Hoppa yfir valmynd
20. maí 2003 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 6/2003

Mál nr. 6/2003

Þriðjudaginn, 20. maí 2003

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

 

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Jóhanna Jónasdóttir læknir og Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri.

Þann 10. febrúar 2003 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 5. febrúar 2003.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal kæra berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins barst kæranda máls þessa bréf frá Tryggingastofnun ríkisins, dags. 24. október 2002, þar sem tilkynnt var hvernig afgreiðslu málsins yrði háttað hjá stofnuninni. Kæran barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 10. febrúar 2003.

Í 4. mgr. 6. gr. ffl. er um málsmeðferð vísað til stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
   1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
   2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Þar sem hvorki verður séð að sérstakar ástæður leiði til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi komið of seint fram, né að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin fyrir, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að vísa kærunni frá, þar sem hún er of seint fram komin.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá þar sem hún er of seint fram komin.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Gylfi Kristinsson

Jóhanna Jónasdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum