Hoppa yfir valmynd
16. júní 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 96/2012 - endurupptaka

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 16. júní 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður vegna kröfu um endurupptöku í máli A, nr. 96/2012.

 

1. Málsatvik og kæruefni

 Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða kvað upp úrskurð í máli A, þann 14. maí 2013. Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að kæranda hafi verið tilkynnt með bréfi, dags. 26. janúar 2012, að þar sem Vinnumálastofnun hefði ekki borist upplýsingar um óupplýstar tekjur kæranda sem óskað hefði verið eftir þann 5. janúar 2012 hefði stofnunin stöðvað greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar. Í bréfinu hafi jafnframt komið fram að ef Vinnumálastofnun bærust umræddar upplýsingar yrði umsókn kæranda tekin fyrir á ný. Kærandi hafi sent inn umbeðin gögn 30. maí 2012. Vinnumálastofnun hafi litið svo á að kærandi hefði skilað inn nýrri umsókn með þessu og umsókn hennar hafi verið samþykkt frá og með þeim degi. Stofnunin hafi ekki talið sér fært að endurupptaka mál kæranda þar sem þriggja mánaða kærufrestur til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt 12. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar hafi verið liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 6. júní 2012. Í kæru bar kærandi því við að henni hefði ekki verið kunnugt um að umræddar upplýsingar hefðu ekki borist en hún hefði beðið lífeyrissjóð sinn um að koma upplýsingunum til skila.

Í úrskurði úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða komst nefndin að þeirri niðurstöðu að vísa bæri kærunni frá úrskurðarnefndinni. Úrskurðarnefndin taldi að þar sem umsókn kæranda hefði verið samþykkt frá og með 30. maí 2012 hefði kærandi ekki lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um þá ákvörðun fyrir nefndinni. Þá taldi úrskurðarnefndin, að því er varðaði synjun Vinnumálastofnunar á greiðslum til kæranda fyrir tímabilið frá 20. desember 2011 til 29. maí 2012, að ekkert í gögnum málsins gæfi til kynna að afsakanlegt hefði verið að kæran hefði borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Með bréfi til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 30. apríl 2015, óskaði kærandi eftir því að fá leiðréttingu sinna mála. Úrskurðarnefndin telur að ráða megi af framangreindu bréfi og fylgigögnum með því að um endurupptökubeiðni sé að ræða.

 

2. Niðurstaða

Um heimild til endurupptöku máls er fjallað í 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.  Í 1. mgr. 24. gr. laganna segir að aðili máls eigi rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Þá verður mál ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá því aðila var tilkynnt um ákvörðun nema veigamiklar ástæður mæli með því samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Beiðni kæranda um endurupptöku barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. apríl 2015. Þá voru liðin tæplega tvö ár frá því að úrskurðarnefndin úrskurðaði í máli hennar þann 14. maí 2013. Í máli þessu hafa ekki komið fram upplýsingar þess efnis að ákvörðun úrskurðarnefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að íþyngjandi ákvörðun hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að ákvörðun var tekin. Auk þess verður ekki ráðið af gögnum málsins að veigamiklar ástæður mæli með því að málið verði tekið upp að nýju.

Með vísan til þess sem að ofan er ritað telur nefndin ekki forsendur fyrir endurupptöku á máli kæranda og er beiðninni því hafnað.


Úrskurðarorð

A um endurupptöku úrskurðar í máli hennar fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða frá 14. maí 2013, þess efnis að kæru hennar var vísað frá úrskurðarnefndinni, er hafnað.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum