Hoppa yfir valmynd
16. desember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 38/2004

Fimmtudaginn, 16. desember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 13. september 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett sama dag.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 8. september 2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars.:

„Fer ég fram á að reiknaðir verði 12 mánuðir samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag feðraorlofs. Í mínu tilfelli er upphafsdagur feðraorlofs 06.09.04.

Samkvæmt reglugerði 909/2000 2. gr. 2. mgr.

Því fer ég fram á að þessir útreikningar verði endurreiknaðir með tilliti til þess er ég nefni hér. “

 

Með bréfi, dagsettu 8. október 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 20. október 2004. Í greinargerðinni segir:

„Kærður er útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og óskar kærandi eftir því að viðmiðunartímabil tekjuútreiknings hans verði annað en litið var til við afgreiðslu umsóknar hans. Gerir kærandi kröfu um að viðmiðunartímabil tekjuútreiknings hans verði 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir 6. september 2004 þegar hann lagði niður störf vegna fæðingarorlofs.

Með umsókn, dagsettri 19. september 2003, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Umsóknin varðar barn sem fætt er 3. október 2003 en áætlaður fæðingardagur þess var 24. september 2003. Samkvæmt tilkynningu um fæðingarorlof kæranda til vinnuveitanda hans 1. september 2004 skyldi kærandi vera í fæðingarorlofi frá 6. september 2004 til 6. desember 2004.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Í greinargerð með lagafrumvarpinu er tekið fram að hér sé átt við almanaksmánuði.

Við afgreiðslu lífeyristryggingasviðs á umsókn kæranda, þann 8. september 2004, var horft til tekna hans á tímabilinu frá 1. júlí 2002 til og með júní 2003 og mánaðarlegar greiðslur til hans úr Fæðingarorlofssjóði reiknaðar kr. B. Barn hans fæddist í október 2003 og því telur lífeyristryggingasvið að afgreiða hafi átt umsókn kæranda miðað við tekjur hans á tímabilinu 1. ágúst 2002 til og með júlí 2003. Meðal mánaðartekjur kæranda á tímabilinu ágúst 2002 til og með júlí 2003 nema kr. D og eru 80% af því kr. E. Lífeyristryggingasvið telur því að mánaðarlegar greiðslur til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði hafi átt að vera kr. E í stað kr. B og hefur afgreiðsla umsóknar hans verið leiðrétt í samræmi við það.

Varðandi kröfu kæranda um að viðmiðunartímabil tekjuútreiknings hans miðist við þann dag sem hann lagði niður störf vegna fæðingarorlofs, 6. september 2004, skal tekið fram að úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur, í máli nr. 42/2001, kveðið úr um það hvað skuli teljast upphafsdagur fæðingarorlofs, sbr. 2. og 3. mgr. 8. gr. ffl. Er þar miðað við að upphaf orlofs sé í síðasta lagi við fæðingu barns. Samkvæmt því skal útreikningur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði miðast við það tímamark, jafnvel þótt annað foreldrið nýti rétt sinn til töku orlofs síðar. 

Lífeyristryggingasvið telur að ágreiningsefni í máli þessu sé sambærilegt því sem um ræddi í máli nr. 42/2001 og vísar af þeim sökum til niðurstöðu þess máls og rökstuðnings fyrir þeirri niðurstöðu.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 26. október 2004, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslur úr Fæðingaorlofssjóði.

Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) stofnast réttur til fæðingarorlofs við fæðingu barns. Ákvæðið veitir konu þó heimild til þess að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag sem staðfestur skal með læknisvottorði. Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof kemur fram varðandi þá undantekningu að ekki verði litið á þetta sem mismunun, þar sem það teljist ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, sbr. 3. gr. laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (nú 22. gr. laga nr. 96/2000).

Upphafsdagur fæðingarorlofs foreldra er skilgreindur í 2. mgr. 8. gr. ffl. Það færi í bága við 1. mgr. 22. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þar sem hvers kyns mismunun eftir kynjum er lýst óheimil, ef karlar gætu sjálfir ákvarðað upphafsdag fæðingarorlofs.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, sbr. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof að miða skuli við almanaksmánuði við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Lögin heimila ekki að vikið sé frá reglu 2. mgr. 13. gr. laganna.

Samkvæmt meginreglunni í 2. mgr. 8. gr. ffl. var upphafsdagur fæðingarorlofs kæranda fæðingardagur barnsins, þann 3. október 2003. Viðmiðunartímabil útreiknings greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði er samkvæmt því frá ágúst 2002 til og með júlí 2003, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslur í fæðingarorlofi staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum