Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál 85/2014

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hinn 30. júlí 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 85/2014.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. september 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 16. september 2014 tekið þá ákvörðun að kæranda yrði gert að sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í samræmi við 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hún hafði ekki tilkynnt stofnuninni um dvöl sína erlendis. Kæranda var jafnframt tilkynnt að samkvæmt þessu hafi hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 8. júní til 31. júlí 2014, samtals að fjárhæð 280.079 kr., sem yrðu innheimtar skv. 3. mgr. 39. gr. laganna. Kærandi kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 20. október 2014. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. febrúar 2012. Í ágúst 2014 barst Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði verið erlendis í júní, júlí og ágúst 2014 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Með bréfi, dags. 21. ágúst 2014, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði upplýsingar um að hún hefði verið stödd erlendis á sama tíma og hún þáði greiðslur atvinnuleysisbóta. Var kæranda gefinn sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum vegna þessa en tekið var fram í bréfinu að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar væri skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta að viðkomandi væri staddur hér á landi. Jafnframt var vakin athygli á því að kærandi gæti þurft að sæta viðurlögum skv. 61. gr. laganna ef hún hefði látið hjá líða að veita Vinnumálastofnun upplýsingar um för sína áður en hún fór erlendis. Skýringarbréf kæranda barst 25. ágúst 2014 þar sem hún kvaðst hafa farið út til að leita sér að starfi svo hún gæti dvalið í heimalandi sínu, en því miður ekki fundið neitt. Hún hafi að lokum snúið aftur til Íslands og sé í atvinnuleit hér á landi núna. Þann 9. september 2014 bárust umbeðnir farseðlar og samkvæmt þeim var kærandi erlendis tímabilið 8. júní til 15. ágúst 2014.  

Áður en umrædd viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar var tekin hafði verið tekin önnur viðurlagaákvörðun í máli kæranda á sama bótatímabili eða 2. apríl 2012 og kom þessi síðari því til ítrekunar þeirri fyrri, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kæru kemur fram að kærandi sé einstæð móðir og eigi ekki efni á að borga skuldina. Hún hafi byrjað að vinna hjá B í 50% starfi og hún muni vonandi hætta á atvinnuleysisbótum bráðlega. Hún kveðst þéna um 100.000 kr. á mánuði. Hún hafi farið erlendis því hún hélt að hún myndi finna sér vinnu þar en svo var því miður ekki. Hún hafi komið aftur til Íslands og byrjaði strax að leita sér að vinnu. Kærandi kveðst vita af mörgum sem þiggja atvinnuleysisbætur og hafa farið erlendis en ekki þurft að greiða neitt.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 14. nóvember 2014, segir að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Ákvörðun um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, sé tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Í c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um atvinnuleysisbætur þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að „[l]áti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna“.

Í 2. mgr. 14. gr. laganna sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjanda um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða.

Ljóst sé að kærandi hafi verið stödd erlendis tímabilið 8. júní til 15. ágúst 2014. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda um atvinnuleysisbætur að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Á kynningarfundum Vinnumálastofnunar sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Þessar upplýsingar sé einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar.

Ljóst sé að kæranda var gert að sæta biðtíma í maí 2012 á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Þar sem um hafi verið að ræða niðurfellingu bótaréttar kæranda öðru sinni, hafi það verið niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skyldu ekki greiddar fyrr en kærandi hafði verið skráð hjá Vinnumálastofnun án bóta í þrjá mánuði í samræmi við 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi, 16. september 2014, sbr. 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr., laga nr. 54/2006. Þá beri kæranda að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hún hafi verið stödd erlendis.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafa verið. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hefur fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Muni skuld kæranda verða innheimt skv 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. nóvember 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 9. desember 2014. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stödd erlendis á tímabilinu frá 6. júní til 15. ágúst 2014, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Af hálfu kæranda kemur fram að hún hafi farið til erlendis til að leita sér að starfi svo hún gæti dvalið í heimalandi sínu, en því miður ekki fundið neitt.   

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Eins og fram hefur komið var um að ræða aðra viðurlagaákvörðun í máli kæranda á sama bótatímabili og kom þessi síðari því til ítrekunar þeirri fyrri, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að skýringar kæranda á ótilkynntri dvöl erlendis teljist ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Tilkynning um utanlandsferð getur verið í formi símtals eða tölvupósts til Vinnumálastofnunar. Sú skylda þess sem þiggur atvinnuleysisbætur að tilkynna fyrirfram um utanlandsferð er fortakslaus.

Þá lýtur málið jafnframt að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta hjá kæranda ofgreiddar atvinnuleysisbætur hennar skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að fjárhæð 280.079 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 segir:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu ákvæði er Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafa verið. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, er sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hefur fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Eins og áður hefur komið fram á skuld kæranda rætur sínar að rekja til þess að hún tilkynnti ekki um utanlandsferð sína og uppfyllti því ekki almenn skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 8. júní til 15. ágúst 2014. Þannig fékk hún ofgreiddar atvinnuleysisbætur á meðan að hún var erlendis, sem verða innheimtar skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar segir að heimilt sé að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei að hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótunum í hverjum mánuði.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 19. september 2014 í máli A, þess efnis að bótaréttur hennar verði felldur niður frá og með 16. september 2014 í þrjá mánuði, er staðfest. 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum