Hoppa yfir valmynd
16. desember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 20/2004

Fimmtudaginn, 16. desember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 10. maí 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A þar sem kæranda er synjað um greiðslu fæðingarstyrks.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Í greinargerð Tryggingastofnun ríkisins dagsettri 7. júní 2004 er fallist á kröfur kæranda. Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála framsendi kæranda greinargerðina og hefur nefndin ítrekað óskað eftir afstöðu hennar til framhalds málsins. Svör hafa ekki borist frá kæranda.

Með hliðsjón af því sem að framan greinir vísar úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála málinu frá þar sem fallist hefur verið á kröfur kæranda.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá þar sem fallist hefur verið á kröfur kæranda.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum