Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 9/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hinn 30. júlí 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 9/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að kærandi, A, sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 5. desember 2014. Á fundi Vinnumálastofnunar 16. desember 2014 var umsókn hans samþykkt og var bótaréttur kæranda metinn 45%. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, móttekinni 19. janúar 2015. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Áður en kærandi sótti um atvinnuleysisbætur starfaði hann á eigin kennitölu undir heitinu „B“ en samkvæmt tilkynningu um afskráningu, dags. 5. desember 2014, frá kæranda til ríkisskattstjóra var starfsemi hætt, en síðasta launagreiðsla kæranda var 30. nóvember 2014.

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að rökstuðningur hans snúi eingöngu að viðmiðunaráætlun sem ríkisskattstjóri setji upp í launaflokk samkvæmt áætlun á útreiknuð laun miðað við rekstrarafstöðu og sjálfstæðan rekstur. Hann sé búinn að gefa upp mánaðarlaun fyrir sig öll þau ár sem hann hafi verið með sjálfstæðan rekstur, 100% laun fyrir 100% starf. Hann hafi skilað inn launaseðlum með 150.000 kr. heildarlaun og borgað öll meðfylgjandi gjöld samkvæmt öllum skilmálum sem því fylgir.

Nú þegar harðni í rekstri hjá honum og hann ákveði að hætta rekstri sé honum reiknaður 45% bótaréttur af launum sem hann gefi upp. Honum finnist það ekki standast að reikna bótarétt hans út frá áætlun ríkisskattstjóra þar sem um áætlun sé að ræða en ekki þau laun sem hann hefur reiknað sér.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 3. mars 2015, kemur fram að lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir.

Þar sem kærandi hafi starfað á eigin kennitölu áður en hann sótti um atvinnuleysisbætur teljist hann vera sjálfstætt starfandi í skilningi b-liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Um útreikning bótaréttar sjálfstætt starfandi einstaklinga fari eftir 19. gr. sömu laga.

Samkvæmt síðarnefndu greininni beri Vinnumálastofnun að reikna bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklings út frá því endurgjaldi sem viðkomandi reikni sér vegna vinnu sinnar. Nái reiknað endurgjald atvinnuleitanda ekki lágmarksviðmiðun ríkisskattstjóra ákvarðist bótaréttur af hlutfalli reiknaðs endurgjalds sem greitt hafi verið af og viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra. Geti sjálfstætt starfandi einstaklingur því einungis átt hlutfallslegan rétt til bóta ef reiknað endurgjald er lægra en viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra.

Bótaréttur kæranda byggi á vinnu hans sem sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Starf kæranda falli undir tekjuflokk C6 samkvæmt reglum um reiknað endurgjald, settum skv. 3. málsl. 1. mgr. 58. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Tekjuflokkur C6 taki til einstaklings „sem starfar einn og án annarra starfsmanna eða aðkeypts vinnuframlags“. Viðmiðunartekjur ríkisskattstjóra fyrir tekjuflokk C6 vegna ársins 2013 hafi verið 336.000 kr. á mánuði eða 4.032.000 kr. í árslaun og fyrir árið 2014 hafi viðmiðunartekjur verið 356.000 kr. á mánuði eða 4.272.000 kr. í árslaun.

Við útreikning á tryggingahlutfalli horfi Vinnumálastofnun til síðustu tólf mánaða, sem kærandi hafi greitt sér laun, áður en hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur, sbr. 2. mgr. 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra hafi mánaðarlaun kæranda á því tímabili hæst numið 45% af viðmiðunartekjum ríkisskattstjóra. Sé það því niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi sé rétt reiknaður með 45% bótarétt.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. mars 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. mars 2015. Engar frekari athugasemdir bárust.

 2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi eigi rétt hærri bótarétti en hann var reiknaður með, 45% af fullum atvinnuleysisbótum eins og ákveðið var í hinni kærðu ákvörðun. Kærandi starfaði á eigin kennitölu og reiknaði sér endurgjald vegna þessa.

Ljóst er því að kærandi var sjálfstætt starfandi. Samkvæmt b-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er sjálfstætt starfandi einstaklingur hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns.

Í IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Í 19. gr. laganna er fjallað um ávinnslutímabil sömu aðila. Í 1. mgr. 19. gr. segir að sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., telst að fullu tryggður samkvæmt lögunum eftir að hafa greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald samfellt á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar að öðrum skilyrðum uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Í 2. mgr. 19. gr. segir svo um útreikning bótaréttar:

Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sem greitt hefur mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra], sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald skemur en tólf mánuði en þó lengur en þrjá mánuði á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar, telst tryggður hlutfallslega í samræmi við fjölda þeirra mánaða sem hann hefur greitt staðgreiðsluskatt að öðrum skilyrðum laganna uppfylltum, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr. Hið sama gildir um sjálfstætt starfandi einstakling sem hefur greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi sem er lægra en viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra, sbr. b-lið 3. gr., í viðkomandi starfsgrein og tryggingagjald á síðustu tólf mánuðum áður en hann sækir um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar en þá ákvarðast tryggingahlutfall hans af hlutfalli fjárhæðar reiknaðs endurgjalds sem greitt hefur verið af og viðmiðunarfjárhæðar, sbr. þó einnig 4. og 6. mgr.

Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal endurgjald fyrir vinnu manns sem reiknar sér endurgjald skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laganna eigi vera lægra en launatekjur hans hefðu orðið ef unnið hefði verið fyrir ótengdan eða óskyldan aðila. Fjármálaráðherra gefur út viðmiðunarfjárhæðir fyrir hverja starfsgrein við upphaf hvers tekjuárs á grundvelli laga um tekjuskatt. Starfsemi kæranda fellur undir flokk C6 en í þeim flokki eru menn sem starfa einir og án annarra starfsmanna eða aðkeypts vinnuframlags. Viðmiðunarmánaðarlaun vegna ársins 2013 voru 336.000 kr. og árslaun 4.032.000 kr. og vegna ársins 2014 356.000 kr. í mánaðarlaun og 4.272.000 kr. í árslaun. Samkvæmt gögnum málsins, og upplýsingum var kæranda sjálfum, voru mánaðarlaun kæranda 150.000 kr. á mánuði.

Fallist er á það mat Vinnumálastofnunar að starf kæranda hafi fallið undir starfaflokk C6 samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald. Á ávinnslutímabilinu nam reiknað endurgjald kæranda 45% af þeim lágmarksviðmiðunum sem koma fram í reglum ríkisskattstjóra um starfaflokk C6. Þegar af þessum ástæðum verður hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A, þar sem kærandi var reiknaður með 45% bótarétt, er staðfest.

  

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum