Hoppa yfir valmynd
15. október 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 8/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 15. október 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 8/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 4. nóvember 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar sem hún hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, samtals að fjárhæð 8.868 krónur.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar launaseðils sem barst stofnuninni þann 5. nóvember 2014. Með bréfi dags. 11. nóvember 2014 var kæranda tilkynnt sú ákvörðun stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun, þar sem að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu í máli hennar þrátt fyrir ný framkomin gögn. Kærandi óskaði eftir endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar með tölvubréfi, dags. 7. nóvember 2014, en með bréfi, dags. 4. desember 2014, tilkynnti Vinnumálstofnun kæranda að málið hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, enda hafi sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í málinu hafi borist.

Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 16. janúar 2015. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 3. desember 2013 og reiknaðist með 100% bótarétt. Með bréfi, dags. 7. október 2014, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda í júlí 2014 vegna vinnu hjá B að fjárhæð 77.836 krónur. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á ótilkynntum tekjum. Þann 24. október 2014 barst Vinnumálastofnun tilkynning um tekjur frá kæranda.

Með bréfi, dags. 4. nóvember 2014, var kæranda tilkynnt viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar.  Þann 5. nóvember 2014 barst Vinnumálastofnun launaseðill vegna tekna kæranda frá B fyrir júlí 2014. Í kjölfarið, þann 6. nóvember 2014, var mál kæranda tekið fyrir að nýju hjá stofnuninni. Með bréfi dags. 11. nóvember 2014 var kæranda tilkynnt um ákvörðunina.  

Þann 7. nóvember 2014 barst endurupptökubeiðni frá kæranda þar sem hún kveðst hafa hringt í Vinnumálastofnun til að láta vita af umræddri tilfallandi vinnu og hún hafi þá fengið þær upplýsingar að allt væri rafrænt.  Hún hafi staðið í þeirri trú að viðkomandi starfsmaður hefði skráð tilkynningu um tilfallandi vinnu. Þann 28. nóvember 2014 var mál kæranda tekið fyrir að nýju hjá stofnuninni og með bréfi dags. 4. desember 2014 var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun þar sem að sú ákvörðun væri efnislega rétt þrátt fyrir ný gögn í máli hennar.  

Kærandi óskaði eftir endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar með tölvubréfi, dags. 7. nóvember 2014, en með bréfi, dags. 4. desember 2014, tilkynnti Vinnumálstofnun kæranda að málið hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, enda hafi sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í málinu hafi borist.

Kærandi greinir frá því í kæru að hún hafi tilkynnt um vinnu sína hjá B í júní 2014. Hún hafi verið nýbúin að fara til Vinnumálastofnunar með afrit af reikningi vegna verktakavinnu sem hún hafi verið í og því hringt til Vinnumálastofnunar til að athuga hvort þetta virkaði eins og þegar hún hefði tilkynnt um vertakavinnuna. Kærandi kveðst hafa sagt starfsmanninum að hún vissi ekki hvernig vaktarplanið væri og hún væri einungis að fara leysa af fólk í sumarfríi. Þá hafi starfsmaðurinn sagt að þetta væri tilfallandi vinna og að þetta væri allt rafrænt og kæmi inn á „Mínum síðum“. Kærandi hafi haldið að starfsmaðurinn hafi skráð niður umrædda vinnu en hann hafi ekki gert það. Henni hafi því brugðið þegar hún hafi fengið synjun.

Kærandi greinir frá því að hún hafi hringt til Vinnumálastofnunar í byrjun desember til að spyrja hvort að það hafi verið ung stúlka að vinna hjá þeim í júní. Henni hafi verið tjáð að það hafi verið 4 sumarstarfsmenn og 3 af þeim hafi verið stelpur. Kærandi kveðst ekkert hafa gert af sér og að hún telji að stúlkan sem svaraði í símann hjá Vinnumálastofnun í júní hafi gert mistök sem kærandi vill ekki að bitni á sér.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 24. febrúar 2015, segir að mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna. 

Bent er á að annar málsliður 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Fram komi í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laganna að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu né í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laga þessara skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Vinnumálastofnun bendir á að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur frá B í júlí 2014 að fjárhæð 77.836 krónur. Í skýringum til stofnunarinnar kvaðst kærandi hafa hringt í Vinnumálastofnun til að tilkynna um þessa vinnu en viðkomandi starfsmaður hafi þó ekki skráð tilkynninguna. Samkvæmt upplýsingum úr samskiptasögu kæranda hjá Vinnumálastofnun sé hins vegar ekki hægt að sjá að kærandi hafi tilkynnt fyrirfram um þessa vinnu sína, en rík skylda hvíli á þeim sem njóta greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geti ákvarðað bótarétt viðkomandi. Vinnumálastofnun hafi því ekki nein gögn undir höndum sem sýni fram á að kærandi hafi tilkynnt fyrirfram um tilfallandi vinnu sína hjá B í júlí 2014 og geti skýringar kæranda sökum þess ekki talist gildar.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynning um tekjur sbr. 10. gr. og 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Samkvæmt ofangreindu hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 8.868 krónur, með 15% álagi sem henni beri að endurgreiða, sbr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. febrúar 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 12. mars 2015. Athugasemdir bárust ekki.

Með bréfi, dags. 9. september 2015, óskaði úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða eftir því að kærandi legði fram yfirlit frá símafyrirtæki yfir símtöl hennar í júní 2014. Þann 19. september 2015 tilkynnti kærandi úrskurðarnefndinni að ómögulegt væri að leggja fram slíkt yfirlit samkvæmt upplýsingum frá símafyrirtæki hennar þar sem of langt væri um liðið. Upplýsingar um símtöl væru einungis geymd í sex mánuði og að þeim tíma liðnum væri gögnunum eytt. Frekari athugasemdir bárust ekki.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

Í meðförum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Vinnumálstofnun byggir á því að háttsemi kæranda falli undir síðari málsliðinn.

Samkvæmt gögnum málsins starfaði kærandi hjá B í júlí 2014. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða telur því ljóst að kærandi hafi verið starfandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Í kæru er hins vegar byggt á því að kærandi hafi tilkynnt um starf sitt hjá B í júní 2014 með símtali. Við það tilefni hafi kærandi fengið þær upplýsingar frá starfsmanni Vinnumálastofnunar að þar sem um afleysingarstarf væri að ræða þá væri þetta tilfallandi vinna og slíkt væri allt rafrænt á vefsvæðinu „Mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun. Hún hafi staðið í þeirri trú að viðkomandi starfsmaður hefði skráð tilkynningu um tilfallandi vinnu. Í samskiptasögu kæranda hjá stofnuninni er ekki að finna upplýsingar um umrætt símtal kæranda við starfsmann stofnunarinnar. Þá getur kærandi ekki lagt fram yfirlit yfir símtöl hennar í júní 2014 í samræmi við beiðni úrskurðarnefndarinnar. Þar sem engin gögn liggja fyrir um umrætt símtal kæranda telur úrskurðarnefndin að leggja verði til grundvallar að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um starf sitt hjá B.

Atvinnuleitendum sem þiggja atvinnuleysisbætur ber að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er jafnframt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a. sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hún starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða um tekjur. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber því kæranda einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 8.868 krónur með 15% álagi.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. desember 2014 í máli A, þess efnis að staðfesta fyrri viðurlagaákvörðun í máli kæranda, er staðfest.  

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum