Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 34/2004

Þriðjudaginn, 30. nóvember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 4. ágúst 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 3. ágúst 2004.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 28. apríl 2004 um að synja kæranda um breytingu á útreikningi á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Ég tel að gat sé á því kerfi sem notað er við útreikning á heildartekjum er grundvalla fæðingarorlofstekjur, þegar börn fæðast með stuttu millibili (11.10.2002 og 21.04.2004). Þegar tekjur úr fyrra fæðingarorlofi eru notaðar við útreikning á heildartekjum fyrir seinna fæðingarorlof eru heildartekjur lægri en raunverulegar, almennar tekjur, sé í lagi þegar fæðingarorlofstekjum hefur verið skipt yfir 12 mánaða tímabil.

Í mínu tilfelli eru 18 mánuðir á milli barna minna og nýtti ég mér rétt minn til að skipta fæðingarorlofstekjur yfir 12 mánaðar tímabil. Skv. núverandi reikniaðferð eru laun fyrir fæðingarmánuð barns ásamt tveimur mánuðum þar á undan ekki tekin með í útreikning heildartekna. Í útreikningi á heildartekjum fyrir núverandi fæðingarorlof mitt, reiknast því laun fyrir febrúar 2003 – september 2003 úr fæðingarorlofssjóði og október 2003 – janúar 2004 frá vinnuveitanda þrátt fyrir að fæðingardagur barns sé 21. apríl. Þessi reikniaðferð dregur heildartekjur mínar niður um kr. B (sjá bréf dagsett 17. júlí og ljósrit af launaseðlum).

Það gefur því auga leið að gat er í kerfinu þar sem það mismunar fólki sem;

a á börn með stuttu millibili og/eða nýtir sér rétt sinn til að skipta fæðingarorlofstekjum yfir 12 mánaða tímabil

b hefur verið heilsuhraust á meðgöngu og verið á fullum tekjum fram að fæðingardegi barns.“

 

Með bréfi, dags. 11. ágúst 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 23. ágúst 2004. Í greinargerðinni segir:

„Með umsókn, dags. 9. febrúar 2004, sem móttekin var 4. mars 2004, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í 6 mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 20. apríl 2004. Umsókninni fylgdi vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 24. febrúar 2004, tilkynning um fæðingarorlof, dags. 9. og 10. febrúar 2004 og launaseðlar fyrir janúar og febrúar 2004.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 28. apríl 2004, var henni tilkynnt að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt frá 21. apríl 2004 og að mánaðarleg greiðsla næmi 80% af meðaltekjum hennar samkvæmt skrá skattyfirvalda. Var útreikningur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til kæranda miðaður við tekjur hennar tímabilið febrúar 2003 til janúar 2004.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Í greinargerð með lagafrumvarpinu er tekið fram að hér sé átt við almanaksmánuði.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. er kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Tryggingastofnun ríkisins aflar um tekjur starfsmanns eða sjálfstætt starfandi foreldris úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Ef foreldri telur upplýsingar úr viðkomandi skrám ekki réttar skal það leggja fram gögn því til staðfestingar.

Í 2. mgr. 13. gr. og 3. mgr. 15. gr. ffl. er að finna skýr fyrirmæli um það hvernig greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði skuli reiknaðar út. Útreikningur á greiðslum til kæranda var, í samræmi við ákvæði þessi, byggður á tekjum kæranda samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK tímabilið febrúar 2003 til janúar 2004, eins og fyrr segir.

Þar sem enga heimild er að finna í lögum til að víkja frá framangreindri reglu 2. mgr. 13. gr. ffl. telur lífeyristryggingasvið að ekki sé heimilt að taka til greina ósk kæranda um að útreikningur fæðingarorlofsgreiðslna miðist við annað tímabil en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl. Þá telur lífeyristryggingasvið ekkert fram komið í málinu þess efnis að ætla megi að upplýsingar úr skrám skattyfirvalda varðandi tekjur kæranda séu rangar. Því telur lífeyristryggingasvið í ljósi alls framangreinds að áðurnefnt bréf lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 28. apríl 2004, beri með sér réttan útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 26. ágúst 2004, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um breytingu á útreikningi á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð meðal annars vegna anna hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, sbr. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Í 5. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 segir að meðaltal heildarlauna skuli miðast við þann fjölda mánaða á umræddu viðmiðunartímabili sem foreldri hafi sannanlega verið á vinnumarkaði í a.m.k. 25% starfi. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof að miða skuli við almanaksmánuði við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi ól barn 21. apríl 2004. Með hliðsjón af því verður viðmiðunartímabilið við útreikning greiðslna í fæðingarorlofi frá febrúar 2003 til og með janúar 2004 sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Lög um fæðingar- og foreldraorlof heimila ekki að vikið sé frá reglu 2. mgr. 13. gr. laganna við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Verður því ekki fallist á kröfu kæranda um breytingu á útreikningi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins er því staðfest. 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum