Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 54/2004

Mál nr. 54/2004

Þriðjudaginn, 25. janúar 2005

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 23. nóvember 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála ódagsett kæra A.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 23. september 2004 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars.:

„Þegar ég hóf nám á haustönn 2003 átti ég enn mánuð eftir af 6 mánaða fæðingarorlofi mínu. Ég átti einungis 23 einingar eftir til stúdentsprófs. Ég ákvað að taka færri einingar þá um haustið og klára svo um vorið. Ég skráði mig í 11 einingar en á miðri önn hætti ég í einum áfanga og kláraði 9 einingar um jólin. Vorönn tók ég síðan 14 einingar sem ég náði öllum með fína einkunn. Enda strákurinn farinn að sofa mjög vel og var því orkumeiri. En á þeim tíma er ég orðin ólétt og ég sótti um fæðingarorlof sem námsmaður en var neitað vegna þess að ég tók færri einingar á hausti heldur en þá önn sem ég útskrifaðist. En undanþágan gildir aðeins þá önn. Ég bið ykkur hér með að skoða mitt mál með það í huga að ég var enn í fæðingarorlofi þegar ég hóf námið og valdi meðvituð færri einingar vegna þess að ég var heima með ungabarn.“

  

Með bréfi, dagsettu 25. nóvember 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 23. desember 2004. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 (ffl.).

Kærandi sótti með umsókn, ódags., sem móttekin var 15. júlí 2004, um fæðingarstyrk námsmanna. Umsókn hennar var vegna barns, sem fætt er 26. ágúst 2004, en áætlaður fæðingardagur þess var 18. ágúst 2004.

Með umsókn kæranda fylgdu bréf hennar, ódags., vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 13. júlí 2004, skírteini um stúdentspróf, dags. 22. maí 2004 og þann 10. ágúst 2004 barst lífeyristryggingasviði staðfesting B-framhaldsskólans á skólavist kæranda.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 13. ágúst 2004, var óskað frekari upplýsinga frá kæranda til að unnt yrði að meta nám hennar á haustönn 2003 og þann 21. september 2004 barst lífeyristryggingasviði námsferilsáætlun kæranda.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 23. september 2004, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrðið um 6 mánaða samfellt nám á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingardag barns hennar.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. ffl. eiga foreldrar í fullu námi rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr. Í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002, er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Samkvæmt framlögðum gögnum var kærandi skráð í 14 einingar á vorönn 2004, lauk þeim öllum og útskrifaðist sem stúdent frá B-framhaldsskólanum í maí 2004. Kærandi stundaði því fullt nám í skilningi ffl. í B-framhaldsskólanum á vorönn 2004. Vorönn skólans hefst í ársbyrjun og lýkur með prófum í maí og telst því að hámarki vera fimm mánuðir. Nám kæranda á vorönninni nægir því ekki til að veita henni rétt til fæðingarstyrks námsmanna heldur verður einnig að líta til náms hennar á haustönn 2003 við mat á því hvort hún fullnægi skilyrðunum um að hafa verið í 75-100% samfelldu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingu barns hennar. Á haustönn 2003 var kærandi skráð í 11 einingar og lauk hún 9 þeirra. Nám kæranda var á framhaldsskólastigi þar sem 100% nám telst vera 18 einingar á önn. Nám hennar á haustönn 2003 nær því ekki að vera fullt nám í skilningi ffl. og þar með uppfyllir kærandi ekki skilyrðið um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðunum fyrir fæðingu barns hennar.

Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrðum um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Þá er heimilt að taka tillit til ástundnar náms á þeirri önn sem barn fæðist, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 915/2002. Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrðinu um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki fullnægt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 5. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 969/2001, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 14. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Í 14. gr. a reglugerðar nr. 909/2000, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 915/2002, segir að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 14. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í nám og fengið greidda sjúkradagpeninga sem námsmaður eða verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma.

Samkvæmt gögnum málsins telur lífeyristryggingasvið að engin þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75-100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, eigi við um aðstæður kæranda. Skal sérstaklega tekið fram að lífeyristryggingasvið getur ekki fallist á að aðstæður kæranda verði heimfærðar undir undanþáguheimild 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, sbr. a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 915/2002, þar sem kærandi var í fullu námi á vorönn 2004, þegar hún var að ljúka stúdentsprófi sínu, en svo var ekki á haustönn 2003, þegar kærandi skráði sig í 11 einingar og lauk 9.

Með vísan til framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. ffl. Athygli er vakin á að í bréfi lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 23. september 2004, kemur fram að henni verði greiddur lægri fæðingarstyrkur í 3 mánuði frá 1. ágúst 2004 að telja.

  

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 27. desember 2004, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) eiga foreldrar í fullu námi sjálfstæðan rétt til fæðingarstyrks.

Í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er kveðið á um að fullt nám teljist vera 75–100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns.

Samkvæmt upplýsingum frá B-framhaldsskólanum telst fullt nám á önn að öllu jöfnu vera 18 einingar.

Kærandi elur barn 26. ágúst 2004. Með hliðsjón af því er tólf mánaða viðmiðunartímabilið frá 26. ágúst 2003 fram að fæðingardegi barns. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi í fullu námi í skilningi ffl., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 909/2000, á vorönn 2004, en ekki á haustönn 2003. Uppfyllir hún því ekki það skilyrði að hafa verið í fullu námi samfellt í sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barnsins.

Í kærubréfi kemur fram að kærandi hafi enn verið í fæðingarorlofi við upphaf náms á haustönn 2003. Samkvæmt lögum nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerð nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er ekki heimild til frávika frá skilyrði um fullt nám í slíku tilviki.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi því ekki áunnið sér rétt til greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í námi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins er því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum