Hoppa yfir valmynd
24. júní 2003 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 31/2003

Þriðjudaginn, 24. júní 2003

 

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

 

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Jóhanna Jónasdóttir læknir og Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri.

Þann 7. maí 2003 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 5. maí 2003.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dags. 15. apríl 2003 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks.

Með bréfi frá Tryggingastofnun ríkisins, dags. 15. apríl 2003, var kæranda tilkynnt um synjun um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir m.a.:

„Við A og B fluttum til D-lands síðastliðið ár vegna náms sem A hóf síðastl. janúar 2003. Ákveðið var að flytja nokkrum mánuðum áður en skóli hófst þannig að A myndi nú vera kominn ágætlega inn í D-tungumálið og fjölskyldan búin að koma sér vel fyrir í samfélagi D-lands.

Óskum eftir að mál þetta verði tekið fljótt fyrir vegna þeirra aðstæðna sem við erum í (Engin réttindi til fæðingarorlofs hér í D-landi). Bendi einnig á að áætlaður fæðingardagur var 28. apríl ´03. Vonandi verður barnið komið í heiminn þegar ykkur berst þetta bréf.“

 

Með bréfi, dags. 7. maí 2003, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dags. 23. maí 2003. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga um fæðingar- og fæðingarorlof nr. 95/2000 (ffl.) á grundvelli undanþáguákvæðis 13. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 909/2000.

Kærandi sótti um fæðingarstyrk námsmanna með umsókn dags. 28. mars 2003 vegna áætlaðrar fæðingar barns 28. apríl 2003. Með fylgdu staðfesting frá E, D-landi, um hann hefði hafið nám þar í janúar 2003 og staðfesting á því að ekki væru réttur á greiðslum í D-landi. Í umsókninni var tekið fram  að hann hefði verið að vinna í október og nóvember í D-landi og fylgdu launaseðlar með.

Kæranda var með bréfi dags. 15. apríl 2003 synjað um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna á grundvelli þess að þar sem hann hefði flutt lögheimili sitt út í september 2002 en ekki hafið nám fyrr en í janúar 2003 yrði ekki litið svo á að hann hefði flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms.

Samkvæmt 19. gr. ffl. eiga foreldrar í fullu námi rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar. Þar segir m.a. að fullt nám í skilningi ffl. teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Heimilt er að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar segir:

„Rétt til fæðingarstyrks á foreldri sem er utan vinnumarkaðar, í minna en 25% starfi eða í námi að því tilskildu að foreldrið hafi átt lögheimili hér á landi við fæðingu barns, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og síðustu 12 mánuðina þar á undan. Skilyrði um lögheimili er í samræmi við það búsetuskilyrði sem sett er fyrir rétti til að teljast tryggður samkvæmt lögum um almannatryggingar.“

Í 13. gr. reglugerðarinnar segir:

„Tryggingastofnun ríkisins er, þrátt fyrir skilyrði 12. gr., heimilt á grundvelli umsóknar að greiða fæðingarstyrk til foreldris sem hefur flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms erlendis, enda hafi foreldri átt lögheimili hér á landi samfellt í a.m.k. fimm ár fyrir flutning.

Skilyrði samkvæmt ákvæði þessu er að fyrir liggi yfirlýsing frá almannatryggingum í búsetulandi um að foreldri eigi ekki rétt á greiðslum vegna fæðingar, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur í því ríki.

Ef fyrir hendi er réttur úr almannatryggingum í búsetulandi sem er lakari en sá réttur sem námsmaður á rétt til hér á landi er Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þrátt fyrir skilyrði 2. mgr., að greiða mismun sem því nemur.“

Í 1. mgr. 12. gr. nr. 909/2000 segir að skilyrði um lögheimili sé í samræmi við það  búsetuskilyrði sem sett er fyrir rétti til að teljast tryggður samkvæmt lögum um almannatryggingar. Í I. kafla A. laga um almannatryggingar nr. 117/1993 er kveðið á um hverjir skuli tryggðir skv. lögunum. Þar er í 9. gr. c. ATL kveðið á um heimild fyrir einstaklinga sem stunda nám erlendis til að teljast áfram tryggður hér á landi ásamt maka sem var tryggður hér á landi við upphaf námsins og börnum undir 18 ára aldri sem með honum dveljast og í 9. gr. d. ATL er kveðið á um setningu reglugerðar um einstök atriði sem varða framkvæmd kaflans. Í 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmd almannaskráningar og skráningu í tryggingaskrá 463/1999 segir að sá sem flytur búsetu sína frá Íslandi teljist ekki lengur tryggður og í 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 463/1999 segir að með námsmanni sé átt við einstakling, annan en launþega eða sjálfstætt starfandi einstakling, sem er við nám eða starfsþjálfun er lýkur með útgáfu vottorðs um menntun sem viðurkennt er af yfirvöldum.

Skv. ákvæðum ATL og reglugerðar 463/1999 getur einstaklingur sem er launþegi eða sjálfstætt starfandi einstaklingur erlendis ekki talist vera námsmaður sem hefur heimild til að vera áfram tryggður hér á landi. Í máli þessu hefur kærandi verið með lögheimili í D-landi frá 25. september 2002 og fyrir liggur að eftir flutning til D-lands var hann að vinna þar í landi áður en hann hóf nám í janúar 2003. Þar með verður ekki litið svo á að kærandi uppfylli skilyrði undanþáguákvæðis 13. gr. reglugerðar 909/2000 um að hafa flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms.

Það hefur ekki áhrif á þessa niðurstöðu að hann eigi ekki rétt á greiðslum í D-landi þar sem þar í landi er ekki um að ræða greiðslur í fæðingarorlofi til námsmanna.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 6. júní 2003, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) eiga foreldrar í fullu námi rétt til fæðingarstyrks. Í 1. mgr. 14. gr. reglugerðar  nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks er kveðið á um að fullt nám teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Heimilt er að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr.

Samkvæmt 1. mgr. 12. gr. framangreindrar reglugerðar er réttur námsmanns til fæðingarstyrks bundinn því skilyrði að foreldri hafi átt lögheimili hér við fæðingu barns. Í 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins sé, þrátt fyrir 12. gr. heimilt á grundvelli umsóknar að greiða fæðingarstyrk til foreldris sem hefur flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms erlendis, enda hafi foreldri átt lögheimili hér á landi samfellt í a.m.k. fimm ár fyrir flutning.

Samkvæmt gögnum málsins flutti kærandi lögheimili sitt til D-lands 25. september 2002. Eftir það starfar hann á vinnumarkaði í D-landi fram í desember sama ár. Hann hóf síðan nám við E, D-landi í janúar 2003.

Kærandi flutti lögheimili sitt til D-lands í september 2002. Hann hóf ekki nám fyrr en í janúar 2003 eftir að hafa starfað á vinnumarkaði D-lands um rúmlega tveggja mánaða skeið. Í gögnum málsins er ekki að finna umsóknir eða önnur gögn því til staðfestingar að tilgangur lögheimilisflutnings í september 2002 hafi verið tímabundinn flutningur vegna náms þess sem kærandi hóf í janúar 2003. Með hliðsjón af því verður eigi á það fallist að uppfyllt sé skilyrði í 13. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um undanþágu frá lögheimilisskilyrði. Samkvæmt því ber að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun á greiðslu fæðingarstyrks til A er staðfest.

  

 

Guðný Björnsdóttir

Gylfi Kristinsson

Jóhanna Jónasdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum