kæranda og upplýsingar úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 28. október 2004, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrðið um 6 mánaða samfellt nám á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingardag barns hennar.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. ffl. eiga foreldrar í fullu námi rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr. Í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002, er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Samkvæmt framlögðum gögnum stundaði kærandi fullt nám í skilningi ffl. í F-skóla á vorönn 2004 en var hins vegar hvorki í námi á haustönn 2003 né haustönn 2004. Vorönn skólans hefst í ársbyrjun og lýkur með prófum í maí og telst því að hámarki vera fimm mánuðir. Með námi sínu á vorönn 2004 nær kærandi ekki að fullnægja skilyrðunum um að hafa verið í 75-100% samfelldu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingu barns hennar og nægir það því ekki til að veita henni rétt til fæðingarstyrks námsmanna.

Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrðum um fullt nám í ákveðnum tilvikum. Þannig er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn sem barn fæðist, sbr. 2 mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrðinu um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki fullnægt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 969/2001, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 14. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Í 14. gr. a reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 915/2002, segir að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 14. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í nám og fengið greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður eða verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda. Var í því sambandi sérstaklega til þess litið hvort réttur kæranda til sjúkradagpeninga gæti veitt henni rétt til fæðingarstyrks námsmanna á grundvelli 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. mgr. reglugerðar nr. 969/2001, þar sem til samfellds starfs telst, skv. b-lið 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga eða er á biðtíma eftir dagpeningum, enda hafi foreldrið látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum.

Kærandi fékk greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður í framhaldi af annarlokum vorið 2004 en ekki sökum þess að hún hefði látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum. Telur lífeyristryggingasvið því ekki unnt að fallast á að sjúkradagpeningagreiðslur sem kærandi fékk á tímabilinu 26. maí til 15. október 2004 geti veitt henni þann rétt sem kveðið er á um í 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 969/2001.

Með vísan til framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. ffl. Athygli er vakin á að í bréfi lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 28. október 2004, kemur fram að hún fái greiddan lægri fæðingarstyrk í 6 mánuði.

Vegna þess sem fram kemur í kæru kæranda varðandi það að hún hafi leitað til starfsmanna Tryggingastofnunar ríkisins eftir upplýsingum og ráðgjöf, farið eftir þeim leiðbeiningum sem henni voru veittar og þannig talið sig eiga rétt á greiðslu fæðingarstyrks sem námsmaður, skal tekið fram að ómögulegt er að staðreyna nákvæmlega hvaða upplýsingar voru veittar, við hvaða forsendur þær miðuðust eða hvaða skilningur var lagður í þær af hálfu kæranda. Þá verður ekki séð að gefnar upplýsingar, réttar eða rangar, hafi áhrif á réttindi til greiðslna enda eru þau réttindi og skilyrði þeirra bundin í lög.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 8. mars 2005 og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi dagsettu 22. mars 2005, þar sem hún gagnrýnir athugasemdir Tryggingastofnunar ríkisins um leiðbeiningaskyldu starfsmanna stofnunarinnar.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Krafa um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði verður eigi byggð á því að foreldri hafi fengið rangar eða ófullnægjandi upplýsingar um rétt sinn. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) er það hlutverk úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Það fellur hins vegar utan valdsviðs nefndarinnar að úrskurða um hugsanlegan bótarétt þeirra sem telja sig hafa fengið ófullnægjandi upplýsingar.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) eiga foreldrar í fullu námi rétt til greiðslu fæðingarstyrks. Í 7. mgr. sömu greinar segir að ráðherra sé heimilt að kveða í reglugerð nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis.

Í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er kveðið á um að fullt nám teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75–100% nám á háskólastigi og það nám annað sem geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi.

Samkvæmt upplýsingum frá F-skóla er almennt miðað við að fullt nám á önn sé 17,5 einingar.

Kærandi elur barn 17. október 2004. Með hliðsjón af því er tólf mánaða viðmiðunartímabilið frá 17. október 2003 fram að fæðingardegi barnsins.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi ekki í fullu námi á haustönn 2003 eða haustönn 2004. Hún var í fullu námi á vorönn 2004 sem nægir ekki til að uppfyllt sé skilyrði um sex mánaða samfellt nám. Frá 26. maí 2004 til 15. október 2004 fékk kærandi greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður vegna óvinnufærni.

Samkvæmt 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 969/2001, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrðinu um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki fullnægt þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 14. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Samkvæmt b-lið 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 909/2000 telst til samfellds starfs sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga eða er á biðtíma eftir dagpeningum, enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum. Framangreind 5. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar er undantekningarákvæði sem túlka ber þröngt eftir almennum lögskýringarsjónarmiðum. Kærandi lagði ekki niður launað starf og verður ákvæðið því ekki talið eiga við um hennar aðstæður.

Með hliðsjón af framangreindu hefur kærandi því ekki áunnið sér rétt til greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í námi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins varðandi greiðslur í fæðingarorlofi er því staðfest.

  

ÚRSKURÐARORÐ:

 Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum